Fréttablaðið - 16.08.2007, Page 90
Fataverslanir og gallerí
setja sterkan svip á miðbæ
Reykjavíkur. Vinsældir
þess að blanda þessu tvennu
saman virðast fara sívax-
andi. Fréttablaðið hafði
samband við fimm einstakl-
inga sem hafa reynslu af, og
skoðanir á, slíkum rekstri.
Frá því að Sævar Karl opnaði gall-
erí sitt árið 1988 hafa fjölmargir
fetað í fótspor hans. Fréttablaðið
ræddi við fimm þeirra nýliða sem
tengja saman rekstur sýningar-
rýmis og verslunar. Allir voru
sammála um að slíkt lifði vel
saman.
Söru Maríu Eyþórsdóttur, eiganda
Nakta apans, finnst listasýningar í
verslunarhúsnæði skapa afar
skemmtilega stemningu. „Í búð-
inni minni vildi ég hafa þannig
stemningu að það væri gaman að
koma hingað og sjá nýja, skemmti-
lega hluti. Mér finnst að það eigi
að vera ákveðin upplifun,“ sagði
Sara, sem telur fataverslanir vera
sérstaklega hentug sýningarrými
fyrir yngra listafólk. „Ungt fólk
fer svo lítið inn í gallerí. Þeir sem
koma í fatabúðirnar fíla þessa
yngri list,“ sagði hún.
Guðjón Rúnar Emilsson, eigandi
verslunarinnar Fígúru á Skóla-
vörðustíg, tekur í sama streng.
Hann telur jafnframt að það sé
mikill markaður fyrir slíkt sam-
krull. „Við höfum ekki auglýst
okkur mikið sem gallerí síðan að
búðin opnaði í lok maí, en það eru
þó nokkrir sem hafa haft samband
við okkur og lýst yfir áhuga á að
sýna,“ sagði hann. „Við erum opin
fyrir hverju sem er, ef það fer vel
við verslunina,“ sagði Guðjón.
Kron kron fylgir sömu línu, að
sögn Stefáns Svans Aðalheiðar-
sonar verslunarstjóra. „Okkur
finnst gaman að blanda þessu
saman, list og verslun, en við
miðum við sýningar sem myndu
passa vel inn hjá okkur sem versl-
unarrými. Þess vegna erum við
ekki með aðskilið gallerí,“ útskýrði
Stefán. Um átta sýningar hafa
prýtt veggi Kron kron síðan versl-
unin flutti í núverandi húsnæði, og
verslunin var þar að auki þátttak-
andi á myndlistarhátíðinni
Sequences í fyrra. „Við höfum
sýningar þegar við finnum eitt-
hvað sem okkur langar að fá inn í
verslunina,“ sagði Stefán, „þetta
þarf að fara vel saman.”
Í Gallerí Temp í skóbúðinni Far
við Laugaveg fara eigendur aðra
leið. Stofnendur gallerísins, sem
einbeitir sér að grafískri hönnun,
eru þeir Ísak Winther og Pétur
Guðmundsson. „Fyrir okkur var
það skilyrði að galleríið og skóbúð-
in yrðu alveg aðskilin. Mér finnst
stundum, þegar gallerí eru tengd
svona við verslanir, að það sé verið
að nota list til þess að selja vörur.
Maður kemst ekki hjá því að sjá
söluvarninginn þegar maður er að
leita að listinni,“ sagði Ísak. Hann
telur gallerí og verslanir þó vel
geta átt heima undir sama þaki.
„Ég held að þetta sé fín blanda, og
það er auðvitað fátt skemmtilegra
en að kynna fólk fyrir list,“ sagði
hann.
Nýjasta viðbótin í flóruna er vænt-
anlega verslunin Crush við Lauga-
veg. Ólafur Guðmundsson, einn
þriggja eigenda búðarinnar, segir
bæði gallerí og búðir hafa hag af
því að deila með sér rými. „Í fyrsta
lagi kemur fullt af fólki á sýning-
aropnanir, og sér þá verslunina um
leið. Á hinn bóginn dregur versl-
unin að sér fjölda fólks sem færi
aldrei að skoða sýningar í „alvöru“
galleríum,“ sagði hann.
Ólafur er sjálfur myndlistarmað-
ur og segir alltaf vanta sýningar-
rými fyrir ungt fólk. „Viðskipta-
vinir Crush eru tiltölulega ungir,
og þá er myndlistin um leið að ná
til yngri markhóps,“ bætti hann
við.