Fréttablaðið - 04.05.2007, Page 68
• Þau eru 20 sinnum líklegri til að eiga við hegðunarvandamál að stríða.
• Þau eru 20 sinnum líklegri til að lenda í fangelsi.
• Þau eru 9 sinnum líklegri til að hætta í skóla.
• Þau skilnaðarbörn sem halda góðu sambandi við báða foreldra vegnar betur.
Hlúa þarf að sambandi barna við feður sína eftir skilnað og tryggja börnunum
þennan sjálfsagða rétt með breytingum á núverandi lögum.
Vilt þú, frambjóðandi góður, beita þér í eftirfarandi málum ?
1. Að dómarar fái heimild til að dæma foreldrum sameiginlega forsjá, enda stríði það ekki gegn
hagsmunum barnsins. Þá fer enginn sigurviss í dómssal og vilji til samvinnu og samábyrgðar
eykst. Slík dómaraheimild var lögfest í Frakklandi fyrir 13 árum.
2. Að ástæðulausar tálmanir á umgengni við barnið verði gerð refsiverðar sem um ofbeldi væri
að ræða. Lög landsins kveða á um rétt barnsins til umgengni við báða foreldra en yfirvöld eru
úrræðalaus þegar kemur að tálmunum í þeim efnum. Í Frakklandi er refsiramminn allt að 12
mánaða fangelsi.
3. Að breyta m.a. 30 gr. barnalaganna sem segir á mannamáli að ef forsjárforeldri
fellur frá eftir eitt ár í sambúð með nýjum maka – þá fer nýi makinn sjálfkrafa
með forsjá barnsins – en ekki blóðforeldri þess.
Frambjóðendur !
Er jafnrétti fyrir alla – konur, menn og börn?
Vissuð þið að skilnaðarbörn á Íslandi eru nærri 20 þúsund?
Rannsóknir á skilnaðarbörnum sýna að:
Fréttamenn: 12 þúsund feður
bíða svara - Spyrjið!
Feður, mæður, afar og ömmur. Gerist
meðlimir í Félagi ábyrgra feðra og hjálpið
okkur að stuðla að foreldrajafnrétti og
réttindum barna okkar
Félagið þakkar stuðning aðstendanda Benedikts
Inga Ármannssonar og hvetur alla til að mæta á
minningartónleikana á NASA þann 3. maí kl 20:00
Allur ágóði þeirra rennur til Félags ábyrgra feðra.
S k r á n i n g á w w w. a b y r g i r f e d u r . i s