Fréttablaðið - 04.05.2007, Blaðsíða 16
Benedikt S. Laf leur
Ný sýn í pólitík
Ný sýn í pólitík
sjö nýjar leiðir út úr úlfakreppu íslenskra stjórnmála
Ný sýn í pólitík eftir sjósundkappann og hugsjónamanninn
Benedikt S. Lafleur boðar tímamót í íslenskum stjórnmálum !
2007 er ár samvinnu og hugsjóna. Í bók sinni bendir Benedikt á sjö nýjar leiðir til að styrkja og sameina íslenskt sam-
félag. Fjallað er m.a. um þýðingu náttúrunnar, helstu mein þjóðarinnar og hvernig megi lækna þau, hvernig hægt sé að
draga úr spillingu í stjórnmálum og leyfa lýðræðinu að blómstra og hlutverk Íslands í heiminum. Hér er á ferðinni bók
sem enginn meðvitaður Íslendingur ætti að láta framhjá sér fara! Sérstaklega ekki fyrir kosningar!
Bókin er á sérstöku tilboðsverði, á aðeins 1.990 kr. og fæst í öllum helstu
bókaverslunum landsins, sem og í Listasetri Lafleur, Hólmaslóð 4, 101
Rvk. S: 659-3313, lafleur@simnet.is
Nouri al-Maliki,
forsætisráðherra Íraks, hvatti rík-
isstjórnir landa heims til að íhuga
alvarlega að gefa Írak eftir erlend-
ar skuldir þess. Hann sagði þetta í
opnunarræðu sinni á tveggja daga
alþjóðlegri ráðstefnu sem haldin
er í Egyptalandi. Ráðstefnunni er
ætlað að safna hugmyndum, fé og
öðrum stuðningi við stöðugleika
og uppbyggingu í Írak. Condo-
leezza Rice, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, átti viðræður við
starfsbróður sinn frá Sýrlandi og
var það fyrsti fundur háttsettra
fulltrúa landanna tveggja um ára-
bil.
Skuldir Íraks nema á að giska
því sem svarar 3.200 milljörðum
króna. Nú þegar hefur svonefndur
Parísar-klúbbur lánardrottna gefið
Írökum eftir skuldir að upphæð
um 100 milljarða Bandaríkjadala,
andvirði um 6.400 milljarða króna.
Eitt af markmiðum ráðstefnunn-
ar er að koma á betri tengslum
milli Íraksstjórnar, sem sjía-mús-
limar fara fyrir, og stjórnvalda í
arabalöndunum, þar sem súnní-
múslimar ráða öllu. Auk skuldaeft-
irgjafar vill Íraksstjórn að stjórn-
völd í arabalöndunum beiti sér
fyrir því að stemma stigu við
straumi erlendra bardagamanna
til Íraks, en þeir eru fjölmennir í
hópi uppreisnarmanna þar. Um
þetta síðasta atriði snerist fundur
Rice með sýrlenska utanríkisráð-
herranum Walid al-Moallem.
Írakar óska skuldaeftirgjafar
Hagdeild ASÍ spáir
því að verðbólga náist niður í 4,6
prósent á þessu ári og verði komin
niður í þrjú prósent á næsta ári.
Stýrivextir lækki aðeins en haldist
þó áfram háir og atvinnuleysi auk-
ist. Þetta kemur fram í vorskýrslu
ASÍ 2007, Aukin misskipting í góð-
æri.
Hagdeildin telur það áhyggju-
efni að augljóst jafnvægi sé ekki í
kortunum þegar stóriðjufram-
kvæmdum lýkur í ár og á næsta
ári en gerir þó ekki ráð fyrir harðri
lendingu í efnahagsmálum þjóðar-
innar. Viðskiptahallinn verði ekki
viðráðanlegur í náinni framtíð,
vextir haldist háir og verðbólga
mikil. Óvissan sé mikil. Lítið megi
út af bera til að hagkerfi þróist til
verri vegar og Seðlabankinn eigi
erfiðara með að bregðast við vegna
þess hve stýrivextir eru þegar
háir.
Í vorskýrslunni kemur fram að
ójafnvægi er mikið, viðskiptahalli
í sögulegu hámarki og gengis-
sveiflur miklar. Ólafur Darri
Andrason, hagfræðingur ASÍ,
segir að gert sé ráð fyrir því að
hafist verði handa við byggingu
álvers í Helguvík á síðari hluta
þessa árs, vextir haldist háir út
árið og fari ekki lækkandi fyrr en
á næsta ári. Halli verði á ríkissjóði
á næsta ári.
