Fréttablaðið - 23.11.2007, Page 46
23. NÓVEMBER 2007 FÖSTUDAGUR6 ● fréttablaðið ● miðborgin
Þær Kolbrún Ýr
Gunnarsdóttir og Íris
Eggertsdóttir reka
búðina KVK á Lauga-
veginum og selja fín
en þægileg föt.
Í litlu bakhúsi við
Laugaveg 27 er
að finna spenn-
andi búð sem
engin kona ætti
að láta fram hjá
sér fara. Þetta
er búðin KVK þar
sem hönnuðirnir Kol-
brún Ýr Gunnarsdótt-
ir og Íris Eggerts-
dóttir ráða ríkjum.
Íris hannar undir
merkinu ROKK-
MANTÍK og Kolbrún undir
merkinu KOW.
„Útgangspunkturinn hjá okkur
er að gera föt í
fínni kantin-
um sem um
leið eru
ofsalega
þægileg,“
segir Íris.
„Þau eiga
að henta ef
maður ætlar
að klæða sig upp fyrir vinnuna
eða fara eitthvað út en eru þó ekki
þannig að mann langi að rífa sig
úr þeim um leið og maður kemur
heim. Við erum með allt frá nær-
fötum upp í yfirhafnir og seljum
líka leggings og hárskraut,“ segir
Íris. Hún segir þær vinna með
kvenlegan vöxt og passa að efnin
séu þægileg viðkomu og að gott
sé að hreyfa sig í þeim. Nú fyrir
jólin leggja þær áherslu á punt
og kjóla. Íris segir kúnnahópinn
mjög breiðan og að til þeirra komi
allt frá fimmtán ára stúlkum til
sextugra kvenna.
Þær Íris og Kolbrún Ýr þekktust
áður fyrr en hittust fyrir nokkr-
um árum og endurnýjuðu kynnin.
„Við vorum báðar að sauma í litlu
magni fyrir verslanir og okkur
datt í hug að við gætum í samein-
ingu stofnsett lítið fyrirtæki. Við
byrjuðum fyrir tæpum tveimur
árum og hefur þetta gengið mjög
vel,“ segir Íris. Í lok janúar flyt-
ur verslunin í nýtt húsnæði ofar á
Laugaveginum. - ve
Kvenleiki og þægindi í fyrirrúmi
Íris til hægri í rauðri og svartri ROKKMANTÍK slá og Kolbrún Ýr til vinstri í svörtum og grænköflóttum KOW
jakka. Yfirhafnirnar kosta báðar 32.000 krónur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Settið er eftir Kol-
brúnu Ýr sem hannar
undir merkinu KOW.
Það samanstendur af
svartri pífuherðaslá á
19.900 kr. og svörtum
pilstoppi á 10.500 kr.
en hann má nota sem
stuttan kjól, topp eða
pils. Undir eru silfur
leggings á 7.900 kr. og
punkturinn yfir i-ið er
pífuspöng á 6.500 kr.
en hún fæst í ýmsum
litum og stærðum.ROKKMANTÍK spöng
úr gömlum rokkokó-
útsaumi, 7.500 kr.
Eldrauður
og jólalegur
kjóll eftir
Írisi sem
hannar
undir merkinu
ROKKMANTÍK.
Kjóllinn kostar
19.500 kr. og vín-
rauð flauelsspöng
er á 6.500 kr. en
hún fæst í ýmsum
litum og stærðum.
20-60%
AFSLÁTTUR
www.markid.is sími 553 5320 Ármúla 40
P
IP
A
R
• S
ÍA
•
6
0
8
0
6