Fréttablaðið - 16.12.2007, Blaðsíða 49
ATVINNA
SUNNUDAGUR 16. desember 2007 1911
Þjálfari óskast / Starfsmaður
unglingaráðs óskast.
Þjálfari:
Knattspyrnudeild Breiðabliks óskar eftir þjálfara fyrir yngri
fl okka félagsins. Æskileg reynsla að þjálfun og/eða
menntun innan íþróttageirans.
Starfsmaður unglingaráðs:
Knattspyrnudeild Breiðabliks óskar eftir að ráða starfs-
mann fyrir unglingaráð.
Um er að ræða 50% stöðugildi og vinnutími getur verið
svegjanlegur.
Starfi ð felur í sér fl ölbreytta vinnu fyrir unglingaráð.
Til greina kemur að ráða í bæði stöðugildin sem
100% starf.
Áhugasamir hafi samband við Arnar Bill yfi rþjálfara yngri
fl okka Breiðabliks í síma 510-6400 eða í netfangið
arnarbill@breidablik.is
Lionbridge óskar eftir
vefmatsmönnum
Starfshlutfall: Hlutastarf
Ráðningartími: Ótiltekinn
Starfslið Lionbridge Technologies heldur úti þjón-
ustumiðstöðvum í 25 löndum um allan heim og óskar
eftir að fá til liðs við sig sjálfstætt starfandi samstarfsmenn
í hlutastörf. Þeir skulu hafa staðgóða þekkingu á
íslensku og ensku og þekkja vel til samfélagsins á Íslandi
til liðs við sig sem vefmatsmenn.
Kröfur:
• Staðgóð enskukunnátta er frumskilyrði
• Við leitum að fólki sem er vel heima á Netinu og hefur
greiðan netaðgang
• Starfsreynsla á sviði upplýsingatækni er kostur en ekki
skilyrði
• Ef umsækjandi er ekki Íslendingur er krafi st búsetu á
Íslandi til 5 ára eða lengur
Starfi ð felst í mati á vefl eitartækjum. Vinnutími er sveigjan-
legur og lagast að heimili og fjölskylduífi og því hentar
starfi ð vel þeim sem óska eftir hlutastarfi (10-20 stundir á
viku).
Umsóknir sendist til: is.raters.bal@lionbridge.com
ásamt starfsferilsskrá á ENSKU ásamt umsókn þar
sem gerð er grein fyrir þeirri kunnáttu sem umsæk-
jandi getur nýst í starfi , tómstundaiðju, áhugamálum
og reynslu, ennfremur komi þar fram þjóðerni
umsækjanda og búsetuland.
Lionbridge Technologies er vinnuveitandi sem virðir
jafnrétti.
Fræðslustjóri Norðuráls
Grundartanga • 301 Akranesi • Sími 430 1000 • Fax 430 1001 • nordural@nordural.is • www.nordural.is
Við óskum að ráða fræðslustjóra til Norðuráls á Grundartanga.
Um er að ræða gefandi og fjölbreytt framtíðarstarf.
Norðurál er eftirsóttur vinnustaður. Starfsmenn eru á fimmta hundrað talsins, verkefnin margvísleg og störfin fjölþætt. Hjá fyrirtækinu starfa
m.a. verkfræðingar, tæknifræðingar, viðskiptafræðingar, sálfræðingar, efnafræðingar, eðlisfræðingar, líffræðingar, tölvunarfræðingar, rafvirkjar,
vélvirkjar, vélstjórar & rafsuðumenn, auk ófaglærða starfsmanna sem öðlast dýrmæta sérhæfingu við störf sín og nám hjá fyrirtækinu.
Hvaða kröfur gerum við?
Menntun í mannauðsstjórnun eða önnur
háskólamenntun sem nýtist í starfi
Uppörvandi framkoma, sterk samskipta-
og samstarfshæfni
Reynsla og/eða sérhæfing í skipulagningu
og framkvæmd fullorðinsfræðslu
Góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði
í töluðu og rituðu máli
Öguð og góð vinnubrögð
Frumkvæði og þjónustulund
Helstu verkefni
Mat á fræðsluþörf starfsmanna
Framfylgni fræðslustefnu
Þróun fræðsluáætlana í samstarfi við
stjórnendur fyrirtækisins
Utanumhald vegna þátttöku starfsmanna
í fræðslu
Samstarf við fræðsluaðila um uppbyggingu
náms fyrir einstaklinga sem vilja auka
þekkingu sína og hæfni
Þátttaka í öðrum verkefnum starfsmannasviðs
Hvað veitum við?
Við bjóðum þér áhugavert starf hjá nútímalegu
fyrirtæki. Þú vinnur mikilvæg verk með góðum
hópi samstarfsfólks og við tökum vel á móti þér.
Verkefnin eru fjölbreytt og þú færð tækifæri til
að sýna frumkvæði og nýta þekkingu þína við
mótun þeirra.
Góður aðbúnaður og nýtt mötuneyti
á staðnum
Símenntun í alþjóðlegu umhverfi
Atvinnuöryggi, traustar tekjur og laun
að hluta árangurstengd
Fyrirtækið greiðir þér aukið framlag
í lífeyrissjóð
Nánari upplýsingar veitir:
Rakel Heiðmarsdóttir, framkvæmdastjóri
starfsmannasviðs, í síma 430 1000.
Hvernig sækir þú um?
Vinsamlega sendu okkur umsókn þína fyrir
27. desember n.k. Þú getur sótt um á vef
fyrirtækisins, www.nordural.is, sent umsókn
þína á netfangið umsókn@nordural.is eða
póstlagt umsóknina merkta: Fræðslustjóri.
Við förum með umsókn þína sem trúnaðar-
mál. Öllum umsóknum verður svarað.
Jafnrétti
Við leggjum áherslu á jafna möguleika karla
og kvenna til starfa hjá Norðuráli.
KÓPAVOGSBÆR
www.kopavogur.is - www.job.is
Félagsþjónusta Kópavogs
Yfirseta í
barnaverndarmálum
• Félagsþjónusta Kópavogs óskar eftir starfs-
manni í yfirsetu í barnaverndarmálum.
Um er að ræða vinnu sem fer fram um
helgar 1-4 helgar í mánuði í 4-6 tíma í
senn.
Umsækjendur þurfa að vera 20 ára og
eldri. Reynsla æskileg.
Vinsamlegast hafið samband við Dagnýju
Björk Pjetursdóttur, umsjónarmann sérúrræða
hjá félagsþjónustu Kópavogs, mánudaga til
fimmtudaga í síma 570-1400 eða með tölvupósti
dagny@kopavogur.is.
Laun samkvæmt kjarasamningi Launanefndar
sveitarfélaga og SfK.
Hvetjum karla jafnt
sem konur til að sækja
um starfið.