Fréttablaðið - 16.08.2007, Qupperneq 60
16. ÁGÚST 2007 FIMMTUDAGUR18 fréttablaðið menningarnótt
Forvarnastarf læknanema,
Ástráður, deilir út ókeypis
smokkum á menningarnótt.
Ástráður, forvarnastarf lækna-
nema, hefur staðið fyrir kyn-
fræðslu og deilt út smokkum síð-
astliðin átta ár. Markhópurinn
er ungt fólk á aldrinum fimmt-
án til tuttugu og þriggja ára sem
eru einn helsti áhættuhópur fyrir
ótímabærar þunganir og kynsjúk-
dóma.
Á hverju ári fer Ástráður inn í
langflesta framhaldsskóla á land-
inu eða um fjörutíu. Þar eru lækna-
nemarnir með kynfræðslu fyrir
fyrsta árs framhaldsskólanema og
deila út smokkum. Einnig er farið
í grunnskóla, félagsmiðstöðvar og
á meðferðarheimili auk þess sem
sinnt er kennslu í Háskóla unga
fólksins.
Á veturna er Ástráður á Rás 2
í þættinum Ungmennafélagið og
allan ársins hring eru liðsmenn á
MSN-spjallrás og í síma ásamt því
að taka á móti um 500 fyrirspurn-
um í tölvupósti á ári.
Á sumrin deilir Ástráður út
smokkum um verslunarmanna-
helgina en í ár bættust við hinseg-
in dagar og menningarnótt.
„Við göngum um borgina og
verðum í Ástráðsbolunum okkar
og deilum út ókeypis smokkum
til þeirra sem vilja. Einnig ætlum
við að reyna að koma smokkun-
um fyrir á nokkrum börum í borg-
inni. Þetta gerum við til að vekja
athygli á starfinu og reyna að láta
gott af okkur leiða,“ segir Ómar
Sigurvin, læknanemi og fjölmiðla-
fulltrúi Ástráðs.
Allir liðsmenn Ástráðs eru
læknanemar sem vinna í sjálf-
boðavinnu og eru þeir um fjörutíu
talsins.
Ómar segir unga fólkið almennt
vel upplýst en þó megi fræðsl-
an vera meiri af hálfu foreldra og
skóla. Ástráður hlaut í ár íslensku
forvarnaverðlaunin og segir Ómar
mælanlegan árangur sjást af starf-
inu.
„Í tölum frá landlækni kemur
fram að fóstureyðingum meðal
ungra kvenna hefur fækkað. Þar
nefnir landlæknir meðal annars
okkar starf sem einn áhrifavald,“
segir Ómar.
Hann segir jafnframt að tölur
um kynsjúkdóma standi í stað og
sennilega fari þær lækkandi.
Ómar segir viðbrögð við starf-
inu mjög jákvæð, bæði frá almenn-
ingi og fagfólki. „Reynir Tómas
Geirsson, yfirmaður kvensjúk-
dómadeildar við Landspítalann, er
eins konar verndari þessa starfs.
Einnig stendur landlæknir þétt við
bakið á okkur ásamt heilbrigðis-
og skólayfirvöldum,“ segir Ómar.
Ár hvert deilir Ástráður út 15-
20.000 Durex-smokkum sem Heild-
verslun Halldórs Jónssonar gefur
til starfsins. „Smokkarnir sem
við gefum myndu kosta okkur um
þrjár milljónir árlega svo styrkur-
inn er ómetanlegur,“ segir Ómar
sem segir starfið styrkt af hinu
opinbera, nokkrum fyrirtækjum
og einstaka bæjarfélagi.
Framundan er áskorun Ást-
ráðs um lækkun eða niðurfellingu
verðs á smokkum og öðrum getn-
aðarvörnum. „Hver smokkur kost-
ar áttatíu til hundrað krónur í dag.
Á hinum Norðurlöndunum hefur
verðlækkun og niðurfelling haft
mjög jákvæð áhrif í baráttunni
gegn kynsjúkdómum og ótíma-
bærum þungunum og við vonumst
til að sjá slíkt hið sama hérlendis,“
segir Ómar.
Ástráður er með heimasíðuna
www.astradur.is. MSN-spjallrás-
in er: astradur6@hotmail.com.
Síminn er opinn þriðjudaga og
fimmtudaga frá kl. 20-22 og tölvu-
póstfangið er leyndo@astradur.is
rh@frettabladid.is
Öruggar ástir í nóttinni
Ástráður, forvarnastarf læknanema, ætlar að gefa smokka á menningarnótt til að vekja athygli á starfinu og láta gott af sér leiða.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Greg Barrett er leirlistamað-
ur sem vinnur eingöngu
með íslenskan leir sem hann
grefur sjálfur upp víða um
landið. Áhugi hans á leirlist
vaknaði þegar hann vann við
fornleifauppgröft á Írlandi.
