Fréttablaðið - 23.11.2007, Page 24

Fréttablaðið - 23.11.2007, Page 24
24 23. nóvember 2007 FÖSTUDAGUR Umsjón: nánar á visir.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 781 6.741 -0,62% Velta: 8.000 milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atorka 10,10 -0,20% ... Bakkavör 55,80 -1,24% ... Eimskipafélagið 35,90 -0,97% ... Exista 24,50 -5,77% ... FL Group 21,20 +0,47% ... Glitnir 24,45 -0,20% ... Icelandair 25,80 +0,78% ... Kaupþing 900,00 +0,11% ... Landsbankinn 36,30 -0,68% ... Straumur-Burðarás 15,55 -0,64% ... Össur 97,20 -0,31% ... Teymi 6,17 -0,64% MESTA HÆKKUN CENTURY ALUM. +0,81% 365 +0,78% ICELANDAIR +0,78%% MESTA LÆKKUN EXISTA -5,77% EIK BANKI -5,08% ATLANTIC PETR. -3,68% Jarðvarmi kann að gera hér fýsilegt eldi á áður óþekkt- um fiski. Sérfræðingur í fiskalífeðlisfræði segir tækifæri til að fara hér aðra leið í eldi en frændur okkar Norðmenn. Hér kunna að vera tækifæri til eldis á matfiski af áður óþekktum tegundum sem alla jafna þrífast í heitum sjó og ferskvatni, að því er Björn Þrándur Björnsson, ráðgjafi hjá Matís og prófessor við Háskól- ann í Gautaborg, segir. Björn er einn helsti sérfræðingur í Evrópu á sviði fiskalífeðlisfræði. Í erindi sem Björn hélt á haust- ráðstefnu Matís ohf. síðastliðinn fimmtudag fór hann yfir horfur í fiskeldi í heiminum og kynnti fyrir ráðstefnugestum nokkrar tegundir matfiska sem aldar eru í löndum þar sem loftslag er heitara en hér. Hann segir hins vegar möguleika á að nýta hér samstarf við orkufyrir- tæki til eldis á slíkum tegundum. Björn segir ljóst að fiskveiðar hafi náð hámarki í heiminum og fari minnkandi. Þannig sé fyrirséð að aukið fiskframboð í heiminum muni koma frá fiskeldi. „Stað- reyndin er að fiskeldi er eina leiðin til að halda fiskneyslu mannkyns- ins í horfinu,“ segir hann og bendir á að matvæla- og landbúnaðar- stofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) telji að árið 2030 muni yfir 50 pró- sent af fiskneyslu heimsins byggj- ast á fiskeldi. „Þarna stefnir allt í eina átt og fiskeldi sú framleiðslu- grein sem hvað hraðast vex í heim- inum.“ Mestur hluti framleiðslu í fisk- eldi byggir á fáum tegundum segir Björn. Í Evrópu eru lax og regn- bogasilingur ráðandi, en á heims- vísu byggja 80 prósent alls fiskeldis á innan við þrjátíu tegundum. „Á sama tíma eru veiddar þúsundir tegunda og þar af mörg hundruð nýttar til manneldis,“ segir Björn og telur ljóst að huga þurfi frekar að þessum málum. Hann segir að mörgu að hyggja þegar valdar séu nýjar tegundir til eldis, gæði fisks- ins, stærð, vaxtarhraði, og ótal fleiri þættir. „En svo er líka hægt að herma eftir og við höfum verið nokkuð dugleg í því. Við tókum þátt í laxeldisævintýrinu, sem hér er bara ævintýri, en Norðmenn vita að er veruleiki og hafa geysilega stóran hluta af sínum tekjum frá laxeldinu.