Fréttablaðið - 16.12.2007, Blaðsíða 84
48 16. desember 2007 SUNNUDAGUR
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000
7
16
7
14
12
16
14
ALVIN & ÍKORNARNIR kl.2 - 4 - 6 ÍSL. TAL
DUGGHOLUFÓLKIÐ kl. 2 - 4 - 6
RUN FATBOY RUN kl. 8 - 10
SAW 4 kl. 8 - 10
7
16
16
16
14
14
RUN FATBOY RUN kl.3 - 5.50 - 8 - 10.10
SAW 4 kl. 8 - 10.10
BUTTERFLY ON A WHEEL kl.3 - 5.45 - 8 - 10.15
DAN IN REAL LIFE kl.3 - 5.45
LA VIE EN ROSE/LÍF RÓSARINNAR kl.3 - 6 - 9
ALVIN & ÍKORNARNIR kl. 2 - 4 - 6 - 8 ÍSL. TAL
ALVIN & ÍKORNARNIR kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10 ENSKT TAL
ALVIN & ÍKORNARNIR LÚXUS kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10 ENSKT TAL
BEE MOVIE ÍSL. TAL kl. 2 - 4 - 6
DUGGHOLUFÓLKIÐ kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10
HITMAN kl. 8 - 10.10
DAN IN REAL LIFE kl. 10
ALVIN & ÍKORNARNIR kl.4 - 6 - 8 ÍSL. TAL
DUGGHOLUFÓLKIÐ kl. 4 - 6 - 8 - 10
BUTTERFLY ON A WHEEL kl.3.30 - 5.45 - 8 - 10.15
ACROSS THE UNIVERSE kl. 8 - 10.40
RENDITION kl. 10
VEÐRAMÓT SÍÐUSTU SÝN. kl. 5.40
BALLS OF FURY SÍÐUSTU SÝN. kl.4
5%
5% 5%
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR BÍÓMIÐANN
MEÐ KREDITKORTI TENGDU AUKAKRÓNUM!
ÁST. SKULDBINDING. ÁBYRGÐ.
HANN HLEYPUR FRÁ ÖLLU!
HLAUPTU FITUBOLLA,
HLAUPTU
Nú verður allt vitlaust!
Stórskemmtileg gamanmynd fyrir
alla fjölskylduna
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Háskólabíó merktar með rauðu
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Borgarbíói merktar með rauðu
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
- bara lúxus
Sími: 553 2075
RUN FATBOY RUN kl. 2, 6, 8 og 10 L
ALVIN OG ÍKORNARNIR - ÍSL TAL kl. 2, 4 og 6 L
SAW IV kl. 8 og 10 16
BEE MOVIE - ÍSL TAL kl. 2, 4 og 6 L
HITMAN kl. 8 og 10 16
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
450 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar merktar með rauðu!
Stefnt er að því að gefa
sjónvarpsþættina Heilsu-
bælið út á DVD. Þá er verið
að skoða möguleika á því að
gefa allar myndir Friðriks
Þórs Friðrikssonar út á
DVD.
Friðrik Þór kannaðist vel við málið
þegar Fréttablaðið hafði samband
við hann og sagði þetta eiga að
skýrast eftir helgi. Málið væri á
viðræðustigi en reikna mætti með
að myndirnar yrðu gefnar út í sér-
stakri viðhafnarútgáfu. Ekki er
óalgengt að kvikmyndaleikstjórar
úti í heimi fái sínar bestu myndir
gefnar út í sérstökum boxum og
nægir þar að nefna Coen-bræð-
urna og Tarantino-safnið sem hafa
verið til sölu hér á landi. Jón Gunn-
ar Geirdal, markaðsstjóri Senu,
sagðist vera ákaflega spenntur
yfir þessu og bætti því við að leit-
ast yrði við að gera þetta eins
glæsilegast úr garði og mögulegt
væri. „Myndirnar hans Friðriks
eru alveg jafn stór hluti af íslenskri
menningarsögu og bækur Lax-
ness,“ segir Jón.
Friðrik Þór á að baki glæstan
feril á bak við kvikmyndatökuvél-
ina. Hann hlaut Óskarstilnefningu
fyrir kvikmynd sína Börn náttúr-
unnar sem væntanlega verður
hluti af þessari endurútgáfu. Auk
þess er gert ráð fyrir að Rokk í
Reykjavík verði með en heimildar-
myndin, sem er frá árinu 1982,
þykir mikið menningarverðmæti
enda má þar meðal annars sjá
Björk og Bubba Morthens stíga sín
fyrstu skref á tónlistarsviðinu.
