Fréttablaðið - 16.08.2007, Síða 34

Fréttablaðið - 16.08.2007, Síða 34
Stýrivextir verða komnir í 9,25 prósent í árslok 2008, sam- kvæmt spá greiningar Glitnis. Greiningin spáir því að vextir lækki nokkuð hratt á næsta ári. Stýrivaxta- ferlið hefjist í mars, þegar Seðlabankinn lækki vexti sína í 13 prósent. Stýrivextir standa nú í 13,3 pró- sentum. Fram kemur í spá Glitnis að helstu óvissuþættir séu áfram- haldandi stóriðjuuppbygging og framhald á því ójafnvægi sem einkennt hefur þjóðarbú- ið. Þá sé gengið stór áhættuþáttur, en Seðla- bankinn hafi lýst því yfir að fari svo að gengið veik- ist verulega verði seinkun á lækkunarferli stýri- vaxta. Óvissuþættir til lækk- unar spárinnar eru helst bakslag í innlendri hag- þróun vegna ófyrirséðra áfalla, eða bjartari verð- bólguhorfur. Tekið er þó fram að óvissan sé heldur í þá átt að vöxtum verði haldið háum leng- ur og lækkunarferlið verði hæg- ara en samkvæmt spánni. Lækkun hefst í mars Velta í dagvöruverslun í júlí jókst um 12,7 prósent á föstu verðlagi sé miðað við sama mánuð í fyrra, samkvæmt nýbirtum tölum frá Rannsóknarsetri verslunarinnar. Verðlag á dagvöru lækkaði um þrjú prósent á tímabilinu. Velta í dagvöruverslun jókst um 4,2 pró- sent milli mánaða. Sala á áfengi jókst um 6,8 pró- sent á föstu verðlagi milli ára. Fram kemur í tilkynningu frá Rannsóknarsetri verslunarinnar að sala áfengis hafi tekið mikinn kipp nú í sumar og að líklegt sé að veðurblíða sumarsins hafi átt þar hlut að máli. Tæplega tuttugu prósenta aukning varð á komum erlendra ferðamanna til landsins, og er áætlað að þeir hafi eytt tæplega þremur milljörðum hér á landi í júlí. Kreditkortavelta jókst um 9,8 prósent á fyrri helmingi árs. Erlend greiðslukortavelta hér- lendis jókst um 13,2 prósent á sama tímabili. Mikill kippur í áfengissölu Nýverið hlaut Þekking hf. gullvott- un frá tékkneska fyrirtækinu ALWIL Software, framleiðanda avast! vírusvarnarhugbúnaðarins. Þekking er þjónustufyrirtæki á sviði upplýsingatækni sem hefur sérhæft sig í þjónustu við avast! og hefur leyfi til endursölu á hug- búnaðinum á Íslandi. Í tilkynningu segir að áfanginn sé fyrirtækinu mikilvægur þar sem áhersla hafi verið lögð á að kynna og byggja upp sérþekkingu á avast! Þá sé gullvottunin til marks um góðar viðtökur á hug- búnaðinum hér á landi. Þekking fær gullvottun Gengi bréfa í bandaríska hugbún- aðarfyrirtækinu VMware rauk upp um rúm 70 prósent frá útboði við skráningu þess á markað í Kauphöllinni í New York í Banda- ríkjunum í fyrradag í skugga lækkunar á helstu vísitölum. Gengi bréfa í fyrirtækinu, sem hefur verið í eigu bandaríska hug- búnaðar- og gagnageymslufyrir- tækisins EMC frá í byrjun árs 2004, var 29 dalir á hlut, sem var 21 prósenti yfir útboðsgengi. Gengið tók hins vegar sprettinn í fyrstu viðskiptum dagsins og rauk upp um rúm 80 prósent áður en það tók svo að dala lítillega. VMware framleiðir og heldur utan um svokallaða sýndarkeyrslu, sem gerir fyrirtækjum kleift að láta eina tölvu virka sem margar en slíkt lækkar mjög kostnað fyr- irtækja við rekstur tölvukerfa. Mikillar eftirvæntingar hefur gætt á bandarískum fjármála- markaði í Bandaríkjunum vegna skráningar VMware og hefur verið talað um fyrirtækið sem arftaka Google, sem skráð var á markað fyrir tæpum þremur árum. Gengi fyrirtækisins hefur sexfaldast síðan þá. Nýliðinn rauk upp Tvö af virtustu fjármálafyrirtækj- um Danmerkur hafa gengið frá langtímaleigusamningum við Fast- eignafélagið Stoðir um afnot af hátt í sextán þúsund fermetrum í tveim- ur af glæsilegustu fasteignum Stoða í miðborg Kaupmannahafnar. Danske Bank hefur gert leigu- samning til tíu ára við