Fréttablaðið - 27.02.2007, Blaðsíða 49
[Hlutabréf]
Teymi hf. hefur selt allan eignar-
hlut í dótturfélaginu Securitas hf.
á 3,8 milljarða króna að frádregn-
um vaxtaberandi skuldum til
óstofnaðs félags í eigu Fons
Eignarhaldsfélags hf., samkvæmt
tilkynningu til Kauphallar í gær.
Yfirtökudagur er samkvæmt
kaupsamningi 1. mars næstkom-
andi og nemur söluhagnaður
Teymis um hálfum milljarði króna
fyrir reiknaðan tekjuskatt. Í til-
kynningunni kemur jafnframt
fram að söluverðið verði allt greitt
á þessu ári, en samningurinn er
háður niðurstöðu áreiðanleika-
könnunar og samþykki samkeppn-
isyfirvalda.
Þá hefur Landsbanki Íslands
hf. yfirtekið kröfu Teymis á Hands
Holding, með ábyrgð Teymis, að
bókfærðri fjárhæð 2.688 milljónir
króna miðað við 31. desember
2006. „Áhrif framangreinda ráð-
stafana á efnahagsreikning Teymis
eru þau að vaxtaberandi skuldir
að frádregnu handbæru fé lækka
um 5,4 milljarða króna miðað við
síðustu áramót,“ segir í tilkynn-
ingunni, en skuldir fara úr 27,3
milljörðum króna í 21,9 milljarða.
Securitas verður hluti af sam-
stæðureikningi Teymis út febrúar
en fjárhæðir úr reikningum Secur-
itas munu birtast undir aflagðri
starfsemi í fyrsta ársfjórðungs-
uppgjöri 2007 með samanburði við
fjórða ársfjórðung 2006.
Haft er eftir Árna Pétri Jóns-
syni, forstjóra Teymis, að allt frá
stofnun félagsins í nóvember síð-
astliðnum hafi verið forgangs-
verkefni að draga úr skuldsetn-
ingu og vaxtabyrði félagsins.
Salan á Securitas og krafa á
hendur Hands Holding eru sagðar
jákvæðar fréttir fyrir Teymi, segir
greiningardeild Glitnis. „Kaup
Dagsbrúnar á Securitas reyndust
góð fjárfesting þar sem Securitas
er nú selt með ágætum söluhagn-
aði. EV/EBITDA margfaldari
Securitas í viðskiptunum er um
12,7 en félagið var keypt fyrir
rúmu ári síðan á EV/EBITDA
11,5,“ segir greiningardeildin og
telur einnig jákvætt af félaginu að
hafa fært kröfuna á hendur Hands
holding út úr efnahag Teymis í
formi ábyrgðar Teymis á láninu
gagnvart Landsbankanum. „Þess-
ar aðgerðir eru til þess fallnar að
létta skuldabyrgði Teymis og
styrkja þannig afkomugrundvöll
félagsins. Fróðlegt verður að sjá
hver framvindan verður með eign-
arhlut Teymis í Hands Holding,
hvort Hands verði selt eða hvort
viðunandi arðsemi náist.“
Teymi hf. hefur samið um sölu Securitas til félags í
eigu Fons eignarhaldsfélags hf. á 3,8 milljarða króna.
Söluhagnaður er sagður nema hálfum milljarði.
Sjóvá hagnaðist um 11,9 milljarða
króna í fyrra sem er rúmlega þre-
falt meiri hagnaður en árið 2005.
Eigið fé stóð í rúmum 9,3 milljörð-
um króna í árslok og eigin iðgjöld
fyrirtækisins jukust um tíu pró-
sent á árinu.
Forsvarsmenn Sjóvár segja að
fjárfestingastarfsemi hafi gengið
vel og nefna þar að góður árangur
hafi náðst í kaupum á fasteignum
erlendis undir forystu móðurfé-
lagsins Milestone sem er í eigu
Karls Wernerssonar og systkina
hans.
Afkoma af tryggingastarfsemi
hefur farið batnandi og munar þar
mestu um að rekstrarkostaður
lækkaði úr 3,22 milljörðum í 2,53
milljarða. Tjón urðu þó meiri en
áætlanir gerðu ráð fyrir, einkum á
seinni hluta síðasta árs.
Hagnaður Sjóvár
þrefaldast á milli ára
KVEF?