“ Björn segir útflutning héðan á fiskimjöli og lýsi hafa minnkað, þótt hann nemi enn hundruðum þúsunda tonna. Sú framleiðsla styðji þó við möguleika í fiskeldi hér því mjöl og lýsi séu stór hluti af fiskifóðri, til dæmis um 60 pró- sent í laxeldi. Þá bendir hann á að hjá Reykjanesvirkjun standi til að dæla 4.000 sekúndulítrum af sjó upp úr borholum á sjávarkambi sem sendir verði um bunustokk til sjávar 57 gráðu heitir. „Allar þjóðir myndu auðvitað skammast sín fyrir að hella bara 60 gráðu heitu vatni í sjóinn án þess að reyna að nýta það,“ segir hann og telur að í hliðar- afurðum sem þessum hjá jarðvarma- virkjunum felist möguleik- ar til að rækta hér fisk sem annars eigi ann- ars staðar heima. Meðal nýrra tegunda sem Björn nefnir til sögu eru tílapía, eða beitar fiskur, en það er næststærsta fiskeldistegund heims. „Tílapían vex í 27 gráðu heitu ferskvatni, nær stofnstærð á sex til níu mán- uðum, er jurtaæta og mjög útbreidd og vinsæl eldistegund.“ Einnig nefndi hann tegundir á borð við barramunda sem lifi bæði í fersk- vatni og sjó, kóbíu, pangasíus og klarías, en allir lifa þessir fiskar í heitum sjó eða vatni. „Ég held að öll efni séu til að Ísland skapi sér verulega sérstöðu sem fiskeldis- þjóð. Við þurfum ekki að herma eftir Norðmönnum heldur getum við alið tegundir sem þeir geta ekki.“ Þá segir Björn ákveðinn kost fylgja því að ala „heitar“ tegundir í köldu landi. „Ef þessum tegundum tekst að hoppa upp úr kerjunum og komast út í sjó eða ferskvatn þá bara drepast þær. “ olikr@frettabladid.is BJÖRN ÞRÁNDUR BJÖRNSSON BRAGÐAÐ Á TILAPIU Sjöfn Sigurgísladóttir, forstjóri Matís ohf., bragðar á eldisfiski sem ræktaður er víða erlendis og nefnist tilapia, eða beitarfiskur. Fjöldi gesta á haustráðstefnu gerði slíkt hið sama og lét vel af. MYND/MATÍS Nýju fiskarnir drepast ef þeir sleppa úr eldinu Tílapía: Vex best í 27°C heitu ferskvatni. Barramundi: Yfirleitt alinn í 28 til 29°C heitum sjó*. Kóbía: Alin í 24 til 29°C heitum sjó. Pangasíus: Loftandandi ferskvatnsfiskur sem vex best í 24 til 30°C heitu vatni. Klarías: Hraðvaxta loftandandi fiskur sem þrífst best í 28 til 30°C heitu vatni. *Þrífst líka í ferskvatni VÆNLEGIR FISKAR Í TILRAUNAELDI HÉR „Allir eiga rétt á því að fá tækifæri til þess að gera málið upp og með litlum tilkostnaði,“ segir Sigurður Arnar Jónsson, forstjóri Intrum. Það sé jákvætt í sjálfu sér að sett séu sérstök innheimtulög. „Þannig skapast rammi um það hvernig þessi mál eigi að ganga fyrir sig.“ Ríkisstjórnin hefur afgreitt frumvarp viðskiptaráðherra um innheimtu- kostnað. Dæmi eru um að innheimtuþóknun sé hærri en sem nemur höfuðstól skuldar. Ráðherra segir tímabært að koma í veg fyrir okur. „Það þarf að taka það með í reikninginn að þegar komið er að loka- aðvörun, hafa farið mörg bréf til skuldarans og búið að hringja í hann,“ segir Sigðurður, sem einnig minnir á rétt kröfuhafa til að fá skuldir sínar gerðar upp. „Þess utan eru langflest málin sem hingað koma með innheimtukostnað innan við þrettán hundruð krónur í upphafi.“ Ásta S. Helgadóttir, for- stöðumaður Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna, segir frumvarpið vera mjög jákvætt skref. „Það er gott að böndum verði komið á þetta,“ segir Ásta. „Þetta getur orðið eins og snjóbolti sem verður að snjókarli.