Fréttablaðið - 30.12.2006, Síða 92
Sýndi og sannaði að hann hefur engu
gleymt með ummælum sínum um „tækni-
leg mistök“. En Árni þekkir sína þjóð betur
en nokkur annar. Á það hefur verið bent
oftar en einu sinni og oftar en tvisvar að þó
þjóðin sé refsiglöð, og þar með sé fyrir-
gefningin ekki endilega ofarlega á blaði,
þá hafa kjósendur minni á við gúbbífiska.
Þrátt fyrir sigra og velgengni á
árinu stendur það upp úr þegar hún
flaug á hausinn á Broadway eins og
belja á svelli. En þó svo að þar hafi
þeir sem hafa ekkert allt of þróað-
an húmor fengið sitthvað fyrir sinn
snúð, þá hélt hún reisn sinni og
steig á fætur jafn gullfalleg og allt-
af. Og „kikkstartaði“ glanstímariti
Reynis Traustasonar sem reyndi
þar án árangurs að binda endi á
fjölmiðlaþátttöku hennar. Sem er galin hugmynd.
Ber ábyrgð á því að ofurfallegir
jólatónleikar með þekktum
söngdívum breyttust í martröð
þar sem ríkti brjálað umferðar-
öngþveiti – skipulagsslys. Sem
varð til þess að fagur jólasöng-
ur féll í skuggann sem er skaði.
Smekkur þeirra og skynbragð
á það sem er „flott“ og „kúl“ og
„inn“ er óbrigðull. En hugsan-
lega ofmátu þessir elskuðu og
dáðu og virtu fjölmiðla-
menn stöðu
sína þegar
þeir flögg-
uðu yfir-
lýsingum á
borð við
„ógeð“ og
„viðbjóður“
um ástand
venjulegr-
ar íbúðar
Ásgeirs
fyrir breytingar í Innlit/útlit.
Ummælin ollu miklu fjaðrafoki.
Margir spurðu sig hvernig tals-
máti þeirra félaga væri eigin-
lega þegar ekki væri kveikt
á myndavélunum.
Söngkonan Britney Spears á ekki
sjö dagana sæla um þessar mund-
ir því nú hefur ein stærsta aðdá-
endasíða henni til heiðurs ákveðið
að hætta allri starfsemi. Ritstjóri
og umsjónarmaður WorldofBritn-
ey.com, Ruben Gray, lýsti þessu
yfir við fjölmiðla í gær og sagði
að poppprinsessan hefði misst
sjónar á því sem hún stóð eitt sinn
fyrir. „Britney hefur glatað sjálfs-
myndinni og trúverðugleikanum
gagnvart aðdáendum sínum,“
sagði Gray. „Heimasíðan hefur
því sagt sitt síðasta orð, ekki
vegna þess að ég hafi ekki tíma
fyrir hana heldur af þeirri ein-
földu ástæðu að Britney Spears er
búin að vera í mínum augum,“
bætti Gray við.
Samkvæmt götublaðinu The
Sun virðast aðdáendur Britneyjar
Spears vera að snúa baki við átrún-
aðargoði sínu en hegðun hennar
þykir ekki sæma tveggja barna
móður. Þrátt fyrir hástemmdar
yfirlýsingar Spears á bloggsíðu
sinni um að hún hygðist taka sér
tak er ekkert lát á fréttum um
ósiðlegan klæðnað hennar á opin-
berum stöðum en Spears virðist
vera farin að leggja það í vana
sinn að fara út á lífið án undirfata.
Aðdáendur Britneyjar Spears hverfa
Árið 2006 var um margt eftirminnilegt. Örfá atvik og gjörðir land-
ans standa þó upp úr. Fréttablaðið tók saman lista yfir fólkið sem
gerði árið ógleymanlegt.
Þeir sem allt þykjast vita um refilstigu tón-
listar supu hveljur þegar spurðist að ann-
arrar deildar sveitaballapoppari hefði kom-
ist áfram í Rock Star þáttunum. Hvað
myndu hinir „ofursvölu“ LA–rokkarar
halda um Ísland. En allt fór á annan veg.
Magni ekki bara sló í gegn og sveitaballa-
bransinn hlaut verðskuldaða uppreisn æru
og Magni bjargaði í leiðinni Skjá einum og
rakaði saman seðlum fyrir Símann í formi
SMS-skeyta.
Gullkálfur ársins
Upprei
snarmenn ársins
Bubbi „eat your heart out“. Arftakarnir
koma úr óvæntri átt sannast sagna. Nylon-
stelpurnar eru einu poppararnir sem mót-
mæltu hvalveiðum af einhverju viti með
því að hætta við útgáfu plötu sinnar á Bret-
landseyjum í kjölfari þess að Einar K.
leyfði Kristjáni Loftssyni vini sínum að
fara á ryðkláfi út á Ballarhaf og skutla
nokkrar langreyðar með ófyrirsjáanleg-
um afleiðingum.
Skrautleg ökuferð
Eyþórs, þegar hann
keyrði á staur og
reynda að ljúga sig út
úr því máli varð
fréttamatur á árinu.
„Hér er staur, en það
er allt í lagi því ég er
he-he-hermaur,“ mun
Eyþór hafa sagt þegar
hann klessti á staurinn. En batnandi mönnum er best að
lifa og Eyþór fór í meðferð, þó hann ætti ekki við neitt
sérstakt áfengisvandamál að stríða, sem gerir hann að
AA-manni ársins.
AA-maður ársins
Eyddi hálfu árinu í að berjast
fyrir að endurheimta titilinn
Herra Ísland eftir að Elín Gests-
dóttir svipti hann honum með
fruntalegum hætti. Svo má aftur
um það deila hvort þarna hafi
verið til mikils að vinna.
Baráttumaðurársins
Grái fiðringur
ársins
Einlægni Bubba hefur
meðal annars gert hann
að því sem hann er. Þjóð-
in elskar hann fyrir að
segja hlutina eins og þeir
eru. Grái fiðringurinn er
staðreynd og Bubbi fer
ekki í felur með það. Þess
vegna tók þjóðin af heil-
um hug þátt í fimmtugs-
afmælisveislu sem Glitn-
ir og Vodafone héldu
goðinu sem kórónaði gott ár með því að bjóða nýjum
tengdapabba sínum, árinu eldri, til veislu.
Sýndu og sönnuðu að ástin sigrar. Þeim er að þakka að
Jói í Kompás er sjónvarpsmaður ársins. Og broddborg-
urum landsins þykir vænna um mjúk rúm sín vitandi af
því að til er það hlutskipti að vera á götunni.
Hjón ársins
Fagurkerar ársins
Tónlei
kahaldariársins
Gyðja ársins
Pólitíkus ársins