Fréttablaðið - 04.05.2007, Blaðsíða 44
BLS. 8 | sirkus | 4. MAÍ 2007
Þ egar ég sótti um ríkisborgara-réttinn gerði ég mér ekki miklar vonir en óskaði eftir
því að Alþingi legði mat á aðstæður
mínar. Ég var mjög heppin og ég veit
að ég get orðið góður íslenskur
ríkisborgarari því ég er menntuð og
dugleg. Ég er mjög glöð yfir því að
hafa fengið ríkisborgararéttinn, glöð
yfir því að vera orðin Íslendingur,“
segir Lucia Celeste Molina Sierra,
unnusta sonar Jónínu Bjartmarz
umhverfisráðherra sem fékk
íslenskan ríkisborgararétt 16. mars
síðastliðinn frá Allsherjarnefnd.
Veit sannleikann
Mikið hefur verið rætt og ritað um
þessa veitingu í fjölmiðlum og sýnist
sitt hverjum. Því er haldið fram að
Jónína hafi sjálf í krafti valds síns
þrýst á að tengdadóttir hennar nyti
sérstakra forrétinda en nefndarmenn
hafa harðneitað því og það sama
gerir Lucia.
„Það er ekki rétt og ég veit
sannleikann. Ég hafði tækifæri til að
sækja um ríkisborgararétt og gerði
það. Ég fékk hann og er afskaplega
glöð og þakklát því hann hjálpar mér
mikið í framhaldinu,“ segir Lucia og
þvertekur fyrir að það hafi hjálpað
henni að vera unnusta sonar
umhverfisráðherra. Jónína hafi þvert
á móti gætt þess að engin merki um
tengsl kæmu fram.
„Það var ekkert sem tengdi hana
við málið. Bjartmarz-nafnið kom
hvergi fyrir. Eina stofnunin sem vissi
af tengslunum var Útlendingastofn-
un enda var hún umboðsmaður
minn í samskiptum við þegar ég fékk
atvinnuleyfi þegar ég kom hingað til
Íslands fyrst.“
Urðu bara ástfangin
Það er langur vegur frá Gvatemala
til Reykjavíkur og því nærtækast að
spyrja Luciu hvernig hún endaði hér?
„Ég kynntist Birni snemma árs
2003 þegar hann dvaldi sem
skiptinemi hjá fjölskyldu vinkona
minnar í Gvatemalaborg í eitt ár. Ég
held að það hafi ekki verið ást við
fyrstu sýn. Ég var hins vegar afar
forvitin um allt sem varðaði Evrópu.
Ég var fimmtán ár í frönskum
einkaskóla og þótti merkilegt að
hann væri frá Íslandi. Ég vildi vita allt
um hann og landið hans og síðan
urðum við bara ástfangin,“ segir
Lucia og lygnir aftur augunum.
Þau héldu sambandinu eftir að
Birnir fór heim til Íslands, bæði í
gegn Skype-símakerfið á netinu sem
Lucia segir hafi verið bjargvættur.
„Við vorum líka dugleg að koma í
heimsókn hvort til annars. Það er
hins vegar afar langt ferðalag frá
Gvatemala til Íslands og haustið 2005
hafði ég fengið nóg af tveggja daga
ferðalögum. Ég ákvað því að flytja til
Íslands og kom til landsins 27.
október og fór beint í faðm Birnis,“
segir Lucia.
Erfið ákvörðun
Þegar Lucia yfirgaf Gvatemala í
október 2005 og flutti til landsins
varð hún að sleppa hendinni af þeim
tveimur árum sem hún hafði lokið í
lögfræði. Það er ekki margt líkt með
Íslandi og Gvatemala og því liggur
beinast við að spyrja hvort það hafi
verið erfið ákvörðun að flytja til
Íslands?
„Já, það var erfið ákvörðun. Ég vissi
að ég myndi sakna fjölskyldunnar
minnar mikið auk þess sem ég er elst
þriggja systkina, á 18 ára systur og 15
ára bróður, og fann því til ábyrgðar
gagnvart þeim. Ég var líka að læra
lögfræði. Það var erfitt að hætta því
námi eftir tvö ár.
Ég vildi hins vegar ekki vera langt
frá Birni og mér leist vel á Ísland. Ég
vissi að ég myndi geta átt betri
framtíð hér,“ segir Lucia og bætir við
að til að mynda sé allt annað viðhorf
á Íslandi en í Gvatemala.
„Gvatemala er mjög stéttaskipt. Ég
var svo heppin að ég bjó í einu af
betri hverfum Gvatemalaborgar en
það er hins vegar erfitt að vera kona í
gamla landinu mínu. Það er mikil
kynjamisskipting þar. Það er varla
hægt að sjá fyrir sér bjarta framtíð
þar. Hugsunarhátturinn er gamal-
dags, konurnar eiga að sjá um
heimilið og karlmennirnir eiga að
vinna. Það er mikið ofbeldi gagnvart
konum. Það er kannski ekki
samþykkt sem slíkt en það er sjaldan
refsað fyrir það. Við höfum barist
fyrir okkar réttindum en það eru enn
takmarkarnir í menningunni sem við
erum berjast við.“
Þjónn og nemandi í íslensku
Lucia hefur lagt mikla áherslu að
læra íslenskuna hratt og vel og í
viðtalinu svarar hún alltaf á íslensku.
