Fréttablaðið - 30.12.2006, Qupperneq 80
Menn viknanna 2006
Fastur þáttur í Fréttablaðinu er „Maður vikunnar“ en þar er reynt að varpa ljósi á þá sem eru í deiglunni hverju sinni -- hvern
mann sá hefur að geyma. Við greinarnar dró Helgi Sigurðsson teiknari upp mynd af viðkomandi. Jakob Bjarnar Grétarsson
fór niður á Landsbókasafn, fletti blaðinu ár aftur í tímann og fann hverjir voru í sviðsljósinu í hverri viku um sig. Með því má
fá nokkra mynd af fólkinu sem var áberandi á árinu 2006 – og þá ekki síður hvers kyns þeir menn eru sem þykja fréttamatur:
Íþróttamenn, stjórnmálamenn, embættismenn, popparar og viðskiptaforkólfar.
Reið á vaðið með að vera til-
nefndur maður vikunnar
árið 2006. Hann enda sagður
ákafur og metnaðargjarn.
Skarphéðinn var í deiglunni
vegna umræðna sem spunn-
ust um starfslokasamninga
við fráfarandi forstjóra FL
Group – Ragnheiði Geirs-
dóttur. Skarphéðinn er sagð-
ur þægilegur í umgengni,
tilbúinn að hlusta á rök annarra en langt í
frá skaplaus og fastur fyrir.
DV var mjög til umræðu í
upphafi árs en reiðialda
fór um þjóðfélagið í sam-
bandi við Ísafjarðarmál
svokallað. Sem leiddi til
uppsagnar Jónasar og
Mikaels Torfasonar, með-
ritstjóra hans. Jónas er
sagður harður í horn að
taka en sanngjarn. Prins-
ippmaður mikill í blaðamennsku, elskur að
hestum og matarmenningu eins og fjölmörg
rit hans bera með sér.
Hreystimennið og hug-
sjónamaðurinn Steingrím-
ur var í fréttum þegar
hann lenti í bílveltu í Ból-
staðarhlíð. Engum dylst að
Steingrímur er pólitíkus af
lífi og sál, fastur fyrir og
snjall órator. Steingrímur
er jafnframt íþróttamaður
mikill og göngugarpur.
Emilíana vann til þrennra tónlistarverð-
launa á hátíð Íslensku tón-
listarverðlaunanna. Emilí-
ana er sögð þægileg í
umgengni, hreinskilin og
fólk veit hvar það hefur
hana. Örlátur og lífsglaður
húmoristi og uppátækja-
söm með eindæmum. Hug-
myndarík og ósérhlífin.
Viggó er einhver umdeildasti maður íþrótta-
heimsins og þegar hann komst í kastljósið
var það vegna yfirlýsinga þess efnis að
hann væri herforingi þess sem hann kallaði
landslið á heimsmælikvarða. Strákarnir
okkar. En þó tilþrifamikill sé á vellinum
segja þeir sem til þekkja að
Viggó sé hvers manns hug-
ljúfi og rólyndismaður með
afbrigðum. En stökkbreyt-
ist þegar dómarinn flautar
til leiks. Sannur heimilisfað-
ir en hvers kyns íþróttir eru
helstu áhugamálin: Hand-
bolti þó einkum og golf.
Kristján hleypti mikilli orrahríð af stað
þegar hann sagði reglur í undankeppni
Eurouvision-keppninnar
þverbrotnar – myndband
Silvíu Nóttar hefði lekið á
netið fyrir keppni með
ófyrirsjáanlegum afleið-
ingum. Kristján er sagð-
ur frjór og lifandi, óeigin-
gjarn maður sem vill
hvers manns vanda leysa.
Viðræðugóður en á það til
að vera þrjóskur og
fylginn sér – eins og
Eurovision-málið sýnir.
Dugnaðarforkurinn Heiðar sló í gegn með
tveimur mörkum með
Fullham gegn Newcastle.
Hann er sagður ljúflingur
sem breytist í villidýr á
vellinum. Fylginn sér og
heiðarlegur maður sem
kemur til dyranna eins og
hann er klæddur. Heiðar
er sagður maður með báða
fætur á jörðinni og ekki
fyrir fíflagang.
