Fréttablaðið - 04.05.2007, Blaðsíða 64
BLS. 12 | sirkus | 4. MAÍ 2007
É g eignaðist fyrsta barnið mitt 29 ára og var þá algjörlega tilbúin
fyrir móðurhlutverkið,“ segir Kristín
S. Hjálmtýsdóttir en hún og eigin-
maður hennar, Kristján Kristjánsson,
eiga saman fjögur börn.
Stefnan sett út
„Stefnan var aldrei að eignast börn
ung. Þvert á móti. Ég var ákveðin í að
fara ekki í Háskóla Íslands heldur
læra í útlöndum og fór til Þýskalands
í háskóla þar sem ég var í námi og
starfi í sjö ár auk þess sem ég
ferðaðist mikið. Eftir að við Kristján
kynntumst flutti hann út til mín og
fór í skóla og fyrsta barnið var „Made
in Germany“ svo þetta er gæðabarn,“
segir Kristín hlæjandi en bætir við að
þýsku vinum hennar hafi fundist
barneignir strax eftir útskrift algjört
glapræði. „Þeim fannst ég kasta öllu
á glæ enda hvarlaði ekki að þeim að
eyða öllum þessum árum í háskóla til
þess eins að leggjast svo í barneignir,“
segir Kristín sem nældi sér í
mastersgráðu í hagfræði í Þýska-
landi. „Þar er ekki mikið gert til að
auðvelda fólki barnauppeldi, konur
sem eignast börn eru nánast
sjálfkrafa úr leik á vinnumarkaði,
leikskólapláss eru fágætur lúxus og
þess vegan kannski eðlilegt að
skólasystur mínar hefðu ekki
sérstakan áhuga á barneignum.“
Fimmta barnið færi með okkur
Elsta barnið þeirra Kristínar og
Kristjáns heitir Þórunn og er 15 ára,
Högni kemur næstur en hann er 13
ára, Brynja 7 ára og Kári er yngstur
og er 3 ára. „Við tókum þýska
skipulagið á þetta, tvær stelpur og
tveir strákar. Við eigum bæði litlar
fjölskyldur og langaði að eignast
allavega þrjú börn. Þegar við vorum
komin með tvö vorum við alveg á því
að eignast eitt í viðbót og Kári var
líka hjartanlega velkominn. Við
höfum kraft og andlega heilsu til að
eiga þessi fjögur en ég held að
fimmta barnið myndi fara með
okkur. Elsta dóttir okkar hefur líka
margítrekrað að þetta sé orðið gott,“
segir hún brosandi og bætir við að
börnin haldi þeim ungum í anda.
„Við erum á endalausum leikskóla-
hátíðum, skíðamótum, tónlistar-
skólatónleikum og fótboltamótum
sem er bara af hinu góða. Að minnsta
kosti upp að vissu marki.“
Saman í foreldrahlutverkinu
Kristján starfaði lengi sem fjöl-
miðlamaður og flestir muna líklega
eftir honum úr Kastljósi. Í dag stýrir
hann upplýsingasviði FL Group.
Kristín starfar hjá Viðskiptaráði
Íslands og er framkvæmdastjóri
alþjóðasviðs ráðsins. Hún segir
sameiningu móðurhlutverksins og
starfsframans ganga vel. „Þetta
gengur alveg þokkalega en númer eitt
er að vera í þessu saman. Í öðru lagi á
ég frábæra mömmu og tengdafor-
eldra. Mamma leysir daglegu
reddingarnar en hún er mjög hress
heldri borgari og hennar hjálp er
ómetanleg. Tengdaforeldrarnir koma
auk hennar svo inn í þegar um stærri
verkefni er að ræða, s.s. þegar við
þurfum að fara erlendis vegna
vinnunnar. Þá koma þau að norðan
og flytja inn á meðan,“ segir hún og
bætir við að þau hafi tvisvar verið
með au pair-stelpur á heimilinu.
„Brynja dóttir okkar varð örlagavald-
ur í lífi tveggja pólskra fjölskyldna.
Tvær stelpur sem komu hingað til að
passa hana hafa sest að, eignast
íslenska menn og síðan börn,“ segir
hún og bætir við að eftir að fjórða
barnið fæddist hafi þau varla pláss
fyrir au pair. Þeim hafi samt líkað vel
að þetta fyrirkomulag og hafi verið
einstakleg heppin með þessar tvær
pólsku stelpur og séu að velta fyrir
sér að taka enn eina inn á heimilið.
