Fréttablaðið - 23.11.2007, Side 52
BLS. 12 | sirkus | 23. NÓVEMBER 2007
ÍÞRÓTTAÁLFUR OG FRÚ Það var hressandi
að sjá Magnús Scheving í sparifötum.
Hér er hann með Ragnheiði Melsted,
eiginkonu sinni.
Í GYÐJUKLÆÐUM Guðrún Pétursdóttir geislaði í
brúðkaupinu í skósíðum kjól. Í bakgrunni sést í
Ragnhildi Gísladóttur og Birki Kristinsson.
Ragnhildur klæddist kjól úr Kronkron.
Menn eru sammála um að brúðkaup Jóns Ásgeirs
og Ingibjargar Stefaníu hafi verið ein glæsilegasta
veisla sem haldin hefur verið lengi enda iðaði
skemmtanaelítan í Reykjavík þegar boðskortið
barst. Það sem vakti mikla athygli var að flestir gest-
anna mættu í svörtum fötum en ekki er hefð fyrir
því í íslenskum brúðkaupum. Svartur er yfirleitt
flokkaður sem litur sorgarinnar en þar sem litapall-
etta brúðhjónanna er yfirleitt bara svört með
silfruðu ívafi töldu brúðkaupsgestirnir óhætt að
skarta svörtu. Berir leggir voru líka áberandi enda
eru húðlitaðar sokkabuxur löngu dottnar úr tísku
og engin eðalskvísa lætur sjá sig í 40 denum eða
minna. Þær sem skörtuðu beru leggjunum vita að
„bjútí is pain“ og létu sig hafa það. Í Hafnarhúsinu
var hvíti liturinn mest áberandi í skreytingum og
borðhaldi. Í porti Hafnarhússins voru langborð þar
sem hvítklæddir þjónar stjönuðu í kringum gestina.
Í viðbyggingunni við Hafnarhúsið var hins vegar
hljómsveitin og þar tjúttuðu gestirnir fram á rauða
nótt.
BRÚÐKAUP JÓNS ÁSGEIRS OG INGIBJARGAR STEFANÍU
Svört föt og berir leggir
Helgin var fjölbreytt, litrík og í svalari
kantinum hjá Sirkusstjóranum enda nóg
um að vera. Á föstudagskvöldinu voru
útgáfupartí á hverju götuhorni á
höfuðborgarsvæðinu. Einar Bárðarson
fagnaði öllum trixunum í bókinni ásamt
Arnari Eggerti Thoroddsen, höfundi
bókarinnar, á Apótekinu. Þar voru
Þorgrímur Þráinsson og eiginkona hans,
Ragnhildur Eiríksdóttir,
Jakob Frímann Magn-
ússon, Ívar
Guðmundsson
kraftlyftingagúru og
Tryggvi Jónsson
athafnamaður. Í
útgáfuteiti Eyvindar
Karlssonar á
næsta horni,
Litla ljóta
andarunganum,
sátu foreldrar
Eyvindar, Karl
Ágúst Úlfsson leikari og kona hans,
Ásdís Olsen, á fremsta bekk og klöppuðu
syni sínum lof í lófa, en Eyvindur las upp
úr nýútkominni bók sinni. Þar var líka
varaþingmaðurinn Paul Nikolov, fyrsti
útlendingurinn sem situr á Alþingi, íhugull
og saug í sig íslenska menningu.
Á laugardagskvöldinu hélt Sirkusstjórinn í
hina árlegu „hnakkaveislu“ útgáfufyrir-
tækisins Senu sem haldin var á
Apótekinu. Þar svifu um fagrar meyjar og
sveinar. Þema veislunnar var að
þessu sinni, rautt og
svart/hvítt og höfðu
veislugestir lagt mikið
á sig við að velja
klæðnað fyrir partíið.
Það fór vel á með
þeim Ásgeiri
Kolbeinssyni
yfirhnakka og
fyrrverandi
fegurðar-
drottningunni
Ragnheiði
Guðfinnu.
Monitorrit-
stjórinn Biggi í Maus var eins og
rokkkóngur umkringdur fögrum fljóðum
og ræddi meðal annars við sjarmatröllið
Guðmund Jónsson í Sálinni um bransann.
