Fréttablaðið - 04.05.2007, Blaðsíða 56
4. MAÍ 2007 FÖSTUDAGUR12 fréttablaðið kópavogur
Sunnuhlíð var fyrsta sérhann-
aða hjúkrunarheimilið fyrir
aldraða á Íslandi. Heimsmet
var sett er fyrsta skóflustunga
heimilisins var tekin.
Í apríl 1978 boðaði Soroptimista-
klúbbur Kópavogs formenn og
fulltrúa allra þjónustuklúbba og
félaga í Kópavogi á fund þar sem
til umræðu voru málefni aldraðra
Kópavogsbúa. Ekkert hjúkrunar-
rými var til í bænum og miklum
erfiðleikum bundið að koma öldr-
uðum sjúklingum inn á sjúkrahús
í Reykjavík. Þessu vildu meðlimir
Soroptimistaklúbbsins breyta.
Með fulltingi fundargesta var
samþykkt tillaga frá fulltrúa
Rauðakrossdeildar Kópavogs um
að stofna sjálfseignarstofnun um
byggingu hjúkrunarheimilis fyrir
aldraðra með aðild hinna ýmsu fé-
laga í Kópavogi. „Samtökin sem
stofnuð voru eru Sunnuhlíðarsam-
tökin. Þau reka Sunnuhlíð í dag en
þau samanstanda af ellefu félögum
í bænum,“ segir Jóhann Árnason,
framkvæmdastjóri Sunnuhlíðar.
Hafist var handa við að safna
fé til byggingar heimilisins og
var leitað eftir stuðningi íbúa
Kópavogs, samtaka í bænum og
fyrirtækja á svæðinu. Móttökurn-
ar voru góðar, ekki síst frá Kópa-
vogsbæ, sem lagði til fimmtán pró-
sent af byggingarkostnaði. Sam-
staðan var mikil í bænum, sem
sést best á að á þriðja þúsund gesta
mætti á reisugildið.
Árið 1980 var fyrsta skóflus-
tungan tekin en það gerði Ragn-
hildur Guðbrandsdóttir. Hún var
þá elsti íbúi Kópavogs, 101 árs
gömul, og var afrek hennar skráð
í heimsmetabók Guinness þar sem
hún var elst allra í heiminum til að
taka fyrstu skóflustungu. „Sunnu-
hlíð er fyrsta sérhannaða hjúkr-
unarheimilið fyrir aldraða á Ís-
landi,“ segir Jóhann. „Það var vígt
árið 1982 og hefur allar götur síðan
stækkað og dafnað.“
Meðal þeirrar starfsemi sem
Sunnuhlíð hefur undir sínum
verndarvæng eru þjónustuíbúð-
ir aldraðra og dagvistun. „Þá er
fólkið sótt á morgnana og hér fær
það ýmsa þjónustu og gerir ýmis-
legt sér til gamans yfir daginn,“
segir Jóhann. „Það mætti segja
að þau verði ung í annað sinn, séu
send í skólann yfir daginn og komi
svo þreytt heim á kvöldin.“
tryggvi@frettabladid.is
Heimsmetaheimili
Sunnuhlíð, hjúkrunarheimili aldraðra í Kópavogi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Ragnhildur Guðbrandsdóttir tekur hér fyrstu skóflustungu Sunnuhlíðar. Hún er elst
allra í heiminum að gera slíkt.
Amokka-kaffihúsið í Atlantahúsinu
mun bæði þjóna starfsmönnum húss-
ins sem mötuneyti og almenningi sem
kaffihús.
Kaffihúsið Amokka hefur lengi vel einungis
verið starfrækt í Borgartúni 21A. Nú hefur
starfsemin stækkað og síðustu daga hafa
starfsmenn Atlanta og Nýherja í Kópavogi
gætt sér á hádegismat framreiddum í nýju
mötuneyti og kaffihúsi Amokka í Atlanta-
húsinu. „Þá vantaði nýtt mötuneyti og vildu
endilega fá gott kaffi í leiðinni,“ segir María
Rós Jónsdóttir, eigandi Amokka, og bætir
við hlæjandi: „Ætli þeir hafi ekki verið
orðnir hundleiðir á vélakaffinu.“
Innan skamms verður mötuneytið og
kaffihúsið opnað almenningi og verður
reksturinn með svipuðu sniði og í Borgar-
túninu. „Það verður hægt að fá sömu rétt-
ina, bæði matinn og kökurnar,“ segir María.
„Kaffihúsið er einnig 250 manna veislusalur
og við búumst við því að um helgar verði
það nýtt þannig, en til að byrja með verður
ekki opið um helgar hjá okkur.“
Amokka er með vínveitingaleyfi og er
boðið upp á bjór og léttvín. „Það myndast
oft skemmtileg stemning hjá okkur í Borgar-
túninu á fimmtudags- og föstudags eftir-
miðdögum. Þá kemur fólk og fær sér einn
til að slappa af eftir vinnu og ná sér niður
fyrir helgina,“ segir María. „Við vonum auð-
vitað að svo verði einnig á nýja staðnum og
að fólk taki honum jafn vel og okkur hefur
verið tekið hingað til.“ tryggvi@frettabladid.is
Amokka opnar í
Atlantahúsinu
Amokka í Kópavoginum verður opnað innan skamms. Kaffihúsið er í Atlantahúsinu.