„Foreldrar mínir lögðu mikla áherslu
á að ég gengi menntaveginn og því
ber ég mikla virðingu fyrir námi. Þau
hugsuðu fram í tímann og fyrir það
er ég afar þakklát,“ segir Lucia. Hún
fór strax í íslenskunám og hefur náð
undraverðum tökum á málinu á þeim
fimmtán mánuðum sem hún hefur
dvalið hér. „Ég byrjaði á því að vinna
á bar en er núna þjónn á Lækjar-
brekku,“ segir Lucia, sem stefnir að
því að fara til Bretlands í nám nú
strax í haust ásamt unnustanum
Birni Orra.
„Við vorum að hugsa um að fara til
Frakklands en það hefði verið of dýrt
fyrir okkur að lifa þar. Því förum við til
Bretlands. Ég ætla að byrja upp á nýtt
í lögfræðinni og Birnir fer í heimspeki
og stjórnmálafræði,“ segir Lucia.
Lucia og Birnir Orri eru bæði 21
árs gömul en hjónaband og barn-
eignir eru ekki á döfinni hjá þeim á
næstunni. „Þetta er auðvitað eitthvað
sem við hugsum um og viljum gera í
framtíðinni en eins og staðan er í dag
þá viljum við einbeita okkur að
náminu og klára það til að skapa
okkur góða framtíð. Það er mjög
mikilvægt og gagnast börnunum
síðar meir. Eftir háskólanámið vil ég
koma hingað heim og klára íslensku-
námið,“ segir Lucia.
Skrýtið veður
Eins og áður sagði er Lucia orðinn
Íslendingur og því er ekki úr vegi að
spyrja hana hvort henni líði eins og
Íslendingi?
„Ég verð að vera hreinskilin. Ég er
auðvitað mjög ánægð með að
tilheyra þessu samfélagi af því að
þetta er góð þjóð. Ég vil líka vera
hluti af lífi Birnis, öllu hans lífi, en
þrátt fyrir það ætla ég ekki að gleyma
fortíð minni og menningu. Mér finnst
ég þurfa að búa hérna lengur til að
geta fangað hinn eina sanna íslenska
anda,“ segir Lucia og bætir við það sé
svo margt við Ísland sem hún elski.
„Það er engin mengun. Ég elska
það. Þetta er afar fallegt land og mér
finnst frábært að hafa fengið tækifæri
til að læra þetta erfiða en yndislega
mál sem íslenskan er. Uppáhaldsmat-
urinn minn er hamborgarhryggur og
brúnaðar kartöflur og síðan borða ég
mikinn fisk, sérstaklega ýsu,“ segir
Lucia en viðurkennir að hún sakni
veðursins og fjölskyldunnar frá
Gvatemala. „Veðrið er skrýtið hérna,”
segir hún og hlær. oskar@frettabladid.is
LUCIA CELESTE MOLINA SIERRA ER UNNUSTA SONAR JÓNÍNU BJARTMARZ UMHVERFISRÁÐHERRA:
„Hún er góð tengda-
móðir. Hún er mjög
upptekin kona en
samt góð móðir. Hún
hefur reynst mér
frábærlega og sýnt
mér mikinn stuðning.
Hún hefur verið mér
sem móðir og móður-
ímynd og ég hef
algjörlega verið tekin
inn í fjölskylduna,
segir Lucia Celeste
Molina Sierra um
móður unnusta síns,
Jónínu Bjartmarz
umhverfisráðherra.
„ÉG VAR MJÖG HEPPINN OG ÉG VEIT AÐ ÉG GET ORÐIÐ GÓÐUR ÍSLENSKUR
RÍKISBORGARARI ÞVÍ ÉG ER MENNTUÐ OG DUGLEG.“
GÁTU EKKI VERIÐ AÐSKILIN
Lucia flutti frá Gvatemala til
Íslands til að vera nær ástinni í
lífi sínu. Hún kynntist Birni Orra
í Gvatemala fyrir rúmum
fjórum árum. SIRKUSMYND/VALLI
HAMBORGARHRYGGUR OG BRÚN-
AÐAR KARTÖFLUR Í UPPÁHALDI
Staðsetning: Í Mið-Ameríku með
landamæri að Mexíkó, Hondúras,
El Salvador og Belís.
Höfuðborg: Gvatemalaborg
Íbúafjöldi: 12,8 milljónir
Tungumál: Spænska
Sjálfstæði: 15. september 1821
frá Spáni
Stærð: 108 þúsund ferkílómetrar
LU
C
IA
UM
J
Ó
N
ÍN
U
BJ
AR
TM
AR
Z
Gvatemala