Fréttablaðið - 16.12.2007, Blaðsíða 72
36 16. desember 2007 SUNNUDAGUR
Stjörnur við sjóndeildarhringinn
Á hverju ári koma einstaklingar fram á sjónarsviðið sem eiga það sameiginlegt að vekja athygli fyrir góðan árangur í starfi og
leik. Þetta eru einstaklingar sem ná að skapa sér ákveðinn sess innan þjóðfélagsins og eignast jafnvel sinn eigin aðdáendahóp.
Fréttablaðið skoðaði hvert svið fyrir sig og leitaði að verðandi stjörnum – þeim einstaklingum sem líklegir eru til að skara fram úr
á næsta ári.
LEIKLIST
JÖRUNDUR RAGNARSSON
Þessi 28 ára gamli leikari, sem útskrif-
aðist úr Leiklistarskólanum á síðasta
ári, hefur slegið í gegn í vetur í hlut-
verki hins óörugga og þunglynda Dan-
íels Sævarssonar í sjónvarpsþáttunum
Næturvaktinni á Stöð 2. Þá var hann í
stórum hlutverkum í kvikmyndunum
Astrópía og Veðramót, og fyrir frammi-
stöðu sína sem misþroska drengur í
síðarnefndu myndinni hlaut Jörund-
ur Edduverðlaun. Þá hefur Jörund-
ur ekki síður verið duglegur á sviðinu
og hefur meðal annars komið fram í
Footloose, Lík í óskilum, Killer Joe og
fleiri verkum. Ef afköst Jörundar frá út-
skrift verða sambærileg á næsta ári
má búast við því að hann verði
orðinn einn af eftirlætisleikur-
um þjóðarinnar áður en langt
um líður.
ÍÞRÓTTIR
ERLA DÖGG HARALDSDÓTTIR
Hin nítján ára gamla Erla Dögg komst í
sviðsljósið fyrir nokkrum vikum þegar hún
hófst handa við að bæta fjölmörg Íslands-
met í bringu- og fjórsundi kvenna, meðal
annars allt að fimmtán ára gömul met
Ragnheiðar Runólfsdóttur. Erla Dögg hefur
bætt sig gríðarlega mikið á síðustu mán-
uðunum og sér ekki fyrir endann á þeim
framförum. Næsta ár er Ólympíuár og ef
Erla Dögg heldur rétt á spöðunum gæti
hún auðveldlega orðið ein af vonarstjörn-
um íslenska hópsins. Fyrst þarf Erla þó að
ná lágmörkunum, en miðað við formið
sem hún er í ætti það að vera formsatriði.
Hún hefur öll þau persónueinkenni
sem þarf til að ná langt, geysilega
metnaðarfull og skynsöm
stúlka sem þó passar sig að
halda báðum fótum á jörð-
inni.
MYNDLIST
Ragnar Kjartansson
Þótt Ragnar sé enginn nýgræðing-
ur á sviði listanna hefur hann líklega
verið þekktastur fyrir afrek sín á tón-
listarsviðinu, sem söngvari hljómsveita
á borð við Trabant og Funerals. Færri
vita að Ragnar er einstakur myndlistar-
maður, sem í síðasta mánuði var valinn til að
vera fulltrúi Íslands á Tvíæringnum í Feneyjum 2009. Hann er
sonur þeirra Guðrúnar Ásmundsdóttur, leikskálds, leikkonu
og leikstjóra, og Kjartans Ragnarssonar, leikstjóra og leik-
skálds, og er alnafni afa síns, sem var mikill frumkvöðull í ís-
lenskri myndlist. Ragnar útskrifaðist úr myndlistardeild LHÍ
árið 2001 og hefur frá þeim tíma tekið þátt í fjölda samsýn-
inga, sett upp innsetningar og framið hina ólíklegustu gjörn-
inga. Sagt hefur verið um Ragnar að verk hans verði til á
landamærum leikhúss, tónlistar og annara listgreina og hefur
hann meðal annars unnið með myndbönd, olíu, teikningar,
ljósmyndir og ýmislegt fleira.
TÓNLIST
Poetrix
Rappið hefur verið á nokkru undanhaldi í íslensku tónlist-
arlífi en með tilkomu hins 21 árs gamla Sævars Daníels
Kolandavelu, sem kemur fram undir listamannanafninu
Poetrix, gera menn sér von um að sú þróun muni snú-
ast við. Poetrix hefur þegar vakið nokkra athygli fyrir fram-
bærilegar lagasmíðar og hnyttna og beinskeytta texta.
Fyrsta sólóplata hans er væntanleg í febrúar á næsta ári
og nýtur hann þar aðstoðar ekki ómerkari manna en
Bubba Morthens, Einars Ágústs, Davíðs Þórs
Jónssonar og fleiri þekktra tónlistar-
manna, sem allir eiga það sameiginlegt
að hafa gegndarlausa trú á hæfileik-
um Poetrix.
VIÐSKIPTI
Jón Sigurðsson
Sem nýráðinn forstjóri FL Group, eins af mest áberandi
félögum Kauphallar Íslands, er óhjákvæmilegt að meira
muni bera á Jóni Sigurðssyni í umræðunni en verið hefur
til þessa. En þótt hinn 29 ára gamli Jón hafi látið tiltölu-
lega lítið fyrir sér fara í fjármálageiranum frá því að hann
steig inn í hann fyrir rúmum fimm árum hefur hann mikil
ítök, til dæmis sem stjórnarmaður í Glitni,
Tryggingamiðstöðinni og Hitaveitu Suð-
urnesja. Jón er auk þess afar vel les-
inn, þykir ljóngáfaður og hefur allt að
bera til að njóta mikillar velgengni í
viðskiptalífinu á komandi misserum.
RITSTÖRF
Kristín Eiríksdóttir
Kristín var ef til vill ekki mest áberandi með-
limurinn í Nýhil-kreðsunni en sannarlega
einn sá hæfileikaríkasti. Hún stimplaði sig
rækilega inn aðeins 23 ára gömul með frum-
raun sinni Kjötbænum, og vakti athygli fyrir
frumleika, sprengikraft og bráðþroska tilfinn-
ingu fyrir ljóðmáli. Hélt áfram að þróa stílinn í
annarri bók sinni, Húðlitri auðninni, sem kom
út í fyrra, og vinnur nú að sinni fyrstu skáld-
sögu, sem kemur væntanlega út á næsta ári.
Kristín er höfundur sem ástæða er til að
fylgjast með á næsta ári.
STJÓRNMÁL
Erla Ósk Ásgeirsdóttir
Þrátt fyrir að vera aðeins þrítug að aldri hefur Erla Ósk
verið lengi í forystusveit ungliðahreyfingar Sjálfstæð-
isflokksins. Flestir eru sammála um að hún sé einn af
framtíðarleiðtogum flokksins og hefur hún verið nefnd
sem arftaki Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur. Erla Ósk
var nýlega endurkjörin formaður Heimdallar, félags
ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, og í upphafi síð-
asta mánaðar settist hún á þing í fyrsta skipti sem vara-
maður Birgis Ármannssonar. Og miðað við kraftinn
og áræðnina sem hún sýndi á fyrstu dögum
sínum sem þingmaður, þar sem hún lagði
meðal annars fram frumvarp um afnám
lágmarksútsvars sveitarfélaga, verður þess
væntanlega ekki langt að bíða að Erla
Ósk láti að sér kveða á stóra sviðinu.