Fréttablaðið - 15.02.2007, Page 76

Fréttablaðið - 15.02.2007, Page 76
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. „[Golf] hefur þann gífurlega kost að þar eiga margar kynslóðir samleið og geta skemmt sér saman burtséð frá aldri og uppruna eða stétt.“ Tugir farast í Boeing-slysi Þóra Karitas Árnadóttir stígur fyrstu skref sín á leiklistarbrautinni hjá Leik- félagi Akureyrar, en sporin þau liggja ansi nálægt fótsporum föður hennar, Árna Blandon. Þóra er aðstoðarmaður leikstjórans Kjartans Ragnarssonar, en hann og Árni gerðu garðinn frægan sem Hattur og Fattur hér á árum áður. „Ég er nú ekki að leika Fatt,“ sagði Þóra hlæjandi og vildi ekki meina að hún fetaði beinlínis í fótspor föður síns. Hún þreytir frumraun sína á sviði í Svörtum ketti og aðstoðar Kjart- an í uppsetningu á Lífinu, útskriftar- verkefni nemenda á leiklistarbraut í Listaháskóla Íslands. Í svörtum ketti leikur Þóra meðal annars á móti Þráni Karlssyni, en hann lék einnig í fraum- raun Árna Blandon í Þjóðleikhúsinu. „Það er svolítið skemmtilegt,“ sagði hún. „Svo er ég alveg rosalega heppin að fá að fylgjast með því hvernig Kjart- an vinnur. Hann hefur átt stóran stað í hjarta mínu sem leikhúsmaður mjög lengi,“ sagði Þóra, sem segir Sauma- stofuna, sem er eftir Kjartan, hafa verið fyrstu leikhúsupplifunina sem hreyfði við henni. „Ég sá hana á Hellu þegar ég var lítil. Þar var stelpa sem söng tregafullan söng um litla son sinn sem dó. Ég fékk þetta alveg á heilann og var alltaf syngjandi þetta fullum hálsi úti á túni,“ sagði Þóra hlæjandi. Grandavegur 7 og Sjálfstætt fólk, í leikstjórn Kjartans, eru jafnframt á meðal uppáhaldssýninga Þóru. „Mér finnst alveg frábært að fá að vera fluga á vegg, Kjartan er einn af okkar merk- ustu leikhúsleikstjórum,“ sagði Þóra. Sjálf man hún þó lítið eftir Kjartani í hlutverki Hattar. „Ég kynntist honum náttúrlega ekki mikið á þeim tíma, ég var varla farin að tala. Ég man meira eftir hljómplötunni sem var gefin út, en þar var Gísli Rúnar í stað Kjartans. Það var eiginlega seinna sem ég fatt- aði að Kjartan var upphaflegi Hattur- inn,“ sagði Þóra. Þóra er enn með annan fótinn í London, þar sem hún var í námi. „Ég hef samt alltaf séð fyrir mér að ég myndi vinna í íslensku leikhúsi. Þetta byrjaði líka sem svona sveitastelpu- draumur þegar ég sá Saumastofuna á Hellu. Hjartað mitt er í því, ekki ein- hverjum frægðardraumum,“ sagði Þóra, sem getur því alveg hugsað sér að snúa aftur til Akureyrar í framtíð- inni. „Þetta leikhús er mjög ofarlega á óskalistanum mínum. Það er mikill metnaður í því, gott verkefnaval og gott fólk. Þegar maður er nýkominn út úr leiklistarskóla er það bara draum- ur,“ sagði hún ánægð. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Árni Ingólfsson Dvalarheimilinu Kjarnalundi (Áður Víðivöllum 4, Akureyri) lést á Dvalarheimilinu Kjarnalundi 10. febrúar og verður jarðsunginn frá Höfðakapellu föstudaginn 16. febrúar kl. 11. Sólveig Vilhjálmsdóttir Vilhjálmur Ingi Árnason Tryggvi Árnason Björg S. Skarphéðinsdóttir Ingibjörg Bryndís Árnadóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Þorsteinn Daníel Marelsson rithöfundur, Unufelli 27, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fella- og Hólakirkju föstudag- inn 16. febrúar kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Hólmfríður Geirdal Margrét G. Þorsteinsdóttir Bjarni Valur Valtýsson Árni Freyr Þorsteinsson Marel Þorsteinsson Emilia Fonseca og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamamma og amma, María G. Sigurjónsdóttir frá Fosshólum, Furugrund 68, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni aðfaranótt 13. febrú- ar. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 20. febrúar kl. 15.00. Ingibjörg Bjarnadóttir Arndís Bjarnadóttir Pétur Már Pétursson Einar S. Bjarnason Elín Þóra Sverrisdóttir Guðrún Björk Bjarnadóttir Páll Guðmundsson Ásmundur Bjarnason Sigrún Davíðsdóttir og barnabörn. Elskulegur eiginmaður minn Guðjón B. Guðmundsson Seljalandi, Dalabyggð, er látinn. Fyrir hönd aðstandenda Guðrún J. Gunnarsdóttir. Eiginkona mín og móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, Björg Sigurrós Jóhannsdóttir, Mið-Mói í Fljótum, andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu Akureyri laug- ardaginn 3. þessa mánaðar. Útför hennar fer fram laugardaginn 17. þessa mánaðar. Athöfnin hefst í Sauðárkrókskirkju kl. 13.00. Jarðsett verður að Barði í Fljótum. Páll Ragnar Guðmundsson Guðmundur Óli Pálsson Guðrún Kristín Kristófersdóttir Sigríður Pálsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Geir Harðarson Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Guðbjargar Jóhannsdóttur Búðargerði 5, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Fríðuhúss og starfsfólks Landakotsspítala fyrir góða umönnun og hlýhug. Ásta G. Guðbrandsdóttir Garðar Ágústsson Jóhanna J. Guðbrandsdóttir S. Stefán Ólafsson Jón Marinó Guðbrandsson Elín Elísabet Baldursdóttir Anna Kristín Guðbrandsdóttir Benjamín M. Kjartansson Guðbjörg Jóna Jóhanns ömmubörn og langömmubörn. Ástkær faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, Teitur Kjartansson Vörðum, Landsveit, áður bóndi í Flagbjarnarholti, verður jarðsunginn frá Skarðskirkju, Landsveit, föstudaginn 16.febrúar kl 14.00. Brynjólfur Teitsson Guðrún Þorleifsdóttir Margrét Teitsdóttir Kristrún Kjartans Aðalbjörn Þór Kjartansson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.