Fréttablaðið - 15.02.2007, Blaðsíða 76
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
„[Golf] hefur þann gífurlega
kost að þar eiga margar
kynslóðir samleið og geta
skemmt sér saman burtséð frá
aldri og uppruna eða stétt.“
Tugir farast í Boeing-slysi
Þóra Karitas Árnadóttir stígur fyrstu
skref sín á leiklistarbrautinni hjá Leik-
félagi Akureyrar, en sporin þau liggja
ansi nálægt fótsporum föður hennar,
Árna Blandon. Þóra er aðstoðarmaður
leikstjórans Kjartans Ragnarssonar,
en hann og Árni gerðu garðinn frægan
sem Hattur og Fattur hér á árum
áður.
„Ég er nú ekki að leika Fatt,“ sagði
Þóra hlæjandi og vildi ekki meina að
hún fetaði beinlínis í fótspor föður
síns. Hún þreytir frumraun sína á
sviði í Svörtum ketti og aðstoðar Kjart-
an í uppsetningu á Lífinu, útskriftar-
verkefni nemenda á leiklistarbraut í
Listaháskóla Íslands. Í svörtum ketti
leikur Þóra meðal annars á móti Þráni
Karlssyni, en hann lék einnig í fraum-
raun Árna Blandon í Þjóðleikhúsinu.
„Það er svolítið skemmtilegt,“ sagði
hún. „Svo er ég alveg rosalega heppin
að fá að fylgjast með því hvernig Kjart-
an vinnur. Hann hefur átt stóran stað í
hjarta mínu sem leikhúsmaður mjög
lengi,“ sagði Þóra, sem segir Sauma-
stofuna, sem er eftir Kjartan, hafa
verið fyrstu leikhúsupplifunina sem
hreyfði við henni. „Ég sá hana á Hellu
þegar ég var lítil. Þar var stelpa sem
söng tregafullan söng um litla son sinn
sem dó. Ég fékk þetta alveg á heilann
og var alltaf syngjandi þetta fullum
hálsi úti á túni,“ sagði Þóra hlæjandi.
Grandavegur 7 og Sjálfstætt fólk, í
leikstjórn Kjartans, eru jafnframt á
meðal uppáhaldssýninga Þóru. „Mér
finnst alveg frábært að fá að vera fluga
á vegg, Kjartan er einn af okkar merk-
ustu leikhúsleikstjórum,“ sagði Þóra.
Sjálf man hún þó lítið eftir Kjartani
í hlutverki Hattar. „Ég kynntist honum
náttúrlega ekki mikið á þeim tíma, ég
var varla farin að tala. Ég man meira
eftir hljómplötunni sem var gefin út,
en þar var Gísli Rúnar í stað Kjartans.
Það var eiginlega seinna sem ég fatt-
aði að Kjartan var upphaflegi Hattur-
inn,“ sagði Þóra.
Þóra er enn með annan fótinn í
London, þar sem hún var í námi. „Ég
hef samt alltaf séð fyrir mér að ég
myndi vinna í íslensku leikhúsi. Þetta
byrjaði líka sem svona sveitastelpu-
draumur þegar ég sá Saumastofuna á
Hellu. Hjartað mitt er í því, ekki ein-
hverjum frægðardraumum,“ sagði
Þóra, sem getur því alveg hugsað sér
að snúa aftur til Akureyrar í framtíð-
inni. „Þetta leikhús er mjög ofarlega á
óskalistanum mínum. Það er mikill
metnaður í því, gott verkefnaval og
gott fólk. Þegar maður er nýkominn út
úr leiklistarskóla er það bara draum-
ur,“ sagði hún ánægð.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Árni Ingólfsson
Dvalarheimilinu Kjarnalundi
(Áður Víðivöllum 4, Akureyri)
lést á Dvalarheimilinu Kjarnalundi 10. febrúar og
verður jarðsunginn frá Höfðakapellu föstudaginn 16.
febrúar kl. 11.
Sólveig Vilhjálmsdóttir
Vilhjálmur Ingi Árnason
Tryggvi Árnason Björg S. Skarphéðinsdóttir
Ingibjörg Bryndís Árnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Þorsteinn Daníel Marelsson
rithöfundur, Unufelli 27, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fella- og Hólakirkju föstudag-
inn 16. febrúar kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hans
er bent á Krabbameinsfélagið.
Hólmfríður Geirdal
Margrét G. Þorsteinsdóttir Bjarni Valur Valtýsson
Árni Freyr Þorsteinsson
Marel Þorsteinsson Emilia Fonseca
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamamma og
amma,
María G. Sigurjónsdóttir
frá Fosshólum, Furugrund 68,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni aðfaranótt 13. febrú-
ar. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju þriðjudaginn
20. febrúar kl. 15.00.
Ingibjörg Bjarnadóttir
Arndís Bjarnadóttir Pétur Már Pétursson
Einar S. Bjarnason Elín Þóra Sverrisdóttir
Guðrún Björk Bjarnadóttir Páll Guðmundsson
Ásmundur Bjarnason Sigrún Davíðsdóttir
og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn
Guðjón B. Guðmundsson
Seljalandi, Dalabyggð,
er látinn.
Fyrir hönd aðstandenda
Guðrún J. Gunnarsdóttir.
Eiginkona mín og móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
Björg Sigurrós Jóhannsdóttir,
Mið-Mói í Fljótum,
andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu Akureyri laug-
ardaginn 3. þessa mánaðar. Útför hennar fer fram
laugardaginn 17. þessa mánaðar. Athöfnin hefst í
Sauðárkrókskirkju kl. 13.00. Jarðsett verður að Barði í
Fljótum.
Páll Ragnar Guðmundsson
Guðmundur Óli Pálsson Guðrún Kristín Kristófersdóttir
Sigríður Pálsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir Harðarson
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og vináttu við andlát móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Guðbjargar Jóhannsdóttur
Búðargerði 5, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Fríðuhúss og starfsfólks
Landakotsspítala fyrir góða umönnun og hlýhug.
Ásta G. Guðbrandsdóttir Garðar Ágústsson
Jóhanna J. Guðbrandsdóttir S. Stefán Ólafsson
Jón Marinó Guðbrandsson Elín Elísabet Baldursdóttir
Anna Kristín Guðbrandsdóttir Benjamín M. Kjartansson
Guðbjörg Jóna Jóhanns
ömmubörn og langömmubörn.
Ástkær faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir,
afi, langafi og langalangafi,
Teitur Kjartansson
Vörðum, Landsveit, áður bóndi í
Flagbjarnarholti,
verður jarðsunginn frá Skarðskirkju, Landsveit,
föstudaginn 16.febrúar kl 14.00.
Brynjólfur Teitsson Guðrún Þorleifsdóttir
Margrét Teitsdóttir
Kristrún Kjartans Aðalbjörn Þór Kjartansson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn