Fréttablaðið - 16.08.2007, Blaðsíða 40
Mikilvægi B-vítamínsins fólats
ætti að vera öllum þeim ljóst
sem aðhyllast heilsusamlegt
mataræði og heilbrigt líferni.
Nýlega birti bandaríska tímaritið
American Journal of Clinical
Nutrition niðurstöður sænskrar
rannsóknar sem sýndi að aukin
inntaka fólats tengdist lægri tíðni
brjóstakrabbameins í konum eldri
en 50 ára, en konunum var fylgt
eftir í níu og hálft ár.
„Niðurstöður leiddu í ljós að
konur sem neytt höfðu fólatríkrar
fæðu á þessum tæpa áratug fengu
síður brjóstakrabbamein eftir tíða-
hvörf,“ segir Elva Gísladóttir, nær-
ingarfræðingur hjá Lýðheilsustöð,
en Elva vinnur nú að uppfærslu á
bæklingnum Fólat, sem senn
kemur fyrir augu almennings.
„Fólat er lífsnauðsynlegt fyrir
alla; börn, konur og karla. Fólat er
yfirheiti á vissri tegund B-vítam-
íns, en heitir fólínsýra í vítamín-
bættum matvælum og töfluformi.
Ráðlagður dagskammtur fullorð-
inna er 300 míkrógrömm fyrir
bæði kynin, en konur á barneign-
araldri þurfa 400 míkrógrömm,“
segir Elva og leggur ríka áherslu á
að konur á barneignaraldri taki
400 milligrömm af fólati (fólín-
sýrutöflu) daglega sem viðbót við
fólatríkt fæði.
„Þá er einnig mikilvægt að taka
inn fólínsýru fyrstu tólf vikur
meðgöngunnar. Með þessu er
dregið úr líkum á skaða í mið-
taugakerfi fósturs, svo sem klofn-
um hrygg, heilaleysi og vatns-
höfði.“
Fólat finnst einkum í grænmeti,
ávöxtum, hnetum, baunum og
vítamínbættu morgunkorni, en
sem dæmi má uppfylla dagsþörf
fullorðinna með einni og hálfri
skál af vítamínbættu morgun-
korni, þótt Elva mæli vitaskuld
með fjölbreyttu og fólatríku mat-
aræði, fremur en einhæfri
vítamíninntöku af því tagi.
„Ráðleggingin um fimm dag-
skammta af ávöxtum og grænmeti
er enn í fullu gildi. Fólat er nauð-
synlegt fyrir efnaskipti kjarnsýra
og amínósýra, það vinnur með
B12-vítamíni við myndun heil-
brigðra blóðfruma og getur hugs-
anlega dregið úr líkum á hjarta-
og æðasjúkdómum vegna þeirrar
verkunar að lækka styrk amínó-
sýrunnar hómósýstein í blóði,“
segir Elva.
„Fólat er ekki skaðlegt efni en
of stórir skammtar geta að vísu
komið í veg fyrir nýtingu sinks og
B12 úr fæðu. Lifur er geysilega
auðug af fólati en er alls ekki fyrir
ófrískar konur því hún er einnig
rík af A-vítamíni sem í of miklum
mæli er skaðlegt fyrir fóstur.
Fólat er einnig mikilvægt smá-
börnum sem og eldri börnum, en
þau þurfa það í miklu minna magni
og er óþarfi að taka það inn sér-
staklega. Við þurfum að hugsa vel
um hvað við gefum börnum okkar
að borða og mjög auðvelt er að
uppfylla þörfina fyrir fólat með
góðum og hollum mat. Eina vítam-
ínið sem börn þurfa nauðsynlega
til inntöku er teskeið af þorskalýsi
svo þau fái nóg D-vítamín,“ segir
Elva að lokum.
Fólat lengir lífið
• Spínat, spergilkál (brokk-
ólí), steinselja, spergill,
rósakál, blómkál, kínakál,
blaðsalat, blaðlauk-
ur, graslaukur,
grænkál,
rauð
paprika,
avókadó,
rauðkál,
hvítkál.
• Jarðarber, kíví, appelsínur.
• Vítamínbætt morgunkorn
(skoðið innihaldslýsingu á
umbúðum), múslí, hafra-
mjöl, gróft brauð (t.d.
maltbrauð), hveitikím,
hveitiklíð, sesamfræ,
hörfræ, hnetur,
möndlur,
hnetu-
smjör.
• Kjúklingabaunir, sojabaun-
ir, nýrnabaunir.
Fólatrík
fæða
Hér eru taldar upp fólat-
ríkar fæðutegundir en fólat
er börnum og fullorðnum lífs-
nauðsynlegt vítamín:
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
Staðurinn - Ræktin
Innritun á öll námskeið
í síma 581 3730:
• TT 1 Vertu í góðum málum!
• TT Taktu þér tak!
• Rope Yoga
• 60 +
• Mömmumorgnar
• Frjáls aðgangur að tímum í opna kerfinu
og tækjasal
Glæsilegur nýr tækjasalur!
Vertu velkomin í okkar hóp!
Nú geturðu gerst áskrifandi að
líkamsrækt JSB
Betra verð í áskrift, aðeins 3.990 kr.
á mánuði
• Opna kerfið - Þinn tími er kominn!
Barnagæsla - Leikland JSB
Sjá nánar á www.jsb.is
Ath!
telpurS onuK r
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Við hjálpum þér að
komast í form