Fréttablaðið - 27.02.2007, Blaðsíða 19
Restylane heldur húðinni
stinnri.
Ný rannsókn á hrukkubananum
Restylane hefur leitt í ljós að efnið
örvar jafnframt framleiðslu colla-
gens, náttúrulegs efnis sem heldur
húðinni stinnri, gagnstætt því sem
talið var.
Restylane hefur í gegnum tíðina
verið sprautað í varir, kinnar og
enni til að gefa aukna fyllingu og
slétta úr hrukkum, með góðum
árangri.
Húðsýni voru tekin úr ellefu
sjálfboðaliðum, eldri borgurum
með brunasár af völdum sólar, eftir
að efninu var sprautað í þá. Rann-
sóknin, sem var framkvæmd við
Michigan-háskóla, leiddi í ljós að
efnið örvar collagen-framleiðslu
líkamans og kemur auk þess í veg
fyrir niðurbrot þess. Síðast en ekki
síst er regluleg notkun þess talin
hafa langtíma áhrif, gagnstætt því
sem menn héldu. Efnið hefur því
meiri virkni en framleiðendur og
almenningur álitu.
Rannsóknin náði ekki til annarra
hrukkubana en Restylane, svo ekki
er vitað hvort þeir hafi sams konar
áhrif. Hún skilur hins vegar eftir
nokkrar spurningar, meðal annars
hvað í efninu valdi endurnýjun
fruma og hvort það megi nota til
endurnýjunar annarra fruma.
Frá þessu er greint á www.cnn.
com. -
Örvar colla-
gen-fram-
leiðslu
Hinn 1. júní munu öll veitinga-
hús á Íslandi verða reyklaus
samkvæmt lögum og því
eru margir sem hafa hugsað
sér að hætta að reykja fyrir
þann tíma. Stuðningur og
ráðgjöf geta hjálpað í barátt-
unni við tóbakið og því hefur
verið ákveðið að bjóða upp á
einstaklingsviðtöl og ráðgjöf í
apótekum Lyfja og heilsu fyrir
þá sem vilja hætta að reykja.
Í tuttugu apótekum Lyfja og heilsu
víðs vegar um landið verður héðan
í frá boðið upp á viðtöl og ráðgjöf
fyrir þá sem vilja hætta að reykja.
Sigríður Pálína Arnardóttir, lyfja-
fræðingur hjá Lyfjum og heilsu,
segir að þeir sem hafi áhuga geti
bara gengið inn í næsta apótek af
götunni og pantað sér viðtal. „Við
reiknum með svona sex til átta við-
tölum á mann og hvert viðtal hefur
ákveðið þema. Farið verður í hvern-
ig tóbakið hefur áhrif á líkamann,
sjúkdóma sem reykingar valda og
næringarráðgjöf. Hvert viðtal kost-
ar fimm hundruð krónur og við
miðum við að þau séu með svona
viku millibili en annars ræður fólk
því sjálft. Þó að við séum öll með
sama faggrunn í viðtölunum okkar
eru þau að sjálfsögðu einstaklings-
miðuð,“ segir Sigríður.
Auk ráðgjafar og stuðnings í
viðtölunum verður þátttakendum
boðið upp á blóðþrýstingsmæl-
ingu og kolmónoxíðmælingu. „Við
erum með mæli sem mælir kol-
mónoxíð í útöndunarlofti en það
binst blóðrauðanum fastar en súr-
efni og veldur auka álagi á hjarta
og æðakerfi. Þegar hætt er að
reykja minnkar styrkur kolmón-
oxíðs í útöndunarlofti hins vegar
mjög fljótt þannig að árangur er
mælanlegur strax á fyrsta sólar-
hring. Tveimur til þremur dögum
eftir að reykingum er hætt er
styrkur kolmónoxíðs orðinn sá
sami og hjá þeim sem hafa aldrei
reykt.“
Stuðningur skiptir miklu máli
þegar hætt er að reykja og bendir
Sigríður á að gott geti verið að
hringja í reyklausa símann hjá
Lýðheilsustöð á milli viðtala í Lyfj-
um og heilsu. „Allir sem koma til
okkar fá svo afhent fræðsluefni til
að lesa heima og fylgst er með
hvernig fólki gengur með bindind-
ið eftir að viðtölunum lýkur.“
Sigríður segir að ráðgjafar Lyfja
og heilsu mæli með því við alla sem
koma í viðtöl að þeir taki upp heil-
brigðari lífsstíl samhliða reykbind-
indinu. „Við erum með mjög flott
prógramm sem er sett saman af
næringarfræðingum en þegar hætt
er að reykja hægir á brennslu lík-
amans og því mikilvægt að huga
vel að mataræði og hreyfingu.“
Stuðningur
skiptir máli
Vertu ígó ummálum!
Stelpur - Konur / Staðurinn - Ræktin
Ný og kraftmikil TT-námskeið!
Innritun hafin núna í síma 581 3730.
Þú léttist og styrkist andlega og líkamlega!
Átaksnámskeiðin sívinsælu fyrir konur á öllum aldri.
TT-1
• Lokuð 9 vikna námskeið 3 x í viku
• Fræðslufundir 1x í viku, vigtun og mælingar
• Líkamsrækt
• Glæsilegur lokafundur þar sem sérfræðingar í hári
og förðun veita ráð
• Persónuleg þjónusta í notalegu umhverfi þar sem
alger trúnaður ríkir
• Frjáls aðgangur að tímum í opna kerfinu og tækjasal
TT-2
• Lokuð 9 vikna framhaldsnámskeið eftir TT-1
Loksins! TT á besta tíma: 16:30 og 17:40 og
aukið rými fyrir morgunhænurnar: 6:15 og 7:20
Barnagæsla – Leikland JSB
Vertu velkomin í okkar hóp!
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • www.jsb.is
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
A
T
A
R
N
A
–
S
T
ÍN
A
M
.
/
F
ÍT
Fullkomin baðvog sem mælir þyngd,
fitu og vatnsprósentu.
Tækifærisverð: 9.900 kr.
Baðvog, PPW 2200
Fullkomin baðvog sem mælir þyngd,
fitu, vöðva og vatnsprósentu.
Minni fyrir 10 einstaklinga.
Tækifærisverð: 8.800 kr.
Baðvog, PPW 5310
Kínastofan • Stórhöfði 17 • 110 Rvk • 577 7007
Verð 12.200 kr
Tilboðsverð
9.900 kr
ef þú pantar í dag
Green peel
andlitslyfting
sem tekur
einungis
4-5 daga.
ANDLITS
LYFTING
Við kynnum
vinsælasta
líkamsræktar
spjallvef landsins
til sögunnar
vaxtarvorur.is
Sérverslun með
NOW fæðubótarefni
Kaplahrauni 19, Hfj. S: 565-9595. Opið 13-19 virka daga - 12-16 lau.
ÞÚ
Í FORM
NÚNA!