Fréttablaðið - 27.02.2007, Blaðsíða 50
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysin-
gar@frettabladid.is eða hringja í
síma 550 5000.
Saga Stephensen útskrifaðist um síð-
ustu helgi úr Háskóla Íslands með
tvöfalt BA-próf í íslensku og jap-
önsku.
Þurfti hún að ljúka rúmlega 120
einingum til að klára námið, sem stóð
yfir í fjögur ár. Þar af dvaldi hún í eitt
ár í Japan til að komast betur inn í jap-
önskuna.
„Ég var alltaf áhugasöm um Asíu
en byrjaði að læra íslensku í háskól-
anum. Á öðru ári var byrjað að kenna
japönsku og ég ákvað að prófa og
fannst það bara mjög spennandi og
skemmtilegt,“ segir Saga. Hún bjó í
höfuðborg Japans, Tókýó, og segir það
hafa verið frábæra reynslu. „Það er
svolítill munur að koma héðan og fara
í svona fjölmenna borg. Það er ýmis-
legt sem er öðruvísi en mér fannst
samt ekkert erfitt að komast inn í
hlutina. Fólkið er alveg ótrúlega vina-
legt og hjálpsamt. Maður er alltaf
mjög velkominn og þegar maður
spurði til vegar var labbað með manni
í tíu mínútur,“ segir hún.
Saga segist vel geta hugsað sér að
fara aftur til Japans, bæði til að læra
tungumálið betur og til að kynnast
menningunni á nánari hátt. Hún hefur
undanfarið starfað í sérskóla í London
sem aðstoðarkennari en stefnir á
framhaldsnám í haust. „Ég er ekki
alveg búin að ákveða hvað ég ætla að
gera en ég veit um skóla í London sem
kennir „japanese studies“. Síðan
kemur kennslufræðin hérna heima til
greina,“ segir Saga, sem á greinilega
framtíðina fyrir sér.
Reichstag brennur í Berlín
„Það er minnimáttarkennd
ef þú þorir ekki að standa
á þínu, að vera þú sjálfur.
Vera krúttlegur Íslending-
ur í stað þess að vilja láta
taka sig alvarlega. Þetta
finnst mér leiðinlegur
kvilli, mein á þjóðarsál-
inni.“
Freestylekeppni Tónabæjar fór fram í 27.
skiptið á föstudag. Keppnin var haldin í
Loftkastalanum, og telst Árna Jónssyni,
verkefnisstjóra Freestyle og Músíktil-
rauna, til að um 400 manns hafi verið við-
staddir. „Keppnin er alltaf jafn vinsæl. Ég
var líka ánægður með að það mættu tölu-
vert margir foreldrar.
Þeir eru svo mikilvægir í þessu starfi,
hvatning krakkanna og stuðningur kemur
þaðan,“ sagði hann. „Það er líka mikilvægt
að vera með verkefni eins og Freestyle og
Músíktilraunir, þar sem við bendum á hvað
ungt fólk er jákvætt, hresst og skemmti-
legt, og skapandi í því sem það gerir,“ bætti
hann við.
73 unglingar á aldrinum 13-17 ára tóku
þátt í keppninni, en atriðin voru 25. Í ár
varð hópurin Liþium Íslands- og Reykja-
víkurmeistari, Ritmó lenti í öðru sæti og
Zyncron í því þriðja, en Vídeza hlaut FRÆ
verðlaunin. Elva Friðjónsdóttir varð
Íslandsmeistari og hlaut FRÆ verðlaunin í
flokki einstaklinga, Eva Óliversdóttir varð
Reykjavíkurmeistari og Linda Ósk Valdi-
marsdóttir hreppti þriðja sætið.
Sigurvegarar í freestyle
Iceland Express fagnar
fjögurra ára afmæli í dag en
á þessum degi árið 2003 var
fyrsta flug félagsins til
Kaupmannahafnar og Lond-
on. Rúmlega 300 þúsund
manns fljúga nú árlega með
Iceland Express. Íslending-
um á ferðalagi til annarra
landa hefur fjölgað um ríf-
lega 35% frá því félagið kom
inn á markaðinn. Þá hefur
ferðamönnum til Íslands
fjölgað um 17% á sama
tíma.
Félagið hefur frá upphafi
boðið upp á daglegt flug til
Kaupmannahafnar og Lond-
on. Í maí 2005 bættust við
þrjár ferðir á viku til Frank-
furt Hahn í Þýskalandi. Í
maí 2006 stækkaði leiða-
kerfi Iceland Express aftur
þegar fimm nýir áfanga-
staðir bættust við: Alicante
á Spáni, Berlín og Friedrichs-
hafen í Þýskalandi og Gauta-
borg og Stokkhólmur í Sví-
þjóð. Sumarið 2007 bætast
við fimm nýir áfangastaðir
og einnig verður boðið upp á
beint flug frá Akureyri og
Egilsstöðum til Kaupmanna-
hafnar tvisvar í viku í
sumar.
Flugfloti Iceland Express
er ein 150 sæta og tvær 166
sæta Boeing MD-90 vélar
sem reknar eru af sviss-
neska félaginu Hello AG.
Næsta sumar munu ein
Boeing 737-500 og ein
Boeing 737-700-vél frá Sterl-
ing ásamt Boeing 757-200-
vél frá Astraeus bætast við
flotann.
Iceland Express
fjögurra ára
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir Harðarson
FÆDDUST ÞENNAN DAGÁstkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi
Aðalsteinn M. Richter
arkitekt, Nökkvavogi 52, Reykjavík
lést á hjúkrunarheimilinu Eir föstudaginn 16. febrúar
sl. Útförin fer fram frá Áskirkju miðvikudaginn
28. febrúar, kl. 13.
Elisabeth Richter
Kristján Richter Kristbjörg Ólafsdóttir
Svend Richter Björg Yrsa Bjarnadóttir
Anna Gerður Richter Örn Ármann Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.