Fréttablaðið - 17.03.2007, Síða 30

Fréttablaðið - 17.03.2007, Síða 30
G estasýning Þjóðleik- hússins er rómuð uppfærsla leikstjór- ans Arthurs Nauzyc- iel á Ímyndunarveik- inni eftir höfuðskáld franskra leikbókmennta, Molière, en sýn- ingin markar jafnframt upphaf- ið að samstarfi Þjóðleikhússins og Nauzyciels sem mun setja upp glænýtt verk þar á næsta leikári. Brynhildur Guðjónsdóttir leik- kona útskýrir að bakland þess- arar uppfærslu sé í harmrænni fjölskyldusögu leikskáldsins sem Nauzyciel vinnur markvisst með í uppfærslu sinni sem ekki er grót- eskur gamanleikur eins og vant er þegar verk Molières eru leik- in. Leikritið ber þannig lengri titil sem vísar til einþáttungs ítalska leikskáldsins Giovanni Macchia sem bætt hefur verið við verk Molières svo það heitir nú „Ímyndunarveikin eða Þögn Moli- ères“. „Þetta er verulega persónu- leg sýning fyrir leikstjórann,“ út- skýrir Brynhildur og bendir á að hann leiki sjálfur í verkinu sem og faðir hans, fullorðinn fyrrum starfsmaður grænmetismarkaðar, sem ekki hefur gert sig gildandi á leiksviði fyrr. „Hann er þögull með syni sínum á sviðinu af ein- skærri löngun þess fyrrnefnda sem vill fá að sjá hann leika. Leik- stjórinn heimfærir verkið á sig og fólkið í kringum hann. Ekkert í þessari sýningu er tilviljun,“ segir leikkonan. Í sama mund fer bruna- varnarkerfi hússins í gang. „Þetta er allt í lagi – þetta er alltaf að ger- ast,“ segir hún hughreystandi. Fjölskyldutengslin eru þunga- miðja verksins en Brynhildur leikur dóttur leikskáldsins í verk- inu og flytur nútímatextann eftir Macchia auk þess að leika senu á móti persónu Molières. „Ímynd- unarveikin fjallar um kolklikkað- an mann sem haldinn er ímynd- unarveiki. Líkt og fleiri aðalpers- ónur Molières er hann sjúklega afbrýðisamur og snarklikkað- ur – eins og margir halda að leik- skáldið hafi sjálft verið. Hann var í það minnsta maníudepress- ívur og með rosalegar skapsveifl- ur.“ Saga Molière-fjölskyldunn- ar er skrautleg og í raun æsilegri en nokkurt leikverka hans. Bryn- hildur útskýrir að öll fjölskyldan hafi verið leikarar nema dóttirin Esprit Madelene sem hún leikur í verkinu – stúlkan sú rauf fjöl- skylduhefðina og vildi ekki leika heldur gekk í klaustur. „Á þessum tíma voru leikarar úrhrök, eins og sígaunar sem lifuð á jaðri samfé- lagins. Það var gasprað um sifja- spell, að móðir stúlkunnar hefði einnig verið dóttir Molières og þá synd þurfti hún að bera allt sitt líf. Þessi stúlka var ofboðslegur töff- ari en með mikinn sársauka og byrðar.“ Brynhildur fer öll á flug þegar hún ræðir um einþáttunginn og þessa hádramatísku fjölskyldu- sögu. „Þessi nútímatexti er upp- gjör stúlkunnar við föður sinn. Hún er sjö ára þegar hann deyr en hann hafði skrifað handa henni leiktexta sem hún neitaði að flytja. Hennar líf er þögnin en þarna opnar hún sig. Eftir það at- riði í verkinu vaknar Molière og þau leika saman senuna sem hann hafði skrifað handa henni – það er friðþægingin, eins konar leikhús- kaþarsis.“ Þá senu leikur Bryn- hildur á frönsku ásamt leikaran- um Jean-Philippe Vidal sem leikur Molière. „Það kom leikstjóranum á óvart að ég kynni að tala frönsku,“ segir Brynhildur glettnislega, „og það dýpkaði samskipti okkar að- eins. Annars er mikill heiður að fá að vinna með þessu fólki og Nauz- yciel er afar fær leikstjóri. Þetta er í þriðja sinn sem þau endur- vekja sýninguna og í annað sinn sem franska leikkonan, sem vana- lega leikur dótturina, er skilin eftir heima því verkið hefur líka verið sýnt í Rússlandi og þá var einþáttungurinn fluttur á rúss- nesku.“ Brunaboðinn gellur aftur og Brynhildur ýjar líka að því að næsta verkefni Nauzyciel fyrir Þjóðleikhúsið, leikritið Sædýra- safnið sem skrifað er fyrir húsið af franska leikskáldinu Marie Darrieussecq, verði algjör flug- eldasýning. „Þetta er umsetinn leikstjóri og hann hefur valið með sér afburðafólk. Mér skilst að Barði í Bang Gang muni sjá um tónlistina og kannski muni Gabrí- ela Friðriksdóttir sjá um leikmynd- ina. Svo er Sjón að þýða verkið.