Stoðir og flytur í október með fjögur hundr- uð starfsmenn í ØK-byggingu sem stendur við höfuðstöðvar bankans við Holmens Kanal. Á sama tíma flytjast höfuðstöðvar Gudme Raas- chou Bank í Tietgenshus, sem Stoð- ir eiga. Húsið er eitt af kennileitum borgarinnar enda stendur það við Kristjánsborgarhöll, þinghús Dana, að því er fram kemur í tilkynningu frá Stoðum. Arkitektastofan THG- Arkitektar vinnur nú að breyting- um á innviðum hússins sem er rúmir tíu þúsund fermetrar að stærð. Danskir bankar í íslenskum húsum Heildareignir tryggingafélaganna voru 181,5 milljarðar króna í lok júní síðastliðins, og höfðu dregist saman um tvo milljarða króna frá fyrri mánuði. Meginástæðan er rúmlega fimm milljarða verðrýrnun útlána og markaðsverðbréfa, sem eru tæp- lega sextíu prósent af heildareign- um tryggingafélaganna. Hluta- bréfaeign félaganna hækkaði að virði um 2,3 milljarða á tímabil- inu, en staða útlána lækkaði um 7,4 milljarða króna. Vátryggingaskuld var óbreytt frá fyrri mánuði. Eignir trygginga- félaganna rýrna Fjárfestar horfðu upp á rauðan dag á hlutabréfa- markaði um allan heim í gær. Sérfræðingur hjá Landsbankanum segir nið- ursveiflu líkt og þá sem nú gengur yfir standa í fimm til sjö vikur. Helstu vísitölur fóru niður um rúmt prósentustig á fjármála- mörkuðum í Evrópu og Asíu í gær að Ítalíu, Grikklandi, í Lúxem- borg og Austurríki undanskildum en hlutabréfamarkaðir þar voru lokaðir. Samfellt lækkanaferli á alþjóðamarkaði hefur verið svo til síðan í lok síðustu viku þegar BNP Paribas, einn stærsti banki Frakklands, greindi frá því að hann hefði skrúfað fyrir sjóði sína í nokkra daga af ótta við að áhrif af samdrætti á bandarísk- um fasteignalánamarkaði myndi leiða til lausafjárskorts. Gengi bréfa í bönkum og fjár- málafyrirtækjum leiða lækkun- ina nú líkt og síðustu daga. Sem dæmi um það lækkaði gengi Deutsche Bank, stærsta banka Þýskalands, um 2,5 prósent við opnun hlutabréfamarkaðar í gær. Aðrir bankar voru á svipuðu róli. Matsfyrirtæki hafa endurskoðað spár sínar vegna þessa en til marks um það mælir Merrill Lynch með því að fjárfestar haldi fremur í bréf sín í Deutsche Bank en að þeir kaupi meira. Titrings hefur gætt í sumar á alþjóðlegum hlutabréfamörkuð- um því vextir hafa hækkað í Bandaríkjunum samhliða sam- drættinum vestra og komið illa við kaunin á evrópskum og asísk- um fjármálafyrirtækjum sem hafa fjárfest í bandarískum hús- næðislánasöfnum. Kristján P. Bragason, sérfræð- ingur hjá greiningardeild Lands- bankans, segir óróleikann á fjár- málamarkaði hafa verið að festast í sessi, ekki síst eftir slæmar afkomuspár bandarísku verslun- arkeðjunnar Wal-Mart og bygg- ingavörukeðjunnar Home Depot, frá á þriðjudag sem varð til þess að vísitölur í Bandaríkjunum fór niður sama dag. „Uppgjörin voru ágæt en í þeim kemur fram að hægja muni á hagkerfi í Banda- ríkjunum vegna óróleikans og vandamála á húsnæðismarkaði. Það getur haft alvarlegar afleið- ingar í för með sér og dregið úr hagvexti,“ segir hann en bætir við að bandaríska hagkerfið sé svo stórt að ósjálfrátt geti það dregið úr hagvexti annarra landa. Kristján segir niðursveifluna hafa nú staðið yfir með hléum í þrjár vikur. Allajafna sé gert ráð fyrir því að niðursveiflur standi yfir í fimm til sjö vikur þótt það sé ekki lögmál. Því megi reikna með einhverri niðursveiflu næstu vikur í samræmi við þetta. Dýfan verður hins vegar ekki jafn mikil. „Það er talað um að 75 prósent af niðursveiflunni verði á fyrstu þremur vikunum og því verði hún minni næstu vikur. En þetta er ekki algilt,“ segir Kristján. Rauðir dagar á markaði
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.