Fréttablaðið - 10.12.2007, Síða 49

Fréttablaðið - 10.12.2007, Síða 49
MÁNUDAGUR 10. desember 2007 25 BRÉF TIL BLAÐSINS UMRÆÐAN Heilbrigðismál Vitneskja foreldra um skyn-samlega notkun sýklalyfja skiptir höfuðmáli ef árangur á að nást til að draga úr óþarfa notkun sýklalyfja og frekari þróun sýkla- lyfjaónæmis. Þetta eru m.a. hluti af niðurstöðum doktorsritgerðar undirritaðs sem nýlega hefur verið til ítarlegrar umfjöllunar erlendis. Vakin er athygli á hvað aðrar þjóðir geti lært af reynslu Íslend- inga. Alþjóðlega heilbrigðisstofn- unin (WHO) leggur áherslu á að ekki þurfi alltaf að meðhöndla vægar sýkingar sem lagast af sjálfu sér með sýklalyfjum svo sem vægar miðeyrnabólgur til að sporna gegn hratt vaxandi þróun sýklalyfjaónæmis. Sýklalyfja- notkunin hefur engu að síður auk- ist hér á landi um 18% að meðal- tali á hvert mannsbarn á aðeins þriggja ára tímabili sem síðustu sölutölur ná yfir til ársins 2006 á sama tíma og verulega hefur dregið úr sýklalyfjanotkun í flestum öðrum löndum. Almennt hefur verið talið að íslensk börn séu mjög heilbrigð og að íslenska heilbrigðiskerfið sé með því besta sem þekkist. Samt hefur sýklalyfja- notkun verið meiri á Íslandi en hinum Norður- löndunum svo og sýkla- lyfjaónæmið. Í dag þurfa börn stundum að leggjast inn á sjúkrahús til sér- tækrar sýklalyfjameð- ferðar í æð þar sem venju- leg sýklalyf virka ekki alltaf lengur til að ráða niðurlögum sýkinga sem áður var auðvelt að meðhöndla. Mikið hefur verið rætt um slæma heilsu tengda þjóðfélags- breytingum og því ekki fjarri lagi að leita skýringa þar einnig á úrlausnum á algengasta heilsuvanda íslenskra barna sem eru eyrna- bólgurnar. Gæðaþróun- arverkefnið sem dokt- orsritgerðin byggir á um notkun sýklalyfja hjá börnum var framkvæmt innan heilsugæslunnar í samstarfi við Sýkla- fræðideild LSH yfir 10 ára tímabili á höfuð- borgarsvæðinu, í Vest- mannaeyjum, á Egils- stöðum og í Bolungarvík með það að aðalmarkmiði að draga úr óþarfa sýklalyfjanotkun. Niður- stöðurnar sýndu að þriðjungur barna bera sýklalyfjaónæmar bakteríur eftir hvern sýklalyfja- kúr sem smitast auðveldlega milli barna og vísbendingar eru um að sýklalyfjameðferð við vægum eyrnabólgum geti aukið hættu á endurteknum sýkingum og þörf á hljóðhimnurörum síðar. Leitað var eftir skýringum tengdri búsetu og viðhorfum foreldranna sjálfra til ávísana á sýklalyf. Á Egilsstöðum var skilningur foreldra á skyn- samlegri notkun sýklalyfja áber- andi bestur og þar dró úr sýkla- lyfjanotkun barna um 2/3 jafnframt sem börnum fækkaði sem þurftu að fá hljóðhimnurör. Mikilvægi skilnings foreldra á úrlausnum er því augljós og skipt- ir þjóðfélagið allt miklu máli sér- staklega þegar afleiðingarnar geta verið alvarlegar, svo sem aukin tíðni sýkinga og aukið sýklalyfjaónæmi. Mikilvægar ályktanir til úrbóta sem draga má af niðurstöðunum eru að gefa þarf foreldrum veikra barna góðan aðgang að heilsugæslu þar sem lögð er áhersla á möguleg önnur úrræði en ávísun á sýklalyf af minnsta tilefni, fræðslu og eftir- fylgni. Tímaskortur foreldra vegna vinnuálags og takmarkaður réttur til að geta verið heima hjá veiku barni á daginn ræður hins vegar einnig miklu hvaða úrlausna er leitað í heilbrigðisþjónustunni. Höfundur er heilsugæslulæknir. Ofnotkun sýklalyfja á Íslandi Umburðarlyndi Séra Sighvatur Jónsson, sóknar- prestur á Húsavík, skrifar: „Ég er alveg fordómalaus.“ Þessi fullyrðing er í sjálfu sér mikill hleypi- dómur. Á unglingsárum mínum stundaði ég nám í enskuskóla í Englandi. Ég bjó hjá fjölskyldu sem hýsti nokkra nemendur skólans. Þar var múslimi sem tók fram bænateppið sitt fimm sinnum á dag og baðst fyrir með því að snúa sér í átt til Mekka. Eitt kvöld- ið fórum við saman á krá og drukkum nokkrar ölkrúsir. Hann sagðist ekki mega drekka áfengi samkvæmt siðum múslima en nú væri hann fjarri heimalandinu. Því gæti hann drukkið. Síðar kom í ljós að hann var samkynhneigður. Ég sat mörgum árum síðar á bekk í Minneapolis og beið eftir strætisvagn- inum. Við hliðina á mér sat svartasti maður sem ég hafði séð. Blásvart andlitið var rúnum rist, óþefurinn lá í loftinu. „Nú er það svart, maður“, hugsaði ég. Hann ávarpaði mig en ég svaraði honum ekki vegna fordóma minna. Ég fór á landsleik á Laugardals- vellinum. Sætið í gömlu stúkunni var betra en bekkurinn í Minnesota forðum. Stemningin stigmagnaðist. Áhorfendur gátu vart haldið vatni af hrifningu eða vandlætingu yfir gangi leiksins. Ég hreifst með og lét ýmis- legt yfir mig ganga, t.d. kaffislettur. Brátt fór ég að hrópa í vandlætingar- tóni með áhorfendaskaranum: „Út af með dómarann!“ Það er erfitt að vera múslimi og eiga líflát yfir höfði sér fyrir samkyn- hneigð. Það er torvelt að vera litinn hornauga vegna húðlitar. Það er örð- ugt að vera dómari í knattspyrnu. Það er erfiðast að dæma sjálfan sig. Á vegferð minni hef ég komist í kynni við fólk af öllum kynþáttum með ólíkan menningarbakgrunn, trú og siði. Þessi kynni hafa laðað fram jákvætt hugarfar í mínu dagfari. Ég hef jafnan litið í eigin barm og barist við mína hleypidóma. Ég á töluvert langt í land með að verða fordóma- laus en ég leitast við að bera virðingu fyrir fólki í ljósi gullnu reglunnar. Sjálfsskoðunin hefur aukið dóm- greind mína. Fyrir það er ég þakklátur. Það er lífstíðarverkefni að sigrast á eigin hleypidómum. Jólatilboð fraktflugs Flugfélags Íslands gerir þér kleift að senda pakka frá 1–10 kg, af hverju sem er, á alla áfangastaði fyrir aðeins 700 kr. Tilboðið gildir frá 10. til 18. desember. SENDU JÓLAPAKKANA HRATT OG ÖRUGGLEGA flugfelag.is Akureyri 460 7060 Egilsstaðir 471 1210 Ísafjörður 456 3000 Reykjavík 570 3400 Vestm.eyj. 481 3300 sími: ÍS L E N S K A /S IA .I S /I C E 4 01 72 1 2/ 07 1-10 KG Á VILHJÁLMUR ARI ARASON

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.