Greg opnar vinnustofu sína á
menningarnótt fyrir gestum
og gangandi.
„Ég er að vinna með íslenskan
leir sem ég gref sjálfur upp víða
um landið. Ég vil nota náttúru-
leg efni sem ég finn í umhverfi
mínu, vikur og eldfjallaösku,“
segir Greg Barrett leirlistamað-
ur sem hefur búið hér á landi frá
því í maí 2005. Greg er frá Írlandi
og lærði leirlist í Dublin áður en
hann kom hingað. Hann hefur
einnig stundað nám við Myndlist-
arskóla Reykjavíkur. „Núna er ég
að einbeita mér að því að gera te-
bolla, einfalda hluti úr náttúru-
legum efnum.“ Greg hefur einnig
gert skálar og kjertastjaka.
„Ég vann í eitt ár við fornleifa-
uppgröft á Írlandi. Þar var ég að
finna leirhluti frá miðöldum og
við það kviknaði áhugi minn á
leirlist.“ Greg heimsótti í sumar
fornleifauppgröftinn á Skriðu-
klaustri. Þar fékk hann ösku úr
öskulögum frá eldgosinu í Öskju
árið 1875 og í Veiðivötnum 1477.
„Ég nota öskuna í glerung á verk-
in mín.“
Greg hefur haldið eina sýn-
ingu á verkum sínum hér á landi,
í galleríinu Safni á Laugavegi í
janúar 2006.
Greg verður með opið hús á
vinnustofu sinni á menningar-
nótt. Fólk getur komið, skoðað
og séð hann að störfum auk þess
sem hann verður með verk sín til
sölu.
Vinnustofan er á Klappar-
stíg 19, í bakhúsi fyrir aftan
hárgreiðslustofuna Gel á horni
Hverfisgötu og Klapparstígs.
Hrifinn af íslenskum leir
Leirlist á menningarnótt. Greg Barrett leirlistamaður opnar vinnustofu sína á menn-
ingarnótt.
Mikill undirbúningur hefur
verið hjá lögreglu fyrir menn-
ingarnótt enda er reiknað með
gríðarlegum fjölda í miðbæn-
um. „Í fyrsta lagi verðum við
með hefðbundna löggæslu
á öllu svæðinu. Síðan verð-
um við með gönguhópa bæði
að degi og nóttu,“ segir Árni
Þór Sigmundsson aðstoðaryf-
irlögregluþjónn um tilhögun
gæslumála á menningarnótt.
Þrátt fyrir að dagurinn hafi
yfirleitt farið vel fram segir
Árni alltaf þörf fyrir aukna löggæslu í slíkum mann-
fjölda. „Það getur ýmislegt komið upp á svo sem veik-
indi eða slys. Þá þarf að bregðast við með viðeigandi
hætti og koma fljótt á vettvang. Að degi til verðum
við með nokkra þriggja manna gönguhópa á svæðinu
frá Miklatúni og niðri í Kvos en um nóttina verðum
við með stærri gönguhópa í miðbænum og njótum þá
fulltingis björgunarsveitarmanna.“
Lögreglan fær hjálp frá
Landsbjörgu, Rauða krossin-
um og slökkviliðinu en sam-
eiginleg stjórnstöð verður
í menntamálaráðuneytinu.
„Þar verðum við með nokk-
urs konar vettvangsstjórn
þar sem afmörkuðum hluta
löggæslunnar verður stýrt,“
segir Árni. Örlitlar áherslu-
breytingar verða á gæslunni
þótt flest verði með svipuðu
móti og síðustu ár. „Meðan
á tónleikunum á Miklatúni
stendur færist þunginn svolítið þangað. Settar verða
upp færanlegar myndavélar sem hjálpa okkur mikið
við að hafa yfirsýn í slíkum mannfjölda.“
Það virðist því sem lögreglan muni halda vel utan
um hátíðina og Reykjavíkurbúar geti farið öruggir
niður í bæ. „Við byggjum auðvitað á reynslu liðinna
ára og reynum alltaf að gera betur.“
mariathora@frettabladid.is
Byggja á reynslu liðinna ára
Það er alltaf er aukin slysahætta í mannmergð og því
aukin þörf fyrir löggæslu. Þriggja manna lögregluhóp-
ar verða á göngu í miðbænum yfir daginn.