Fjárfesting hans á þrjú þúsund sæta kvik-
myndahúsi í Kaupmanna-
höfn kom Árna í sviðsljósið
í febrúar. Árni er sagður
horfa fram veginn og grípa
tækifærin þegar þau gef-
ast. Veigrar sér ekki við að
taka til hendinni þegar svo
ber undir, veður í verkin og
hvergi fyrir fordild. Viður-
kennir fúslega að afþrey-
ingarmyndir höfði meira
til hans en þær sem flokk-
ast listrænar.
Eyjólfur var í deiglunni þetta árið vegna
sigra og ósigra knattspyrnu-
landsliðsins. Eyjólfur er
íþróttamaður í húð og hár,
metnaðargjarn og dugmikill.
Eyjólfur vakti snemma
athygli sem afreksmaður í
körfu- og fótbolta. Hann ein-
kennir prúðmennska í allri
framgöngu, kurteis og býður
af sér góðan þokka. Því er
tekið mark á Eyjólfi þegar hann tekur til
máls, því þessi mikli fjölskyldumaður er
ekki fyrir óþarfa gaspur. Hestamaður, kylf-
ingur og veiðimaður og kýs fremur útivist
og sveitasælu en sollinn.
Rúna í Stígamótum er sögð ein þeirra sem
þora, vilja og geta. Sterkar hugsjónir og rík
réttlætiskennd einkenna Guðrúnu sem var í
kastljósi fjölmiðla á alþjóðlegum baráttu-
degi kvenna en þá fögnuðu Stígamót 16 ára
afmæli sínu. Rúna er sögð
ósérhlífin og fylgin sér, líf-
leg og skemmtileg. Hún er
ávallt tilbúin að berjast
fyrir málstað sínum, fer þá
fram af einurð en er sögð
ljúf og glaðlynd meðal vina
og fjölskyldu – hefur
gaman af að elda góðan
mat og stunda göngur og
útivist.
Hefur verið mikið í fréttum
allt þetta ár en hann er lög-
maður Baugs sem staðið
hefur í málaferlum í hinum
svokölluðu Baugsmálum.
Gestur er sagður mikill
húmoristi sem tekur gjarn-
an upp golfkylfuna þegar
vinnu lýkur. En sem lögmað-
ur þykir hann agaður og
fljótur að greina hismið frá
kjarnanum. Gestur er vinnusamur félags-
málafrömuður og hefur sem slíkur bæði
unnið mikið fyrir Golfklúbb Reykjavíkur
og Lögmannafélagið.
Höfundur Draumalandsins, sem hlýtur að
teljast með bókum árs-
ins, var mjög í deiglunni
allt þetta ár. Í umsögn
heimildarmanna Frétta-
blaðsins um manninn á
bak við bókina kemur
þetta fram: Fluggreind-
ur, einstaklega frjór,
skapandi og mikil til-
finningavera, ljúfmenni
og náttúrubarn.
Þessi ástsæli norðanmaður
fagnaði fimmtíu ára leikaf-
mæli sínu á árinu. Þráinn
býr yfir miklum listrænum
hæfileikum, ekki bara í
leiklistinni heldur einnig
myndlist. Þráinn er sagður
drengur góður, einstakur
vinur í gleði og sorg. Illsak-
ir treður hann ekki við nokkurn mann en rík
réttlætiskenndin gerir að hann stendur fast-
ur á sínu ef svo ber undir.
Miklar deilur hafa staðið um framtíð RÚV
allt árið og í þeim umræðum
hefur Ögmundur farið mik-
inn. Ögmundur er sagður stál-
heiðarlegur, heilsteyptur og
hamhleypa til verka. Á þó til
að færast of mikið í fang því
hann vill gera allt sjálfur.
Hugsjónamaður en sagður
geta slegið á létta strengi og
gert grín að sjálfum sér.
Tryggvi kemur reglulega
fram í sviðsljósið í tengsl-
um við eitt og annað sem
snýr að efnahagsmálum
þjóðarinnar. Hann er sagð-
ur skarpgreindur og eigi
til að fá dellu fyrir einu og
öðru. Á auðvelt með að sjá
spaugilegar hliðar á til-
verunni og deilir því með
vinum sínum, ósnobbaður
og laus við alla komplexa.
Úrræðagóður vinur vina sinna sem ekki
liggur á skoðunum sínum.