Sjónvarpsdrottningin Andrea Róberts-
dóttir var afar blómleg með rauða rós í
hárinu og brosti sínu blíðasta. Stjarna
veislunnar var þó óumdeilanlega
spjallkóngurinn Logi Bergmann Eiðsson
sem lék á als oddi en eflaust hefur hann
saknað konu sinnar
Svanhildar Hólm, sem
var fjarri góðu gamni
aldrei þessu vant. Að
loknu heljarinnar
kvöldi hélt Sirkusstjór-
inn heim sæll
og glaður
og sofnaði
með bros
á vör.
■ Hverjir voru hvar?
FLOTT Í TAUINU Jakob Frímann
Magnússon skartaði silkijakkafötum í
tilefni dagsins en kærasta hans, Birna
Rún Gísladóttir viðskiptafræðingur og
nýbökuð móðir, klæddist svörtum kjól
og slá frá Steinunni fatahönnuði. Takið
eftir sokkabuxunum, þær settu
algerlega punktinn yfir i-ið.
DORRIT STAL SENUNNI Ólafur Ragnar og
Dorrit mættu galvösk í veisluna. Hún var
ein af fáum sem skartaði ekki svörtum
klæðnaði í veislunni. Ólafur var einn af
fjórum sem fékk að halda ræðu í
veislunni og talaði hann um brúðhjónin
eins og þau væru aldargamlir vinir hans.
EÐALPAR Stefán Hilmar Hilmarsson,
aðstoðarforstjóri Baugs, er hér ásamt
unnustu sinni, Friðriku Hjördísi
Geirsdóttur. Hún klæddist glæsilegum
Dolce & Gabbana kjól, með GUCCI-veski
og loðkeip um sig svo að henni yrði ekki
kalt.
BERLEGGJUÐ Í FROSTINU Tinna
Ólafsdóttir og eiginmaður hennar, Karl
Pétur Jónsson, voru glæsileg þegar
þau komu í kirkjuna. Hún klæddist
svörtu og hefur ekki hlustað nógu vel á
veðurspána því hún var ekki í neinum
sokkabuxum.
SJÖTTI MEÐLIMURINN Í ROLLING STONES
Sigurður Gísli Pálmason, bróðir
brúðarinnar, var eins og rokkstjarna
þegar hann mætti í brúðkaupið í
skinnfrakka með týpugleraugu. Hér er
hann með eiginkonu sinni, Guðmundu
Þórisdóttur, sem var vel vopnuð slæðu
svo að greiðslan myndi ekki fara úr
skorðum í rokinu.
NÝI GLITNISFORSTJÓRINN Lárus Welding
er hér ásamt eiginkonu sinni, Ágústu
Margréti Ólafsdóttur. Hún er viðskipta-
fræðingur og starfaði hjá Baugi í
Lundúnum meðan Lárus starfaði fyrir
Landsbankann þar í borg. Hún hefur
verið heimavinnandi síðan þau fluttu
heim en þau eignuðust dóttur sumarið
2005.
HEIMSBORGARALEG Nanna Björg Lúðvíks-
dóttir og Þórður Már Jóhannesson voru
glæsileg í brúðkaupinu. Nanna skar sig
úr og klæddist kjól sem hún keypti í
Saks í New York en stígvélin eru úr
Kultur. Þórður Már var hins vegar
GUCCI-klæddur frá toppi til táar.
GLÆSILEG Pálmi Haraldsson, fjárfestir
og viðskiptafélagi Jóns Ásgeirs, er hér
ásamt eiginkonu sinni, Höllu
Rannveigu Halldórsdóttur.
FÖGUR BRÚÐHJÓN Jón Ásgeir
var klassískur en Ingibjörg
klæddist kjól frá Steinunni
fatahönnuði. Takið eftir
brúðarvendinum, það er
ekki hver sem er sem
skartar svörtum rósum.
Brúðhjónin flugu beint til
Parísar á einkaþotunni eftir
brúðkaupsveisluna þar sem
þau ætla að dvelja í tíu
daga.