„Viðskiptahallinn er í sögulegu
hámarki og hættulega mikill. Við
höfum áhyggjur af því að það dreg-
ur ekki nægilega hratt úr honum,“
segir hann og bendir á að meðal-
heimili í landinu skuldi 240 prósent
af ráðstöfunartekjum sínum. „Þetta
hlutfall hefur farið hratt vaxandi.“
Ólafur Darri segir að ójöfnuður
hafi farið vaxandi í þjóðfélaginu og
það sé einkum vegna vaxandi fjár-
magnstekna og breytinga á skatt-
kerfinu sem komi þeim tekjuhæstu
best. Ójöfnuður ráðstöfunartekna
vaxi meira en heildartekna og því
dragi úr þeirri tekjujöfnun sem sé í
skattkerfinu. „Við erum að ýta
undir ójöfnuð með markvissum
aðgerðum frekar en að draga úr
ójöfnuði með markvissum
aðgerðum.“
Hagdeildin spáir því að hagvöxt-
ur haldist svipaður í ár og í fyrra og
verg landsframleiðsla verði um 2,5
prósent á þessu ári. „Einkaneyslan
hefur vaxið mjög mikið og við
gerum ráð fyrir að hægi á vextin-
um,“ segir hann. Gert er ráð fyrir
vaxandi kaupmætti milli ára en
minni lántökum. Fjárfestingar hins
opinbera fari vaxandi.
Ójafnvægi er
fram undan
Jafnvægi er ekki fyrirsjáanlegt í efnahagsmálum
þjóðarinnar, að mati hagdeildar ASÍ. Vextir verða
áfram háir, verðbólga mikil og krónan veikist.
Markmiðið er að
Landspítalinn verði meðal fimm
bestu háskólasjúkrahúsa á Norður-
löndum árið 2012 þegar kemur að
rannsóknarstörfum. Þetta kemur
fram í nýjasta tölublaði Lækna-
blaðsins sem í þetta sinn er gefið út
í samvinnu við vísindadaga Land-
spítalans.
Samkvæmt endurskoðaðri vís-
indastefnu spítalans er áætlað að
verja skuli þremur prósentum af
rekstrarútgjöldum í vísindarann-
sóknir. Helmingur þess fjár er
ætlað að renni í Vísindasjóð spítal-
ans, en það er um tvöföldun á opin-
beru framlagi til vísindastarfa. Þá
er einnig miðað að því að vísinda-
mennirnir afli samsvarandi upp-
hæðar til vísindastarfa frá öðrum
aðilum.
Landspítalinn verði
í hópi þeirra bestuBolvíkingar hafa skotið á neyðarfundi undir yfirskriftinni „Áföll í atvinnumálum“. Verður
hann í ráðhúsi Bolungarvíkur á
sunnudag og
hefst klukkan
17.
Fulltrúum
stjórnmála-
flokkanna sem
bjóða fram til
Alþingis í vor
hefur verið
boðið til
fundarins en
framsögu flytur
Anna Guðrún Edvardsdóttir,
forseti bæjarstjórnar.
Nýlega var 48 starfsmönnum
útvegsfyrirtækisins Bakkavíkur
sagt upp störfum og ekki er langt
um liðið síðan sextán starfsmenn
Ratsjárstofnunar í bænum
misstu vinnuna.
Áföll í atvinnu-
málum rædd
Fulltrúar Alcoa
Fjarðaáls og Fjarðabyggðar stað-
festu í gær samstarfssamning um
rekstur slökkviliðs.
Slökkviliðið verður tólf manna
atvinnulið á Reyðarfirði auk 45
manna í hlutastarfi í Neskaupstað.
Þá verða fimmtíu starfsmenn
Alcoa tiltækir sem varalið.
Þrír slökkviliðsmannanna fá laun
greidd frá Alcoa og uppbygging
öryggismiðstöðvar verður greidd
með fjármunum sem annars hefðu
farið í sambærileg verkefni innan
fyrirtækisins. Miðstöðin verður
steinsnar frá lóð Fjarðaáls.
Þetta er fyrsta atvinnuslökkvilið
Austurlands.
Reka saman
slökkviliðið