Fréttablaðið - 15.02.2007, Blaðsíða 78
Ég las það nýlega í frétt-
um að um það bil einn af
hverjum þremur Bretum
teldi að með því að hoppa
upp og niður, þvo sér vel
eða pissa gætu konur
komið í veg fyrir þungun
eftir samfarir. Þetta er niður-
staða nýrrar könnunar sem var
framkvæmd í Bretlandi til að undir-
búa herferð um getnaðarvarnir.
Ég stóð mig að því að hlæja innra
með mér við lesturinn og efast stór-
lega um að ég hafi verið sá eini.
Þetta sýndi bara muninn á ein-
hverju lágstéttarpakki og vel upp-
lýstu velferðarríki, eins og því sem
ég bý í, þar sem engum manni dytti
í hug að einhver regndans gæti
reddað málunum.
Mér var hins vegar ekki hlátur í
huga þegar las ég aðra frétt sem
greindi frá fjölgun klamydíutilfella
hérlendis úr 1.622 frá árinu 2005 í
1.729 árið 2006. Klamydía greindist
oftast hjá fólki á aldursbilinu 20-24
ára, þar á eftir í aldurshópnum 15-
19. Flest tilfelli voru hjá fólki á aldr-
inum 18-19 ára. Myndin af velupp-
lýsta velferðarríkinu sem ég hafði
gert mér af Íslandi hrundi til grunna
og glottið lak í skeifu.
Hvernig getur staðið á því að
klamydíutilfellum fjölgar í landi
þar sem öflugri kynfræðsu er hald-
ið úti, hugsaði ég með mér. Nei bíðið
við! Kynfræðsla hefur kannski ekki
verið sérstaklega öflug þegar öllu
er á botninn hvolft. Satt best að
segja man ég varla eftir neinu sér-
stöku átaki eftir smokkaáróðurinn á
9. áratugnum í kjölfar útbreiðslu
alnæmis. Það var sko skrítin her-
ferð maður... Megas, Valdís Gunn-
ars og Björk að teygja og toga
smokka, voða glöð, á meðan almenn-
ingur var að skíta á sig af hræðslu
við að smitast af alnæmi.
Hvað sem segja má um þá her-
ferð sýndi hún að minnsta kosti
vilja í verki. Getur verið að stjórn-
völd hafi sofnað á verðinum eftir
það? Hefur kynslóðin sem nú er að
vaxa úr grasi verið vanrækt á þessu
sviði eins og klamydíutilfellin í hópi
18-19 ára sýna? Þarf þá ekki að
grípa til róttækra aðgerða? Varla
viljum við að léleg kynfræðsla á
Íslandi verði að umfjöllunar- og
aðhlátursefni úti í heimi.
Sjáðu
hana!
Hún gengur
eins og henni
sé borgað fyrir
það!
Sjá hana fara og
skoða nýjan heim!
Og grípa í hluti sem eru
brothættir ....
Neeeiii!
Geisladiskar,
heilagir!
Skilurðu?
Heilagir!
Svona
pabbi ... Ég setti radd-
greiningarforrit í
tölvuna þína.
Hvað nota ég
það í? Þú talar bara við
tölvuna og tölvan
skrifar það sem þú
segir, það sparar
þér helling af tíma!
En ég skrifa
hraðar en ég
tala!
Og ég tala
hraðar en ég
hugsa, getur
forritið lagað
það?
Ég gefst
upp!
Mér þykir fyrir því
en ég þarf að gera
alla oddhvassa hluti
upptæka.
Vissir þú að þessu tré
var plantað af Jóhönnu
Ástþórdsóttur þegar
hún var í leikskóla fyrir
100 árum! Já, það skiptir öllu að
hugsa fram í tímann.
Hver
er að
hringja?
Ég
meina
hver
er að
banka?
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
N
A
T
33
63
8
08
/2
00
6