NEFÚÐI HÁLSTÖFLUR VERKJALYF FRUNSUKREM
Það er engin ástæða til að láta sér líða illa.
Komdu og fáðu ráðgjöf hjá okkur.
Við hlustum!
Vectavir krem er áhrifaríkt lyf til meðferðar á frunsu af völdum Herpes Simplex. Vectavir virkar á öllum stigum frunsunnar frá sting eða æðasláttar til blöðru. Í Vectavir er virka efnið penciklóvír sem stöðvar framgang
veirunnar. Vectavir er ætlað fullorðnum og börnum eldri en 12 ára. Berið Vectavir á frunsusvæðið á 2 klst fresti í 4 daga. Berið á rétt fyrir svefn og um leið og vaknað er. Dæmigert er að frunsa komi fram við ofreynslu, kvef
eða infl úensu eða í mikilli sól (t.d. á skíðum). Ekki á að nota lyfi ð ef að áður hefur komið fram ofnæmi fyrir penciklóvír, famciklóvír eða öðrum innihaldsefnum. Með Vectavir grær frunsan hraðar, verkir minnka og smittími
styttist. Vectavir kremið 2 g fæst án lyfseðils. Lesið vel leiðbeiningar sem fylgja lyfi nu. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Otrivin nefúðinn og nefdroparnir innihalda xýlómetasólin sem vinnur gegn bólgu, nefstífl u og slímmyndun vegna kvefs og bráðrar bólgu í ennis- og kinnholum. Otrivin virkar fl jótt og áhrifi n vara í 6-10 klst. Otrivin getur
valdið aukaverkunum, s.s. ertingu í slímhúð og sviðatilfi nningu. Einnig ógleði og höfuðverk. Otrivin má nota þrisvar á dag en ekki lengur en í 10 daga í senn.Varúð: Langtímanotkun Otrivin getur leitt til þurrks í nefslímhúð.
Sjúklingar með gláku eða þeir sem hafa ofnæmi fyrir xýlómetasólin ættu ekki að nota Otrivin. Kynnið ykkur vel leiðbeiningar sem fylgja lyfi nu. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Strepsils töfl ur eru látnar renna í munni og leysast þar hægt upp. Þannig nást fram staðbundin sótthreinsandi áhrif í munni og koki. Auk þess hafa bragðefnin væg kælandi áhrif sem slá á ertingu.Venjulega er ein tafl a látin
leysast hægt upp í munni á 2-3 klst fresti. Lyfi ð þarf venjulega að nota í 3-4 daga og stundum í allt að eina viku. Einnig má leysa upp 1-2 töfl ur í heitu vatni og drekka sem heitan drykk. Notkun lyfsins hefur engin áhrif á
önnur lyf sem notuð eru samtímis. Ofnæmi eða ofnæmislík viðbrögð geta komið fyrir en eru afar sjaldgæf. Hver pakki af Strepsils inniheldur 24 munnsogstöfl ur, sem eru í hentugum þynnupakkningum. Hverri pakkningu
fylgja viðurkenndar leiðbeiningar á íslensku um notkun lyfsins, sem gott er að kynna sér vel. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Voltaren Dolo® (díklófenak kalíum) 12,5 mg töfl ur. Notaðar við vægum eða frekar vægum verkjum, svo sem höfuðverk, tannpínu og tíðaþrautum.Verkar einnig hitalækkandi. Dragi ekki úr einkennum á nokkrum dögum,
skal leita til læknis. Þeir sem eru með eða hafa haft sögu um maga- eða skeifugarnarsár eða skerta lifrarstarfsemi ættu að ráðfæra sig við lækni áður en lyfi ð er notað. Þeir sem þola ekki acetýlsalisýru, íbuprófen eða önnur
bólgueyðandi lyf eða eru með astma eiga ekki að nota Voltaren Dolo®. Notið lyfi ð ekki á meðgöngu nema í samráði við lækni, en aldrei á síðasta þriðjungi meðgöngu. Leitið ráða læknis eða lyfjafræðings um milliverkanir
við önnur lyf. Lesa skal vandlega leiðbeiningar á umbúðum og fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
A›alfundur
Atorku Group hf.
ver›ur haldinn
flri›judaginn 6. mars 2007
kl. 16:00 í I›usölum.
Dagskrá:
Stjórn Atorku Group hf.