Fréttablaðið - 04.05.2007, Blaðsíða 96

Fréttablaðið - 04.05.2007, Blaðsíða 96
 Fyrir leiki Manchester United og AC Milan í undanúrslit- um Meistaradeildar Evrópu vildu gárungarnir meina að á vellinum myndu mætast tveir bestu leik- menn heimsins í dag – Cristiano Ronaldo frá Portúgal og Kaka frá Brasilíu. Það einvígi vann Kaka óumdeil- anlega. Sérstaklega í síðari leikn- um var munurinn mikill á leik- mönnunum, Ronaldo sást varla á meðan Kaka lék við hvern sinn fingur og skoraði fyrsta mark leiksins með afar laglegu skoti. Meðalaldur AC Milan er frekar hár miðað við það sem gengur og gerist en í Kaka á liðið dýrmætan fjársjóð sem hefur þroskast mikið síðan AC Milan lék síðast í úrslit- um Meistaradeildarinnar. Þá var Kaka 23 ára en er nú 25 ára. Sumir gætu gengið svo langt að segja að þessi tveggja ára þroskamunur sé lykill að velgengni AC Milan í Aþenu í vor. Ótal dæmi eru þess að bestu leikmenn heims hverju sinni hafi brotist í gegnum mikla fátækt í æsku og notað knattspyrnuna sem flóttaleið úr fátæktinni. Slíkt er þó ekki tilfellið með Kaka. Hann er sonur verkfræðings og kominn af efnuðu fólki. Algengt er í Brasilíu að ungir menn í þeirri aðstöðu noti sér slík forréttindi til að geta tekið því ró- lega og lifað áhyggjulausu lífi. Kaka ákvað frekar að nýta sér þá kosti sem honum stóðu til boða, sína miklu vinnusemi, gáfur og hæfileika, til að verða einn allra besti leikmaður heimsins í dag. Ricardo Izecson Santos Leite fæddist hinn 15. maí 1982 í höf- uðborginni Brasilíu í landinu sem ber sama nafn. Eins og svo margir landar sínir er hann afar trúaður einstaklingur en lítur samt á sjálf- an sig sem fyrirtæki. Þetta sagði hann í viðtali þegar hann lék með Sao Paulo í heimalandinu. „Ég veiti Sao Paulo þjónustu og verð að standa mig vel. Ef mitt fyrirtæki gengur vel mun skjól- stæðingur minn, Sao Paulo, vera ánægt með mig. Ég mun svo njóta góðs af því. Síðar mun ég reyna að finna stærri skjólstæðing – lands- liðið eða erlent félag. Ef Sao Paulo þarf að selja mína þjónustu getur það gert svo.“ Þegar Kaka var sjö ára gam- all mælti íþróttakennarinn í skóla hans með því við foreldra hans að hann gengi í svokallaðan fót- boltaskóla. Knattspyrnufélag Sao Paulo var skammt undan og gekk honum vel þar. Fimmtán ára gam- all samdi hann við félagið og spil- aði með unglingaliðinu. Þá þurfti hann að velja. Fót- boltann eða námið. Faðir hans er verkfræðingur og hefði hann vel getað fylgt í fótspor hans. En for- eldrarnir ákváðu að styðja hann í hverri ákvörðun sem hann tæki og gerðu það eftir að hann valdi fót- boltann. Átján ára gamall varð hann fyrir áfalli. Hann brákaðist á hrygg er hann skall á sundlaugarbotni og var óttast að skaðinn gæti orðið varnalegur. Á sjúkrabeðinu útlist- aði hann tíu markmið sem má sjá hér til hliðar. Tíu skref sem myndu koma honum á þann stað sem hann er í dag. Auðvitað gekk þetta eftir. Á þessum tíma gekk upp og ofan eins og gengur og gerist. Í stór- um dráttum komst hann í aðallið Sao Paulo, var valinn í brasilíska landsliðið og keyptur til AC Milan. Þar hefur hann slegið í gegn eins og sást svo greinilega á San Siro í vikunni. Byggt á umfjöllun World Soccer. Eftir að hafa pakkað vörn Manchester United saman síðustu vikurnar ætti fáum að leynast að Brasilíumað- urinn Kaka er með betri leikmönnum heimsins í dag, ef ekki sá besti. Árangurinn er þó engin tilviljun. Einar Árni Jóhanns- son er óvænt hættur störfum sem þjálfari Njarðvíkur eftir þrjú ár þar sem hann náði mjög góðum árangri. Undir stjórn Einars vann liðið meðal annars einn Íslands- meistaratitil og einn bikarmeist- aratitil. Í deildinni gekk liðinu betur ár frá ári undir stjórn Ein- ars og liðið vann deildarmeistara- titilinn í vetur en tapaði fyrir KR í úrslitum Íslandsmótsins. „Ég settist niður með verð- andi stjórn og átti fullan stuðn- ing hennar en það eru ýmis ljón í veginum sem eru ástæðan fyrir þessari ákvörðun. Ég ætla ekk- ert að tjá mig neitt sérstaklega um þá hluti,“ sagði Einar Árni sposkur en hann var ófáanlegur til að ræða um ástæður uppsagn- arinnar. „Ástæðan liggur í mörg- um litlum hlutum. Ég tók þessa ákvörðun algjörlega á eigin for- sendum og vil yfirgefa félagið í góðu.