“ Unnendur leikhússins eiga því lík- lega á góðu von en þess má geta að skáldkonan og verk hennar verða einnig kynnt á frönsku menning- arhátíðinni sem nú stendur yfir en hún mun koma hingað um miðjan apríl. Brynhildur Guðjónsdóttir er ann- áluð tungumálakona og fékk einnig að sýna það á leikferða- lagi til Bretlands á dögunum en þar sýndi Þjóðleikhúsið tíu sýn- ingar á uppfærslu Baltasars Kor- máks á ljóðleiknum Pétri Gaut eftir Ibsen. „Það var mjög gaman að fara aftur til Bretlands og leika á ensku,“ segir Brynhildur en þar var hún sannarlega á heimavelli því hún lærði í London, í Guild- hall School of Music and Drama sem er í Barbican Center þar sem hópurinn setti upp Pétur Gaut við frábærar undirtektir. „Það var líka reglulega gaman að hitta fólk- ið aftur og hreinlega fatta hvað maður á ótrúlega góða vini – hjart- ans vini. Maður hreinlega táraðist eftir hverja sýningu.“ Það virðast þó engin takmörk fyrir því hvert Pétur Gautur fer með fólk. Leik- arar Þjóðleikhússins hafa einnig farið með kappann á heimaslóð- ir í Noregi og Brynhildur upplýs- ir að búið sé að bjóða sýningunni til Ástralíu og Japans. „Mér skilst að það sé verið að skoða þau mál – Japanarnir eru víst að bjóða okkur árið 2010 en það víst ekki ráð nema í tíma sé tekið,“ segir hún hlæj- andi. „Pétur Gautur verður greini- lega að fá sér ferðatösku.“ Brynhildur hefur verið fastráðin í Þjóðleikhúsinu undanfarin átta ár en sagði samningi sínum laus- um fyrir stuttu. „Allt hefur sinn tíma og þetta var bara komið gott. Þetta er í raun bara eðlilegt fram- hald á því sem ég hef verið að gera og nú þarf ég að vera lausari og geta stjórnað því hvar ég ætla að vera. Ég er alls ekki hætt að leika í Þjóðleikhúsinu ef mér bjóð- ast hlutverk,“ segir hún og útskýr- ir að til dæmis sé mikil binding að taka þátt í barnaleikritum sem taki mikinn tíma um helgar. Bryn- hildur og hennar ektamaður Atli Rafn Sigurðarson eiga saman sex ára dóttur og hafa bæði verið að leika í Þjóðleikhúsinu alla hennar tíð. „Það er aldrei að vita hvað við gerum – við verðum hér og þar og alls staðar,“ segir hún brosandi. Til dæmis stendur til að Brynhildur leiki hjá Birni Hlyni Haraldssyni, Vesturportsmanni og mótleik- ara hennar í Pétri Gaut, sem mun leikstýra verkefni í samvinnu við Leikfélag Akureyrar. „Svo mun ég líka feta í fótspor Benedikts Erlingssonar og setja upp sýningu á Sagnalofti Landnámssetursins í Borgarnesi. Það er á stóra planinu en engin dagsetning hefur verið ákveðin ennþá,“ segir hún spennt. Margir þekkja líka Brynhildi af skjánum þar sem hún hefur sprellað ásamt kollegum sínum í gamanþættinum Stelpunum, en hvað er að frétta af grínleikkon- unni? „Hún er nú bara atvinnu- laus í augnablikinu – fólk getur bara hringt ef það hefur eitthvað fyrir hana að gera,“ svarar Bryn- hildur kankvís. „Þetta var allt allt öðruvísi en að standa á sviði, mér fannst æðislegt að fá tækifæri til að skrifa, ég meina „kann ég eitt- hvað að skrifa“ en svo kom í ljós að maður hafði alveg fullt af inni- stæðu í slíkt og það gekk ofsalega vel. Við ruddum frá okkur frá- bæru efni. En Stelpurnar eru leik- stjóraveldi – þetta eru ekki bara stelpur með stelpugrín, þetta var ákveðið annars staðar. En það var meiri háttar að vera með.“ Bryn- hildur segir þó að ef hún taki þátt í svona verkefni aftur þá vilji hún fá að ráða meira um áherslurnar. „Þetta var svolítið eins og að ferð- ast í bíl – mann langaði rosalega til að fá að stýra því maður vissi að það væri alveg hægt að keyra hina leiðina.“ En nú þarf leikkonan að leggj- ast yfir textann því leikstjórinn franski er væntanlegur til landsins til að leggja lokahönd á sýninguna. Brunaliðið og lögreglan líka eru komin til að kanna hvort menning- armusterið við Hverfisgötu standi í ljósum logum en svo reynist sem betur fer ekki þennan daginn. Frönsk snilld og framtíðin Það er franskt vor á klakanum þrátt fyrir kuldaköstin. Von er á virtu listafólki hingað til lands á næstu dögum sem setur upp nýstárlega klassík í Þjóðleikhúsinu. Leikkonan Brynhildur Guðjóns- dóttir tekur þátt í sýningunni og leikur þar bæði á íslensku og frönsku. Kristrún Heiða Hauksdóttir ræddi við hana um sýninguna, Stelpurnar og frjálsari framtíð. Mér fannst æðislegt að fá tæki- færi til að skrifa, ég meina „kann ég eitthvað að skrifa“ en svo kom í ljós að maður hafði alveg fullt af innistæðu í slíkt og það gekk ofsalega vel. Við ruddum frá okkur frábæru efni.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.