Stöðugur slagur við tímann
Þrátt fyrir miklar annir heima og í
vinnu segir Kristín að þau hjónin
reyni að gefa sér tíma til að gera
eitthvað tvö saman þótt þau mættu
gera meira af því. „Við fórum til Íran í
tvær vikur um páskana og höfðum
aldrei áður yfirgefið börnin í svona
langan tíma. Eins og allir foreldrar
vita þá er forgangsröðunin yfirleitt sú
að fyrst koma börnin, svo börnin og
skólinn, svo börnin og áhugamál-
in og jafnframarlega er vinnan.
Sjálfur er maður í fimtma
sæti, sem í þessu
tilfelli er
ekki
eftirsóknarvert. Þetta er stöðugur
slagur við tímann og eitthvað verður
undan að láta en það er kannski ekki
endilega með
sérstökum trega
sem maður setur
sig aftast í
röðina, enda eru
stundirnar með
börnunum með
þeim allra bestu
sem hvert foreldri
á. Við tökum þátt í
því
sem krakkarnir eru að gera ótil-
neydd. Þau eru í íþróttum og tónlist
og við erum alltaf að skutla þeim
eitthvað, sérstaklega upp í Bláfjöll á
veturna. Við eigum því sjaldast
rómantíska stund við kvöldverðinn
öll saman á veturna þar sem
kvöldverðurinn er oftast Abt-mjólk í
bílnum og farið er yfir daginn á
ferðinni en við erum með rúmgóðan
bíl svo það fer vel um alla,“ segir hún
og brosir. „Þetta er auðvitað oft
flókið, en á móti kemur að Reykjavík
er ágæt borg fyrir barnafólk að
mörgu leyti. Ég orða það nú oft
þannig að við séum heppin
að búa ekki á Manhattan
og standa í skutlinu þar!“
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
„Við fórum til Íran í tvær
vikur um páskana og
höfðum aldrei áður yfirgefið
börnin í svona langan
tíma,“ segir Kristín en þau
Kristján reyna að finna sér
tíma til að gera eitthvað
tvö saman.
RÍK Kristín ásamt börnunum fjórum, Þórunni, Högna, Brynju og Kára.
Kristín S. Hjálmtýsdóttir
og Kristján Kristjánsson
eiga fjögur börn. Kristín var
29 ára þegar hún eignaðist
sitt fyrsta barn en þá var
hún tilbúin fyrir móðurhlut-
verkið. Það er í nógu að
snúast hjá þeim hjónum en
Kristín segir að á meðan
allir séu kátir og glaðir sé
foreldrahlutverkið skemmti-
legt verkefni.
BÖRNIN ERU Í FYRSTA SÆTI
Mikil fagnaðarlæti brutust út í
Austur-Evrópu þegar tilkynnt var að
samningar hefði náðst um úrslit í
Eurovision næstu árin. Samningavið-
ræður milli austantjaldsþjóðanna hafa
staðið í nokkur ár og var
aðalþrætuefnið hvaða land ætti að
vinna fyrst. Loksins var ákveðið að
draga og kom nafn Slóveníu fyrst upp
úr hattinum. Því næst var varpað
hlutkesti til að skera úr um hvort ætti
að fara rang- eða réttsælis hringinn um
Austur-Evrópu og varð réttsælis ofan á.
Þau tíðindi glöddu Króata sem munu
fagna sigri í Eurovision 2008 en
Ungverjar sitja eftir með sárt ennið.
Þeir munu ekki vinna fyrr en árið 2298,
síðastir Austur-Evrópuþjóða.
Slóvenar krýndir
sigurvegarar
Eurovision 2007
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
7
5
9
6
„Ég var að borga alltof mikið fyrir símnotkun og var eiginlega
kominn í hálfgerðan vítahring. Eftir að ég skráði mig í SKO
hefur allt breyst. Núna á ég alltaf smá pening afgangs um
mánaðarmótin og ef ég tel allt árið þá er ég að spara heilan
helling. Svo losnar maður líka við að fá þessa reikninga heim.
Stór plús.“
„Fáránlega
ódýrt!“
Ungur háskólanemi segist
hálf undrandi á sím-
reikningum sínum eftir
að hann skipti yfir í SKO.
Háskólanemar í SKO eru ánægðir með lífið.