“ - ikh Jákvætt skref ÁSTA S. HELGADÓTTIRSIGURÐUR ARNAR JÓNSSON Glæðum var á ný blásið í krónu- bréfaútgáfu þegar þýski bankinn Rentenbank gaf út krónubréf fyrir fjóra milljarða á miðvikudag, að sögn greiningardeildar Glitnis. Bankinn mun alls hafa gefið út krónubréf fyrir 15 milljarða króna, þar sem 11 milljarðar eru enn útistandandi. Alls eru krónu- bréf að nafnvirði 371,5 milljarðar króna sögð útistandandi. „Þrátt fyrir að allar ytri aðstæð- ur til útgáfu krónubréfa séu með besta móti í kjölfar vaxtahækkunar Seðlabankans hafa ekki verið gefin út krónubréf síðan 15. októ- ber,“ segir greiningardeildin, en telur að þrátt fyrir óvissu á mörk- uðum og vaxandi áhættufælni sé enn von á einhverri útgáfu til við- bótar það sem eftir lifir ársins. - óká Krónubréf glæðast á ný MARKAÐSPUNKTAR Landsframleiðsla jókst um 0,7 pró- sent í Þýskalandi á þriðja ársfjórðungi samanborið við 0,3 prósent í fjórð- ungnum á undan. Þetta jafngildir því að hagvöxtur mælist nú 2,4 prósent í þessu stærsta hagkerfi Evrópu. Heildarútlán íslenskra heimila námu 809 milljörðum króna í lok október, samkvæmt tölum frá Seðlabanka Íslands. Þetta er fimm milljarða króna aukning á milli mánaða, að sögn greiningardeildar Kaupþings sem bendir á að þar af hafi verðtryggð lán heimilanna numið rúmum 577 milljörðum króna. Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur staðfest lánshæfismat Landsbankans og gefur bankanum langtímaeinkunnina A. Horfur eru stöðugar, að mati Fitch. Gengi landsliða og hlutabréfa Fólk í fjármálaheiminum velti fyrir sér í gær hverjar ástæðurnar væru fyrir mikilli lækkun Exista í Kauphöllinni. Lækkuðu bréfin um tæp sex prósent. Sumir töldu að skuldugir fjárfestar væru að selja auðseljanleg bréf í Existu til að borga tryggingar í öðrum stöðum á markaðnum vegna almennra lækkana. Bank- arnir krefðust þess. Lítil velta var í kauphöllinni, eða átta milljarðar króna, og fáir áhugasamir kaupendur. Því lækkuðu bréfin. Önnur skýring er sú að landslið Englands datt úr Evrópukeppninni í fótbolta í fyrrakvöld. Við það lækkuðu bréf í sportvöruversluninni JJB í Bretlandi vegna væntanlegrar minni sölu á íþróttavarningi. Exista á tæp þrjátíu prósent í því félagi, sem lækkaði um tæp fjögur prósent í kjölfarið. Það gæti verið að gengi landsliða og hlutabréfa sveifluðust samhverft. Ýktar andlátsfréttir Margir muna eftir því þegar Trausti veðurfræð- ingur birtist ekki á skjá landsmanna í nokkrar vikur og sögur fóru á kreik um að hann væri dáinn. Varð kjaftasagan svo hávær að hann sá sig tilknúinn til að koma fram í fréttum og til- kynna þjóðinni það að hann væri sprelllifandi. Það hafa margir verið teknir á lífi í fjármála- heiminum undanfarna daga í samtölum manna á millum. Bæði menn og fyrir tæki. Hannes Smárason og FL Group hafa verið áberandi persónur í þessum sögum. Er svo komið að starfsmenn félagsins eru farnir að svara í símann: Fréttir af andláti FL Group eru stórlega ýktar. Peningaskápurinn ... Fær fjölskylda þín endurgreiðslu? SPRON Fjölskylduvild Skráðu fjölskylduna á spron.is fyrir áramót og þú gætir tryggt henni endurgreiðslu þessa árs!

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.