Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.02.2007, Qupperneq 86

Fréttablaðið - 15.02.2007, Qupperneq 86
Illugi Jökulsson spurninga- ljón verður í þéttum hópi 16 gáfumenna sem keppa í Meistaranum sem hefst fyrir alvöru í kvöld. Meðal keppenda er Karl Pétur Jónsson, tengdasonur for- setans. „Já, ég lét undan þrotlausum og gríðarlegum þrýstingi Loga Berg- manns,“ segir Illugi Jökulsson, ritstjóri með meiru. Hann mun taka þátt í Meistaranum en lengi vel lék vafi á um hvort Illugi myndi gefa kost á sér að nýju. Hann var meðal keppenda í fyrstu þáttaröð spurningaþáttarins Meistarans sem hefst nú í kvöld. Ekki er það árennilegur hópur gáfumenna sem takast á í Meist- aranum. Í hópnum eru 16 manns. Áður hefur Fréttablaðið nefnt til sögunnar Katrínu Jakobsdóttur, varaformann Vinstri grænna, og hinn mjög svo fróða Sigurð G. Tómasson útvarpsmann. Svan- borg Sigmarsdóttir blaðamaður verður meðal keppenda sem og þeir bræður Gísli þýðandi og Páll Ásgeir Ásgeirsson rithöfundur – alþekkt spurningaljón. Erlingur Sigurðsson, fyrrverandi safn- stjóri, Helgi Árnason skólastjóri (faðir Jónasar Arnar sigurvegara frá í fyrra) og Björn Guðbrandur Jónsson umhverfisfræðingur eiga það sammerkt með Illuga að hafa keppt í fyrra. Heiður almannatengla verja svo þeir Örn Úlfar Sævarsson og Karl Pétur Jónsson sem kunnur er fyrir að vera tengdasonur forseta vors Ólafs Ragnars Grímssonar. Karl Pétur mætir Katrínu Jakobsdótt- ur í 1. umferð. Helgi Árnason mætir Erni Úlfari í fyrstu viður- eigninni. Ónefndir eru þá Bryn- dís Sveinsdóttir blaðamaður, Magnús Þorlákur Lúðvíksson nemi, Jón Pálmi Óskarsson, Bald- vin Már Baldvinsson leikskóla- leiðbeinandi og Ólöf Ýrr Atladótt- ir líffræðingur. Aðspurður hvort Illugi finni ekki fyrir pressunni, bæði í ljósi þess að hann tók þátt í fyrra, er alþekkt spurningaljón og spurn- ingahöfundur í Gettu betur, segir hann svo ekki vera. „Vegna þess að þetta er spurn- ing um hugarfar og ég er búinn að ákveða að taka þessu léttar en í fyrra. Þannig að ég geri mér engar grillur og þar sem mér hefur hrakað stórlega að vits- munum frá í fyrra reikna ég ekki með að komast langt. En lét undan þessum ofboðslega þrýstingi,“ segir Illugi. „Það kom mér stórkostlega á óvart hversu margir vildu vera með. Þeir virðast miklu fleiri trúbadorarnir sem vilja koma út úr skápnum en við þorðum að vona,“ segir Friðrik Ind- riðason, blaðamaður og einn helsti skipuleggjandi Stóru trúbador- keppninnar, sem hefst á Sport- barnum við Hverfisgötu í kvöld. Tólf eru skráðir til keppni en þeir sem ríða á vaðið eru Kristján Þorvaldsson ritstjóri, Börkur Karlsson tónlist- arkennari og Helga Völundardóttir en þrjár konur eru skráðar til leiks. Hátíðina opnar hins vegar Tómas Tóm- asson Stuðmaður sem verður þá þar með fyrsti bassatrúbador sög- unnar. Hann er jafn- framt verndari keppninnar. Þrír keppa hvert kvöld og 24. mars verður svo úrslitakvöld keppninnar. Og mun þá troða upp, meðan atkvæði eru talin, South River Band með þá bræður Kormák og Óla Þórðar í broddi fylkingar. Sigurvegarinn fær 50 þúsund í verðlaun, annað sætið gefur þrjátíu þúsund en fjórða og fimmta tíu þúsund. „Þetta er aðallega til gamans gert,“ segir Friðrik aðspurður hvort keppnin muni ekki setja djúpt spor í menn- ingarsöguna. „En við erum nú þegar að und- irbúa næstu keppni, Stóru standpínukeppn- ina, en þar er um að ræða uppistands- keppni.“ Kristján Þorvalds og Tommi ríða á vaðið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.