Fréttablaðið - 04.05.2007, Blaðsíða 42
BLS. 6 | sirkus | 4. MAÍ 2007
É g hef gaman af fötum enda verð ég að hafa það í þessari vinnu,“ segir Sölvi Tryggvason,
einn af stjórnendum Íslands í dag.
Sölvi segir áhugann á tísku hafa
vaknað á menntaskólaárunum. „Ég
var enginn fatamaður lengi af en svo
datt ég inn í vinahóp í menntaskól-
anum þar sem myndaðist sérstök
stemming. Sérstaklega þegar við
vorum að fara eitthvað að skemmta
okkur. Þá vorum við jafnvel í útvíðum
fötum og öðru sem ég myndi aldrei
klæðast í dag,“ segir Sölvi brosandi og
bætir við að hann sé ekki að elta
tískustrauma í blindni. „Ég kaupi
bara það sem mér finnst flott og fer
mér vel, sama hvort það sé í tísku eða
ekki.“ Sölvi kaupir aðallega föt fyrir
vinnuna í útlöndum en hversdagsföt-
in hér heima. „Mér finnst skemmti-
legra að versla í útlöndum og þá
kaupi ég mikið í einu en svo kannski
ekkert í marga mánuði á eftir.
Skemmtilegast finnst mér að versla í
New York og París og ég hef líka
gaman af því að komast á útimark-
aði.“ Vegna starfsins þarf Sölvi að
klæðast jakkafötum, sem hann segir
lítið mál. „Ég fíla mig í jakkafötum
svo það þarf ekkert að troða mér í
þau. Svo hef ég líka gaman af
bindum, ólíkt öðrum í Íslandi í dag
eða Kastljósi. Ég held ég sé eini
maðurinn í þessum þáttum sem
notar bindi,“ segir hann hlæjandi og
bætir við að hann sé á leiðinni til
New York í næsta mánuði. „Síðasta
árið hef ég aðallega verið að kaupa
mér jakkaföt og bleiserjakka en
konan mín vill að ég verði töffaralegri
í klæðnaði og hún er eini stílistinn
sem ég hlusta á. Ég ætla því að kaupa
mér fleiri hversdagsföt þegar við
förum til New York.“
indiana@frettabladid.is
SÖLVI TRYGGVASON Í ÍSLANDI Í DAG ER ALLTAF FLOTTUR Í TAUINU ÞEGAR HANN BIRTIST Á SKJÁNUM.
SIRKUS FÉKK AÐ SKOÐA UPPÁHALDSFÖTIN HANS SÖLVA.
FÍLA MIG Í JAKKAFÖTUM
ELSTA FLÍKIN „Ég
keypti þennan gráa
jakkafatajakka á
útimarkaði í París fyrir
átta árum. Þetta er
langelsta flíkin sem ég
nota ennþá og var því
peninganna virði. Ég
held ég hafi borgað
þúsund krónur fyrir
jakkann.“
JAKKRÍSBINDI „Þessi
jakkaföt nota ég bæði í
útsendingu og þegar ég
vil vera sæmilega fínn.
Bindið er nýstárlegt,
hálfgert jakkrísbindi. Ég
keypti það í Kaup-
mannahöfn.“
BENNI HINN „Ég
keypti þessi ljósu
jakkaföt í
Herragarðinum og
mætti einu sinni í
þeim í útsendingu.
Gaupi íþróttafrétta-
maður hefur ekki
kallað mig annað
en Benna Hinn
síðan.“
ALÞJÓÐLEGT DRESS „Ég keypti jakkann og trefilinn í Kaupmanna-
höfn fyrir stuttu en þessar flíkur eru það nýjasta í fataskápnum.
Gallabuxurnar keypti ég í Stokkhólmi svo þetta er alþjóðlegt
dress.“