Fréttablaðið - 30.12.2006, Qupperneq 64
Máni Sær Viktorsson segir nokkurn
mun vera á íslenskri og perúskri ára-
mótagleði.
„Fagnaðarlætin hefjast rétt um miðnætti á
gamlársdag í Perú,“ segir Máni, sem er ætt-
aður frá Moyo-bamba í Perú en hefur verið
búsettur á Íslandi síðastliðin sautján ár.
„Þá hefst borðhaldið,“ heldur Máni áfram
til útskýringar. „Fólk snæðir kalkún, sem er
dæmigerður hátíðarmatur, en kjúklingur og
svínakjöt er einnig algengt í Lima, höfuð-
borg Perú.
Svo er skálað annaðhvort í kampavíni
eða freyðivíni. Um leið er fylgst með nið-
urtalningu í nýárið í sjónvarpinu og tólf vín-
berja neytt síðustu tólf sekúndurnar á
gamla árinu.“
Að sögn Mána tengist hjátrú áramóta-
veislum Perúbúa órjúfanlegum böndum. Til
að mynda sé hefð fyrir því að rölta eða
hlaupa með ferðatöskur í kringum heimili
sitt, því þá séu meiri líkur á að manni gefist
tækifæri til að ferðast á árinu. Svo sópi
menn gólf og hendi rusli, sem talið er að
geti losað mann við alls kyns vandamál.
„Heitt súkkulaði er síðan borið fram
ásamt ítölsku panitoni, en það er mjög vin-
sælt,“ segir Máni. „Eftir það hefjast hátíð-
arhöldin fyrir alvöru. Þá eru flugeldar
sprengdir, þó ekki í eins miklum mæli og á
Íslandi, gott vín drukkið og dansað langt
fram eftir nóttu. Ein áramótin skemmti ég
mér til að mynda svo vel hjá vini mínum, að
ég vaknaði daginn eftir á ströndinni,“ bætir
hann hlæjandi við.
Dansað fram eftir nóttu
áramótasöngur }
Sjaldan eru jafn margir í þörf
fyrir leigubíla og á gamlárs-
kvöld og nýársnótt.
Hjá Bifreiðastjórafélaginu Frama
fengust þær upplýsingar að taxti
leigubíla hækkar um 35% frá
hádegi á gamlársdag og fram til
miðnættis á nýársdag. Startgjald
er 660 krónur og meðan bíll er í bið
er gjaldið 6.280,15 á klukkustund-
ina án startgjalds. Kílómetragjald-
ið á helgidögum er 201,36 krónur
innanbæjar. Flestir leigubílstjórar
eru að vinna á þessum degi en 560
leigubílar eru á Reykjavíkur- og
Suðurnesjasvæðinu.
Að sögn Hjalta Hafsteinssonar,
stjórnarmanns í Frama er fólk
almennt þolinmótt og kurteist á
gamlárskvöld og reiknar með því
að fá ekki leigubíl um leið og hann
er pantaður. Hann segir það hins-
vegar verra þegar fólk hringir á
allar stöðvar og pantar bíl á hverri
stöð í þeirri von að komast fyrr
ferða sinna.
Mig vantar
leigubíl!
NAUTSTERKIR
Í KJÖTI