Fréttablaðið - 27.02.2007, Blaðsíða 32
10 sport
Ragnheiður Ragnarsdóttir fórnar mörgu fyrir sundið en
sér ekki eftir því. Hún stefnir að því að uppskera sem
til var sáð á Ólympíuleikunum í Peking haustið 2008.
SPORTMYND/VALLI
É
g var einmitt að koma
af fundi og þar fékk ég
að vita hvernig næsta
eitt og hálf ár lítur út
hjá mér. Það verða
ferðalög og aftur
ferðalög, fullt af mótum en reynd-
ar líka tveggja vikna sumarfrí.
Síðan tekur við ár þar sem allt
verður lagt undir fyrir Ólympíu-
leikana í Peking haustið 2008,“
segir sunddrottningin Ragnheiður
Ragnarsdóttir.
ALLT LAGT TIL HLIÐAR
Það er ekki tekið út með sæld-
inni að ætla sér að ná árangri í
sundi. Það fyrsta sem fólk lærir
er: „Þú átt ekkert líf. Laugin er
lífið þitt.“ Ragnheiður getur skrif-
að undir þessa lýsingu því hún er
ekki að vinna, þurfti að fresta
skóla, hefur ekki tíma fyrir kær-
asta og er alltaf bílstjóri þegar
vinkonur hennar fara út að
skemmta sér. Það er allt lagt til
hliðar, lífið sjálft er lagt til hliðar
fyrir sundið.
„Það er alveg ljóst að maður
gerir ekki mikið annað á meðan
undirbúningur fyrir stórmót
stendur yfir,“ segir Ragnheiður og
hlær. Aðspurð hvort þetta sé ekki
einn stór hringur þar sem hvert
stórmótið reki annað og eilífur
undirbúningur sé í gangi játar hún
því. „Það er sjaldan tími til að
anda. Evrópumeistaramótið fór
fram í Valencia í desember á síð-
asta ári. Strax eftir það hófst und-
irbúningur fyrir heimsmeistara-
mótið í Ástralíu þannig að það var
ekki hægt að slaka neitt á yfir
jólin. Ég hef æft tíu til þrettán
sinnum í viku síðan þá, bæði sund-
æfingar og þrekæfingar og er
komin í ágætisform. Við förum út
til Ástralíu tveimur vikum fyrir
mótið og verðum þar í stífum
æfingabúðum. Undirbúningurinn
miðast að sjálfsögðu við að toppa
þar,“ segir Ragnheiður.
ENGIN ORKA FYRIR
KÆRASTA
Og það er ekki nóg að æfa bara.
Ragnheiður þarf líka að huga að
mataræðinu og hvíldinni. „Ég
borða engan sykur, reyki hvorki
né drekk. Það þýðir lítið að æfa
eins og brjálæðingur og eyðileggja
það síðan með kæruleysi utan
laugarinnar. Þetta er auðvitað
hálfgert munkalíf en ég reyni að
nýta sumarfríin til að skemmta
mér. Á meðan er ég bara vinsæll
bílstjóri fyrir vinkonur mínar í
partíum,“ segir Ragnheiður og
hlær.
Það má mikið vera ef ungir menn
þess lands líta þessa glæsilegu
stúlku ekki hýru auga en Ragnheið-
ur er á lausu. Hefur bara hreinlega
hvorki orku né tíma fyrir kærasta.
LÍFIÐ LAGT TIL HLIÐAR
22,55 SEK: 50 metra skrið-
sund í 25 metra braut.
Sett í Reykjavík 19. nóvember 2006
55,95 SEK: 100 metra
skriðsund í 25 metra braut.
Sett í Helsinki 8. desember 2006
1:03,66 MÍN: 100 metra
fjórsund í 25 metra braut.
Sett í Helsinki 8. desember 2006
26,23 SEK: 50 metra skrið-
sund í 50 metra braut.
Sett í Canet 8. júní 2006
56,74 SEK: 100 metra
skriðsund í 50 metra braut.
Sett í Króatíu 9. júlí 2004
ÍSLANDSMET
VISSULEGA LÍT ÉG Í KRINGUM MIG OG SÉ
JAFNALDRA MÍNA VERA FARNA AÐ BÚA,
GIFTAST OG EIGNAST BÖRN EN ÉG GÆTI
ÞAÐ EKKI NÚNA. ÞAÐ ER DÝRT AÐ VERA
AFREKSMAÐUR Í SUNDI.
RAGNHEIÐUR RAGNARSDÓTTIR er 22 ára gömul.
Hún er fremsta sundkona landsins og mun taka þátt í heims-
meistaramótinu í Brisbane í Ástralíu eftir tæpan mánuð. Þessi
glæsilega stúlka sem hefði auðveldlega getað orðið fyrirsæta
fórnar nú öllu fyrir sundið. Hún æfir 13 sinnum í viku og hefur
ekki tíma fyrir neitt annað. Dagskráin næsta eina og hálfa árið er
klár. Hún samanstendur af flugvélum og sundlaugum.
EFTIR ÓSKAR HRAFN ÞORVALDSSON