Fréttablaðið - 23.11.2007, Side 29

Fréttablaðið - 23.11.2007, Side 29
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL. Hinum fimmtán ára Finni Ólafssyni var kippt inn af götunni og boðið starf hjá Kaffifélaginu eftir að eigandi staðarins heyrði að hann hefði meira vit á kaffi en faðir hans. Finnur Ólafsson er líklega með yngstu kaffibarþjón- um landsins. Hann er fimmtán ára nemandi í Haga- skóla en vinnur sér inn dágóðan vasapening með því að afgreiða kaffi í Kaffifélaginu við Skólavörðustíg nokkur síðdegi í viku. Það má segja að starfið hafi komið upp í hendurnar á Finni en eigandi staðarins bauð honum vinnu eftir að hafa heyrt á tal hans og föður hans þegar þeir voru að kaupa kaffi. „Ég fór þarna inn með pabba í sumar og eigandi staðarins heyrði okkur vera að spjalla. Ég hef stundum verið að fikta í kaffivélinni hans pabba og hún tók eftir því að ég vissi meira um kaffi en hann. Henni fannst það sniðugt og spurði hvort ég vildi koma að vinna á menningarnótt,“ segir Finnur. Hann sló til, vaktin gekk vel og í kjölfarið var honum boðið áfram- haldandi starf. Finnur segist ekki mikill kaffisvelgur sjálfur en það sé þó nauðsynlegt að drekka svolítið kaffi í tengslum við vinnuna til að geta fundið mun. Hann segist tals- vert vera búinn að fræðast um mismunandi kaffiteg- undir og kaffimenningu ólíkra landa. „Ég veit ýmis- legt um brennslu á baunum, mismunandi lögun eftir löndum og svo um alls konar séreinkenni ítalskrar kaffimenningar en Kaffifélagið er ítalskur kaffibar,“ segir Finnur. Hann segist mjög ánægður í starfi og er að vonum langyngsti starfsmaðurinn. „Ég hugsa að flestir séu svona um þrítugt en mér finnst gott að starfa með eldra fólki og hef lært mjög mikið af samstarfs- mönnum mínum,“ segir hann. Finnur segir misjafnt hvort krakkar á hans aldri séu farnir að vinna. „Þeir eru að minnsta kosti fæstir í svona störfum, meira í að passa eða að vinna í bíó- húsum,“ segir hann. „Það er svolítið skrýtið að vera bara kippt inn af götunni en mjög skemmtilegt,“ bætir hann við. Finnur á von á því að kaffiáhuginn muni fylgja honum áfram en er þó fyrir löngu búinn að ákveða hvað hann ætlar að verða. „Ég ákvað að verða flugmaður þegar ég var fjögurra ára og stefni á flug- nám strax að loknum menntaskóla.“ vera@frettabladid.is Yngsti kaffibarþjónninn Finnur veit ýmislegt um brennslu á baunum og mismunandi lögun eftir löndum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FRÖNSK STEMNING Á Cafe París er meðal annars boðið upp á pönnu- steikta lúðu með kúrbít, gulrótum og lime-smjör- sósu. MATUR 2 ÍSLENSK SMÁLÚÐA Verðlaunakokkurinn Brian Abbott frá Nýfundna- landi eldar ís- lenska smálúðu. MATUR 3 Göngugreining ehf. Við erum búin að opna! Finnurðu fyrir þreytu og pirringi í fótum? Eða óþægindum í: • Baki • Mjöðmum • Kálfum • Hásinum • Tábergi Sefur barnið þitt illa vegna þreytu og verkja í fótum? Tímapantanir Hringið í síma 8619028 til þess að panta tíma. Við erum í Síðumúla 33 á 3. hæð. Fagleg og góð þjónusta www.gongugreining.is Ragnheiður Ásta Einarsdóttir, sjúkraþjálfari B.sc. rae@gongugreining.is • Hnjám • Ökklum • Hælum • Iljum Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.