Fréttablaðið - 04.05.2007, Blaðsíða 58
fréttablaðið kópavogur 4. MAÍ 2007 FÖSTUDAGUR14
Knattspyrnuakademía Íslands
stendur fyrir byggingu mikilla
íþróttamannvirkja við Valla-
kór í Kópavogi í samvinnu við
Kópavogsbæ en akademían
mun sjá um rekstur mann-
virkjanna.
Knattspyrnuakademían saman-
stendur af þeim Loga Ólafssyni,
Arnóri Guðjohnsen, Ásgeiri Sig-
urvinssyni, Guðna Bergssyni og
Eiði Smára Guðjohnsen en þeir
halda námskeið fyrir ungt og efni-
legt knattspyrnufólk.
„Kópavogsbær á knattspyrnuhöll-
ina en við hliðina á henni er viðbót-
arbygging sem er íþróttahús með
tvöföldum handboltavelli, líkams-
rækt og sundlaug, sem við eigum
og síðan munum við reka allt
saman,“ segir Logi Ólafsson.
„Þarna verður heilsu-, íþrótta- og
fræðasetur þegar allt verður til-
búið en knatthúsið verður tekið í
notkun í haust,“ segir Logi. „Það
var tekin ákvörðun um að stækka
íþróttasalinn í tvöfaldan hand-
boltavöll að beiðni íþróttafélag-
anna í Kópavogi þannig að nú var
verið að skila inn nýjum teikning-
um að húsinu miðað við stækkun-
ina. Við gerum ráð fyrir að það
verði 12-16 mánuðir þangað til
þetta verður allt saman tilbúið,“
bætir Logi við.
Logi segir það fyrst og fremst
vera íþróttafélögin í Kópavogi, HK
og Breiðablik, sem komi til með að
nýta aðstöðuna. „Síðan erum við að
búa til aðstöðu fyrir okkar starf-
semi til að geta haft einhverjar
bækistöðvar fyrir okkar námskeið.
Við viljum vera með afreksdeild til
að geta þjálfað þá sem eru ungir og
efnilegir,“ segir Logi og bætir því
við að einnig verði húsið nýtt af
framhaldsskóla sem væntanlega
verði á staðnum. „Það liggja ekki
enn fyrir nein leyfi um framhalds-
skólann en við og bærinn stefn-
um að því að hann rísi á staðnum,“
segir Logi og bætir því við að hann
verði þá íþrótta- og heilsutengd-
ur. „Þar verða afreksbrautir fyrir
flestar stærstu íþróttagreinarn-
ar auk hestamennsku því stærsta
hestasvæði á landinu verður þarna
í næsta nágrenni. Gustur er að fá
svæði úthlutað þar sem verður
pláss fyrir 4-5.000 hesta.“
Logi segir uppbyggingu svæðis-
ins vera í mikilli vinnslu og reikn-
að sé með að í næsta húsi verði
væntanlega læknasetur, heilsu-
gæsla, sjúkraþjálfun og fleira í
þeim dúr.
Spurður um nafn á íþrótta-
mannvirkjunum segir Logi að enn
hafi ekki verið fundið nafn á þau.
„Það verður eflaust sett á einhver
skemmtileg samkeppni um hvað
þetta á að heita,“ segir Logi.
sigridurh@frettabladid.is
Íþróttamannvirki við Vatnsenda
Logi Ólafsson og félagar hans í Knatt-
spyrnuakademíu Íslands munu halda
utan um rekstur Heilsu-, íþrótta- og
fræðasetursins við Vallarkór í Kópavogi.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Stórt og glæsilegt íþróttamannvirki
með knattspyrnuhöll, tvöföldum
handboltavelli, sundlaug og fleiru
rís nú við Vallarkór í Kópavogi en
reiknað er með að framkvæmdum
ljúki á næstu 12-16 mánuðum.