Ekki er hins vegar vitað hvort
fyrsta leikna kvikmynd Friðriks,
Skytturnar, og heimildarmyndin
Kúrekar norðursins fái að fljóta
með en ljóst er að af nógu er að
taka.
Endurútgáfa á kvikmyndum er þó
ekki það eina sem til stendur. Í
ljósi mikillar eftirspurnar eftir
gömlu íslensku sjónvarpsefni á
borð við Fóstbræður er Sena nú í
viðræðum við Gísla Rúnar Jóns-
son um að gefa út gamanþáttaröð-
ina Heilsubælið sem sýnd var á
Stöð 2 á upphafsárum sjónvarps-
stöðvarinnar. Samkvæmt heimild-
um Fréttablaðsins eru þær við-
ræður á frumstigi en bjartsýnustu
menn vona að þetta verði að veru-
leika fyrr en seinna enda nutu
þættirnir gríðarlegra vinsælda.
Auk þess er verið að skoða endur-
útgáfu af Strumpunum sem Laddi
talaði inn á og teiknimyndirnar
Einu sinni var sem héldu börnum
fyrir framan sjónvarpið með
fræðslu sinni um mannkynssög-
una. Þessar endurútgáfur eru þó
enn á algjöru frumstigi.
freyrgigja@frettabladid.is
Heilsubælið gefið út á DVD
SPENNANDI VERKEFNI Fyrstu kvikmyndir Friðriks hafa verið ófáanlegar um árabil en
nú stefnir í að breyting verði þar á.
DR. SAXI OG FÉLAGAR Þessi fræga persóna
Ladda kom fyrir í gamanþáttunum Heilsu-
bælið og er hér ásamt aðstoðarmönnum
sínum, þeim Eddu Björgvins og Pálma
Gestssyni. Unnið er að því að gefa þá út á
DVD á næstunni.
Þreföld safnplata Vilhjálms Vilhjálms-
sonar hefur selst eins og heitar
lummur síðan hún kom út fyrir
nokkrum vikum. Fyrsta upplag seldist
fljótt upp og fór annað upplagið í búðir
fyrir skömmu. Þriðja upplagið, sem
nemur þrjú þúsund eintökum, er síðan
væntanlegt um miðja næstu viku.
Eiður Arnarsson, útgáfustjóri
Skífunnar, telur að platan eigi eftir að
seljast í níu til tíu þúsund eintökum
fyrir jólin. „Eftirspurnin er miklu meiri
en framboðið,“ segir Eiður. „Við gáfum árið 1999 út
tvöfalda safnplötu með honum sem hét Dans
gleðinnar og við erum búin að selja í
kringum fjórtán þúsund eintök af
henni.“
Hann segir að alltaf sé markaður
fyrir plötum þar sem kastljósinu sé
beint aftur að hetjum eins og Vilhjálmi.
„Það er ekkert óeðlilegt að gera svona
safnplötur á nokkurra ára fresti og
hann er eiginlega allra. Það eru ekki
svo margir flytjendur sem maður getur
sagt það um.“
Á safnplötunni eru bestu lög Vilhjálms
á borð við Söknuður, Bíddu pabbi og Lítill drengur,
sem teljast öll til sígildra íslenskra dægurlaga. - fb
Selst eins og heitar lummur
VILHJÁLMUR VILHJÁLMSSON
Ný safnplata með bestu lögum
Vilhjálms selst eins og heitar
lummur.
SparBíó 450krí Á EFTIRTALDAR SÝNINGAR laugardag og sunnudag REYKJAVÍK AKUREYRI KEFLAVÍK SELFOSS
FRED KLAUS- kl. 3 í Álfabakka og á
Selfossi, kl. 2 í Keflavík og á Akureyri
ÍÞRÓTTAHETJAN-
kl. 1:15 í Kringlunni
ALVIN OG
ÍKORNARNIR-
kl. 2 í Álfabakka
SYDNEY WHITE-
kl. 3:40 í Álfabakka
sýnd með
íslensku
og ensku tali
BÝFLUGUMYNDIN
kl. 2 í Álfabakka, Akureyri, Keflavík,
Selfossi og í kringlunni.
M/ ÍSLENSKU
TALI
(kl. 1:40 M/ENSKU TALI
í Álfabakka og kl. 2 í Kringlunni)