“ Einar Árni segist fastlega búast við því að vera áfram í körfu- boltanum endi þekki hann lítið annað. Heimildir Fréttablaðsins herma að Haukar séu á eftir Ein- ari og svo má fastlega búast við því að Skallagrímur hleri Einar. „Ég verð áfram í körfubolta. Ég á mér eiginlega ekkert líf fyrir utan körfuboltann, fjölskylduna, United og Bubba,“ sagði Einar léttur. „Ég þori ekki að segja hvað verður en ég vil þjálfa áfram. Það eru engin tilboð á borðinu eins og er en það eru nokkrar fyrirspurnir.“ Ásgeir Guðbjartsson, vara- formaður körfuknattleiksdeild- ar Njarðvíkur, er á meðal þeirra manna sem munu sitja í nýrri stjórn sem verður skipuð um miðjan mánuðinn. Sá hópur mun funda um helgina um framhaldið. „Það eru ýmis nöfn á lofti á borð við Teit Örlygsson og Val Ingimundarson en ekkert ligg- ur ljóst fyrir með þjálfaramálin,“ sagði Ásgeir. Á mér ekkert líf fyrir utan körfuboltann, fjölskylduna, United og Bubba Morthens Það eru ekki bara liðin í fallbaráttu ensku úrvalsdeildar- innar sem hafa að miklum pen- ingaupphæðum að keppa við að reyna að halda sæti sínu í deild- inni. Liðin sem komast upp úr 1. deildinni eiga von á vænni pen- ingaupphæð tryggi þau sér eitt af sætunum þremur sem eru í boði í ár. Steve Bruce, stjóri Birming- ham, og Roy Keane, stjóri Sund- erland, eru báðir búnir að tryggja sínum liðum tvö efstu sætin og þar með um sjö og hálfan millj- arð króna sem enska úrvalsdeild- in borgar nýliðunum í deildinni. Þessir peningar eiga að hjálpa liðum að fóta sig í ensku úrvals- deildinni enda er mikið stökk að fara upp þar sem liðin þurfa að fara út í fjárfestingar í nýjum leikmönnum og öðru sem teng- ist því að spila í einni bestu knatt- spyrnudeild í heimi. Þriðja og síðasta sætið er í boði í fjögurra liða úrslitakeppni sem tekur við eftir að deildinni lýkur. Derby er með 81 stig og er þegar búið að tryggja sig inn í úrslita- keppnina en sex lið bítast um hin þrjú sætin í lokaumferðinni um helgina. Þetta eru lið West Bromwich (73 stig), Wolves (73), Southampton (72), Stoke (72), Preston (71), Col- chester (69) og Sheffield Wednes- day (68). Liðin þrjú sem komast upp fá tveimur og hálfum milljarði meira í ár heldur en áður og aðalástæða þess eru nýju sjónvarpssamning- arnir sem enska úrvalsdeildin hefur tryggt sér. Liðin fá um fjóra og hálfan milljarð íslenskra króna fyrir 2007-2008 tímabilið og hafa þegar tryggt sér aukagreiðslur falli liðið strax aftur. Þar eru á ferðinni svonefndar fallhlífargreiðslur sem tryggja liðunum rúman milljarð íslenskra króna á tímabili næstu tvo vetur. Það má því búast við harðri keppni í lokaumferðinni um helg- ina sem og í úrslitakeppninni sem lýkur með úrslitaleik á Wembley 28. maí. Liðin keppa um sjö og hálfan milljarð Mikael Forssell, fyrrum leikmaður Chelsea, segir það lík- legt að hann fari frá Birming- ham til Hannover 96 í Þýskalandi. Koma þessa finnska framherja myndi þýða mikla aukna sam- keppni fyrir Gunnar Heiðar Þor- valdsson landsliðsmann. Gunnar Heiðar hefur lítið sem ekkert getað spilað með liðinu síðan hann kom síðastliðið sumar vegna meiðsla. Sjálfur hefur hann sagt að hann viti ekki hvort hann verði áfram hjá félaginu. Forssell á leið til Hannover? Kristján Örn Sigurðs- son, leikmaður Brann, fékk bestu einkunnir Íslendinganna í norsku úrvalsdeildinni í fjórðu umferð deildarinnar sem lauk í vikunni. Dagbladet, Nettavisen, Verdens Gang og Aftonbladet gáfu honum samtals 6 í meðaleinkunn fyrir frammistöðu sína í 3-0 tapleik fyrir Brann. Stefán Gíslason var eini Íslend- ingurinn sem skoraði í umferð- inni en hann gerði eina mark Lyn sem tapaði fyrir Lilleström, 3-1. Átta Íslendingar af fjórtán voru í byrjunarliðum sinna liða, einn kom inn á sem varamaður en hinir komu ekki við sögu. Kristján bestur HK-ingar hafa fengið liðsstyrk fyrir komandi átök í Landsbankadeildinni. Sóknar- maðurinn Eyþór Guðnason hefur ákveðið að ganga til liðs við félag- ið en hann hefur undanfarið leikið með Njarðvík. Hann hefur áður leikið með HK, sumarið 2005. Eyþór til HK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.