Fréttablaðið - 27.02.2007, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 27.02.2007, Blaðsíða 17
Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is Guðmundur Finnbogason hefur verið í skátunum í átján ár. Vífill, skátafélag Garðabæjar, verður fjöru- tíu ára sumardaginn fyrsta, en svo skemmti- lega vill til að afmælið ber upp á aldar- afmæli skátahreyfingarinnar. Guðmundur Finnbogason gekk til liðs við Vífil fyrir fjór- um árum en hefur verið í skátunum í átján ár. Hann segir fátt jafnast á við það tóm- stunda- og íþróttastarf sem hreyfingin innir af hendi. „Starf okkar gengur að miklu leyti út á að skipuleggja útiveru, svo sem leiki, úti- legu, göngu- og skoðunarferðir fyrir börn og ungmenni, enda erum við æskulýðs- hreyfing,“ útskýrir Guðmundur. „Mark- miðið er að kenna þeim samvinnu og inn- ræta ábyrgðartilfinningu. Skátastarfið vegur því ágætlega upp á móti því umhverfi sem krakkarnir alast upp við, þar sem of litlar kröfur eru gerðar til þeirra.“ Guðmundur var sjálfur níu ára þegar hann gekk til liðs við skátafélag Selfoss, Fossbúa. „Á þeim tíma var ótrúlega vinsælt á meðal jafnaldra minna að ganga í félagið á Selfossi,“ segir hann. „Ég hafði gaman af öllu sem fram fór innan félagsins. Ég viður- kenni að mér þótti að vísu svolítið hallæris- legt að vera skáti á unglingsárunum. Samt hvarflaði aldrei að mér að hætta. Sú ánægja sem skátafélagið veitti mér vó þyngra en svo að ég léti spéhræðslu fæla mig í burtu.“ Guðmundur segir algengt að krakkarnir taki við foringja- eða leiðbeinendastöðum haldi þeir áfram í skátunum, enda sé mikið lagt upp úr að kenna þeim að axla ábyrgð. Svo fór í hans tilviki, þar sem hann tók til starfa með Vífli eins og áður sagði. „Ég væri þó ekki enn að þessu, væri þetta ekki svona gefandi, skemmtilegt og fjölbreytt áhuga- mál.“ Fjölbreytt áhugamál Vesturlandsvegur Reykjavík Mosfellsbær Húsasmiðj an Nóatún Toppskórinn Margt Smátt Vínlandsleið Sport Outlet Vínlandsleið 2–4, efri hæð Grafarholt Zook inniskór - 2.000 kr.Einnig fáanlegir í svörtuRétt verð: 5.900 kr. Stærðir 36-44 Opnunartímar: Virkir dagar kl. 12 – 18 Laugardagar kl. 12 – 16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.