Fréttablaðið - 30.12.2006, Page 84
Svartasta skammdegið er besti tíminn til að leggja land undir fót. Núna þegar
jólaljósin fara að dofna er tilvalið að skella sér eitthvað langt út í heim, þar
sem sólin skín og fjöllin eru blá. Það sakar allavega ekki að láta sig dreyma
og mælum við með Lonelyplanet.com til að freistast. Heimurinn er sífellt að
minnka. Hægt er að ná sér í ódýr fargjöld til London eða Kaupmannahöfn
og þaðan eru allir vegir færir. Sífellt fleiri perlur uppgötvast í heiminum og
ferðamannastaðir eru eins og allt annað háðir tískustraumum. Hanna Björk
Valsdóttir kynnti sér hvaða staðir eru „heitir“ í ferðabransanum árið 2007.
Heitustu áfangastaðirnir 2007
Maldíveyjar eru 1.190 litlar kóraleyjar suð-vestur af Sri-Lanka sem
lokka ferðamenn til sín með loforði um „síðastu paradís á jörð“. Ef þín
hugmynd um paradís er ósnortin, friðsæl, hitabeltiseyja með pálma-
trjám, hreinum, hvítum ströndum og túrkisbláum lónum þá eru
Maldíveyjar rétti staðurinn. Mögnuð kóralrif og litríkt neðarsjávarlíf
gerir Maldíveyjar að paradís kafaranna. „Síðasta paradís á jörð“
hefur nú verið byggð upp eftir tsunami og nýir lúxus ferðamanna-
staðir setja Maldíveyjar á kortið fyrir 2007.
Ekki aðeins fallegasta borgin í Suður-Ameríku heldur líka heimili falleg-
asta fólks í heimi. Þrátt fyrir efnahagsvandræði Argentínu eru munaðir
Buenos Aires jafn freistandi og áður, glæsileg höfuðborg þar sem evrópsk
fágun og ástríðufull menning mætast, og náttúruundur allt um kring. Ef þú
vilt fá mest fyrir peninginn þá ferðu til Buenos Aires, efnahagsástandið
gerir það að einum ódýrasta áfangastaðnum í heiminum í dag. Ekki spillir
fyrir ef þú kannt eitthvað í fótbolta, þá líður þér strax eins og innfæddum.
Í Asíu hefur lengi verið í tísku að
ferðast til Taílands og Kambódíu
en Bangladesh virðist ætla að taka
við sem nýi staðurinn þar sem
töfrar Asíu fá að njóta sín. Núna
er málið að heimsækja þetta sér-
staka land áður en túristarnir
hrúgast inn. Þetta gróskumikla
land býr yfir langri sögu og þar
finnast yfir 2000 ára fornminjar,
lengsta strönd í heimi og stærsti
fenjaskógur veraldar.
Karabíska hafið klikkar aldrei. San Juan lítur út eins og Havana á Kúbu fyrir
byltingu og iðandi salsatónlist hljómar um göturnar þar sem Pina Colada er
drukkið frá morgni til kvölds. Náttúruperlur Puerto Rico eru í dagsfjarlægð
frá borginni. Skelltu þér í El Yunque regnskóginn þar sem yfir 400 plöntur,
litríkir páfagaukar og „couqi“ froskurinn þrífast. Heimsóttu Culebra, eyði-
eyju í hálftíma flugfjarlæð, ósnortin hvít ströndin var valin ein af tíu bestu
ströndum í heimi. Sjávarrifin allt um kring eru paradís fyrir snorklara.
Nýjasta brjálæðið í Mið-Austurlöndum er Dubai í Sameinuðu fursta-
dæmunum sem voru stofnuð 1971. Þar er allt að finna sem olíupeningar
geta keypt eða byggt. Sannkallaður framandi lúxus. Skýjagljúfrar og
verslunarmiðstöðvar í vestrænum stíl í bland við arabíska menningu.
Viltu eyðimerkursafarí eða versla föt eftir aðalhönnuðina? Fjöll, strand-
ir, eyðimerkur, markaðir og hin fræga tollfrjálsa verslun gerir Dubai að
hrífandi borg ólíkri öllum öðrum í heiminum.
Í janúar er heldur betur tilvalið að skella sér í safari á kameldýri í
Thar-eyðimörkinni, sofa á sandhóli, sjá gasellur, búa til „chapatti“
yfir opnum eldi, hitta eyðimerkurþorpsbúa sem rækta bæði vatns-
melónur og hveiti í sandinum. Frá borginni Jaisalmer er hægt leggja
af stað út í eyðimörkina, Rajastan-hérað er líka það litríkasta á Ind-
landi og allar konur mjög fagurlega skreyttar skartgripum.