Fréttablaðið - 27.02.2007, Blaðsíða 14
fréttir og fróðleikur
Gríðarlegur áhugi er fyrir
uppboði sem fram fer í
Kaupmannahöfn í dag. Þar
verður boðið upp fágætt
verk eftir Kjarval og talið
að það fari á margföldu
matsverði sem er ein og
hálf milljón. Einnig verða
í dag boðin upp fimm
verk eftir Svavar Guðna-
son í uppboðshúsi Bruun
Rasmussen.
„Að ég bjóði? Fyrir sjálfan mig.
Nei, Guð minn almáttugur. Ég hef
ekki efni á því,“ segir Aðalsteinn
Ingólfsson listfræðingur.
Í dag verður slegið umtalað
Kjarvalsverk hjá uppboðshaldar-
anum Bruun Rasmussen í Kaup-
mannahöfn. Verkið, sem heitir
Hvítasunnudagur, er talið einstakt,
olía á striga og 100 x 113 senti-
metrar á stærð. Verðmat sem upp-
boðshaldari miðar við er 100 til
150 þúsund danskar sem gera hátt
í 1,8 milljónir íslenskra króna. Víst
þykir að myndin fari á talsvert
hærra verði en svo.
Eftir að Morgunblaðið fjallaði um
verkið á forsíðu sinni og Hafþór
Yngvason, safnstjóri Listasafns
Reykjavíkur, lýsti því yfir að verk-
ið væri einstakt og hann hefði full-
an hug á að eignast það fyrir hönd
safnsins hefur áhugi magnast.
Fréttablaðið hefur heimildir fyrir
því að fjöldi áhugasamra kaup-
enda hyggist steðja út til Kaup-
mannahafnar og/eða vilji bjóða í
verkið í gegnum síma. Tryggvi
Páll Friðriksson, uppboðshaldari á
Gallerí Fold, segist hafa heyrt um
nokkurn hóp manna sem ætla að
bjóða í verkið og Aðalsteinn Ing-
ólfsson tekur í sama streng.
„Mikið er talað um þessa mynd
Kjarvals. Menn eru forvitnir um
hana fyrst búið er að magna upp
þennan áhuga á henni. Klárt er að
hún fer á yfirverði eftir, já,
ummæli safnstjóra, það sem menn
hafa verið að ræða í fjölmiðlum og
þá er forsíða á Morgunblaðinu ekki
léleg auglýsing,“ segir Aðalsteinn.
Peter Christmas Möller er yfir-
maður deildar hjá Bruun Rasmus-
sen sem tekur til nýrri listaverka
og hann segir ótrúlega mikinn
áhuga sýna sig í tengslum við þetta
tiltekna Kjarvalsverk – menn hafi
haft samband vegna þess og spurt
hvernig best sé að bera sig að
boðum í myndina. Hann telur ljóst
að matið á verkinu sé mjög lágt
svo ekki sé meira sagt. „Enda er
hún ein sú áhugaverðasta sem
hefur verið boðin upp lengi. Menn
ættu að mæta snemma því það
verður örugglega troðfullt hús,“
segir Peter Christmas.
Aðspurður segir hann ómögu-
legt að segja á hvað verkið fer en
nefndar hafa verið tölur allt upp í
15 milljónir íslenskra króna með
kostnaði. Hann segir áhuga á nor-
rænni eyjalist hafa aukist mjög
undanfarin tvö ár og þar séu verk
íslenskra listamanna engin undan-
tekning.
Aðalsteinn segir að verkið hafi
vissulega sérstöðu. Einkum sé litið
til þess hversu stórt það er miðað
við verk Kjarvals frá þessu tíma-
bili en það er talið málað á árunum
1917-1919. Hefur verið á það bent
að þarna megi greina fágæta takta
hjá Kjarval sem vísi í kúbisma.
„Til eru aðrar Kjarvals-myndir
í þessum dúr. Eins og sjá má ef
Stóru Kjarvalsbókinni er flett.
Kjarval gekk í gegnum períóðu
sem við getum kallað kúbisma þó
svo sé ekki strangt til tekið. Held-
ur einhvers konar bræðingur,“
segir Aðalsteinn.
Kjarval er ekki einn um hituna. Á
morgun eru einnig boðin upp
fimmtán verk eftir Svavar Guðna-
son en hann er líklega sá listamað-
ur sem náð hefur mestum frama
íslenskra listamanna á erlendri
grund. Enda tilheyrir hann hópi
eins þekktasta hóps norrænna
listamanna sem nefnast Cobra-
hópurinn. Aðalsteinn segir þar
merk verk á ferðinni, pappírsverk
máluð með krítarlitum, vatnslitum
og pastel.
„Þetta eru góð verk úr safni
Róbert Dalmanns Ólsen sem var
góður vinur Cobra-hópsins, skrif-
aði um þá og átti verk eftir þá alla.
Mikil tíðindi eru að safn hans skuli
nú brotið upp með þessum hætti.
Dalmann Ólsen þekkti Svavar á
besta skeiði, þegar hann var hvað
frjóastur og pródúctívastur. Var
auk þess glöggskyggn sjálfur.
Þetta eru ekki undirmálsverk, eru
lágt metin (6 til 8 þúsund danskar)
og fara örugglega á töluverðan
pening,“ segir Aðalsteinn.
Kúbískur Kjarval sleginn í dag
Malbiksagnir, sót, jarðvegur og salt
Mikilvægt starf
INNBLÁSTUR FYRIR
SKÖPUNARGLEÐINA
Ókeypis Panduro Hobby
föndurlisti á íslensku!
Einnig fáanlegur í Skólavörubúðinni.
Borgartúni 29 Höfðabakka 3Glerárgötu 34