Fréttablaðið - 04.05.2007, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 04.05.2007, Blaðsíða 66
BLS. 14 | sirkus | 4. MAÍ 2007 R auðhærða sjarmatröllið Eiríkur Hauksson á ekki mikinn séns á að vinna Eurovision- keppnina í Helsinki í ár ef marka má veðbankana. Eiríki og laginu Valentine Lost er spáð mjög svipuðu gengi af öllum bönkunum eða frá 1 á móti 40 upp í 1 á móti 60. Einnig er kappanum ekki spáð góðu gengi í forkeppninni og samkvæmt veðbönk- unum kemst hann ekki áfram. Veðbankarnir spá Mariju Serefovic frá Serbíu sigri í keppninni en lagið sjálft fékk ekki góða dóma í Sirkus fyrir tveimur vikum. Einnig er Svíum spáð góðu gengi og á hljómsveitin The Ark góða möguleika á að vinna keppnina. En Eurovision er eins óútreiknanleg og forseta- kosningarnar í Bandaríkjunum. Silvíu Nótt var spáð mjög góðu gengi í fyrra en varð síðan í þrettánda sæti undankeppninnar. Eitt er alveg á hreinu, að Eiríkur Hauksson á sér marga aðdáend- ur bæði á Norðurlöndunum og í Evrópu sem eiga eftir að liggja á símalínunni. Áfram Eiríkur! Veðbankarnir hafa litla trú á Eiríki Haukssyni ER SPÁÐ SIGRI Mariju Serefovic frá Serbíu er spáð sigri í Eurovision ef marka má veðbank- ana. Hún er einnig í forkeppninni með Eiríki. EKKI SÉNS Eiríkur Hauksson á ekki séns í Eurovision ef veðbankarnir hafa rétt fyrir sér. GÓÐIR MÖGULEIKAR Svíar mæta sterkir til leiks í Eurovision í ár og er búist við góðu gengi þeirra. BOSNÍA/ HERSEGOVÍNA Flytjandi: Maria Sestic. Lag: Rijeka Bez Imena Það hefur sýnt sig og sannað að Austur- evrópubúar eiga að syngja á móðurmáli sínu. Það hljómar eitthvað skringilega á ensku. Bosníu hefur gengið mjög vel undanfarin ár. Í ár verður engin undantekning. Maria er gullfalleg og lagið tregafullt. Það er þó ekki eins gott og síðustu tvö frá Bosníu. SPÁNN Flytjandi: D’NASH. Lag: I love you mi vida. I love you mi vida er án efa eitt versta lagið í allri keppninni. Það er svo slæmt. Það er svo hallærislegt að orð fá því ekki lýst. Strákasveitin D’NASH minnir einna helst á Nsync þegar þeir voru að byrja, en enginn þeirra er eins sætur og Justin Timberlake. Því miður. ÍRLAND Flytjandi: Dervish. Lag: They Can’t Stop the Spring. Vá, þetta lag er svo írskt að maður er bara kominn í írsku sveitina með búálfinn í grænu jakkafötunum sér við hlið í gömlum þjóðdönsum. Þetta á ekki eftir að virka í Eurovision. FINNLAND Flytjandi: Hanna Pakarinen. Lag: Leave Me Alone. Þessi skvísa vann finnsku Idol-keppnina og nýtur mikilla vinsælda í heimalandi sínu. Lagið er alls ekki sérstakt og textinn enn verri. Leave me alone, I wanna go home. Þetta er MTV- tónlist alla leið. LITHÁEN Flytjandi: 4fun. Lag: Love or Leave Hvað er hægt að segja um þessa tonlistarmenn. Lagið Love or Leave er ekki skemmtilegt fyrir fimm aura. Söngkonan hljómar eins og Julio Iglesias þegar hann syngur á ensku. GRIKKLAND Flytjandi: Sarbel. Lag: Youssou Maria Þessi kynþokkafulli Grikki á eftir að moka inn atkvæðum með lagi sínu og útliti. Hresst lag í anda Ricky Martin. Eurovision eins og það á að vera. SVÍÞJÓÐ Flytjandi: The Ark. Lag: The Worrying Kind. Svíar eru „in it to win it“ þetta árið. Það er svo sem ekki nýtt fyrir þá. Lagið er þræl skemmtilegt. Þetta er glysrokk út í gegn og Svíar eiga góðan möguleika að vinna keppnina í ár. The Ark mun spila á Hróarskeldu í sumar fyrir þá sem hafa ekki áhuga á Eurovision. FRAKKLAND Flytjandi: LES FATALS PICARDS. Lag: L’amour Á La Francaise. Þetta á að vera nokkurs konar grín lag, en það misheppnaðist svona rosalega hjá þessum köppum. Svo er lagið alveg drepleiðinlegt. RÚSSLAND Flytjandi: Serebro. Lag: Song # 1 Rússar senda í ár stelpusveitina Serebro. Hvað er svosem hægt að segja um þetta lag annað en að við höfum heyrt þetta þúsund sinnum áður. Því miður. Þær eiga samt án efa eftir að vera mjög sexý á sviðinu. Það gæti hjálpað til. ÞÝSKALAND Flytjandi: Roger Cicero. Lag: Frauen Regier’n Die Welt Það verður gaman að sjá hvernig Roger Cicero vegnar í keppninni því þetta lag er mjög skemmtilegt. Þetta er djassað lag, sungið á þýsku. Ótrúlegt en satt, kemur það vel út. ÚKRAÍNA Flytjandi: Verka Seduchka. Lag: Dancing Lasha Tumbai. Án efa steiktasta lagið í keppninni. Allt við lagið er súrt. Textinn, búningarnir, takturinn. Þau minna einna helst á Stubbana á sýru. Það skrýtnasta er að þeim gæti gengið vel. BRETLAND Flytjandi: Scooch. Lag: Flying the Flag (For You) Úff, hvað Bretar eru glórulausir þegar það kemur að þessari keppni. Þetta er blanda af Abba og Aqua. Ekki gott. RÚMENÍA Flytjandi: Todomondo. Lag: Liubi, liubi I love You Eurovision er orðið of „politically correct”. Annar hver flytjandi syngur lag sitt á þremur tungumálum og þessir gaurar eru engin undantekning. Þeir syngja um ástina á nokkrum tungumál- um. ARMENÍA Flytjandi: Hayko. Lag: Anytime You Need. Keppnin endar á dramatísku nótunum. Söngvarinn Hayko er svo fullur af trega að manni verður illt í maganum. Í myndbandinu er hann í hvítum stutterma- bol og hvítum gallabuxum. Vonandi mætir hann í þeim á sviðið í Helsinki. ÚRSLITAKVÖLD EUROVISION Með eða án Eiríks Haukssonar fylgjumst við öll með úrslitakeppninni í Eurovision. Keppnin í ár verður afar litrík. Það er mikið af stórfurðulegum lögum og öðrum þrælskemmtilegum. Það verður gaman að sjá hvort Eurovision-áhorfendur falla fyrir þessu furðulega í ár eða klassísku lagi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.