Seðlabankinn var stöðugt í fréttum árið
2006 og er aðalhagfræðingurinn, Arnór,
sagður heilsteyptur og hógvær maður – sér-
lega hógvær. Stefnufastur og samkvæmur
sjálfum sér. Arnór er sagð-
ur yfirvegaður og með
báða fætur á jörðinni.
Arnór, sem er af þýskum
ættum, ólst upp á menn-
ingarheimili og í sveit.
Ber þess merki, er grúsk-
ari og unnandi klassískrar
tónlistar. Þá er hann mikill
heilsuræktarskokkari og
fjölskyldumaður.
Logi vann sér það til
frægðar í maí að verða
Evrópumeistari í hand-
knattleik með liði sínu
Lemigo. Logi þykir góður
félagi og sparar ekki að
hrósa félögum sínum ef
svo ber undir. Hann er
sagður grallari, hrekkja-
lómur sem á í fórum
sínum ýmsar skemmtileg-
ar sögur en um leið agað-
ur og reglusamur. Stefnu-
fastur vel því alltaf lá fyrir að hann ætlaði
sér að verða afreksmaður í íþróttum. Þá er
snyrtimennsku hans við brugðið.
Konan á bak við dekur-
drósina Silvíu Nótt var
maður vikunnar. Enda þá
Eurovision-keppnin mál
málanna. Silvía Nótt var
framlag Íslands sællar
minningar. Ágústa Eva
er sögð ekki vitund lík
Silvíu heldur eigi jafnvel
til feimni og láti vinsældir ekki stíga sér til
höfuðs þó hún kunni að mjólka þessar sömu
vinsældir.
Strax í maí voru hlerunar-
mál komin í fréttir og
sagnfræðingurinn Guðni
maðurinn sem með grúski
sínu opnaði það mál. Hann
er sagður drengur góður,
fylginn sér en jafnframt
frekar feiminn og hlé-
drægur. Lífsnautnamaður,
sælkeri og áhugamaður
um íþróttir.
Oddviti Vinstri hreyfingar-
innar – græns framboðs var í
brennidepli í borgarstjórnar-
kosningum. Eina konan sem
leiddi lista í Reykjavík og
þótti sýna leiðtogahæfileika
og rökfestu í málflutningi.
Hún er sögð skarpgreind og skemmtileg,
músíkölsk með afbrigðum og skemmtilegur
vinur vina sinna.
Fimmtugsafmæli Bubba
fór ekki fram hjá
nokkrum manni. Honum
er lýst sem orkubolta,
hann er dellukarl dellu-
karlanna, ástríðumaður
í hverju sem hann tekur
sér fyrir hendur, hug-
sjónamaður og leyfir sér
að skipta um skoðun ef
svo ber undir.
Glæsilegur sigur íslenska
landsliðsins á Svíum færði
kastljósið á landsliðsþjálfar-
ann og keppnismanninn
Alfreð. Hann er sagður gríð-
arlega duglegur, maður sem
leggur sig 110 prósent fram í
því sem hann tekur sér fyrir
hendur: Fullur sjálfstrausts, samkvæmur
sjálfum sér en á til að vera eilítið þver.
Femínistar máluðu
bæinn bleikan þegar 91
ár var liðið frá því að
íslenskar konur fengu
kosningarétt. Katrín
Anna fór þar fyrir
flokki, femínisti af lífi
og sál og óþreytandi í
baráttunni. Sögð ham-
hleypa til allra verka
og drífur fólk með sér.
Sögð skarpgreind og
skipulögð – en þrjósk. Og… hefur gaman að
matseld og bakstri, húsmóðir góð sem er
fyrir útivist.
Mannasættirinn Jón
stökk beint í sviðsljós-
ið þegar hann tók við af
Halldóri Ásgrímssyni
sem formaður Fram-
sóknarflokksins. Hann
er sagður greindur,
skemmtilegur og
hrokalaus húmoristi.
Fróður, skipulagður,
skáldmæltur, ráðagóð-
ur – með hjarta úr gulli. Bráður, klaufskur,
fastur fyrir og full hreinskiptinn á stund-
um.
Komust í deigluna þegar þeir gengu aftur
til liðs við æskufélag sitt ÍA. Kallaðir Beck-