Fréttablaðið - 16.12.2007, Blaðsíða 90
54 16. desember 2007 SUNNUDAGUR
Enska úrvalsdeildin:
Birmingham-Reading 1-1
1-0 Mikael Forssell (4.), 1-1 Stephen Hunt (51.).
Brynjar Björn Gunnarsson og Ívar Ingimarsson
voru í byrjunarliði Reading í leiknum.
Derby-Middlesbrough 0-1
0-1 Sanli Tuncay (38.).
Fulham-Newcastle 0-1
0-1 Joey Barton (90+3.).
Man. City-Bolton 4-2
1-0 Rolando Bianchi (7.), 1-1 El Hadji Diouf (31.),
1-2 Kevin Nolan (40.), 2-2 Lubomir Michalik(48.),
3-2 Darius Vassell (77.), 4-2 Kelvin Etuhu (90.).
Heiðar Helguson var ekki með Bolton í leiknum.
Portsmouth-Tottenham 0-1
0-1 Dimitar Berbatov (81.). Hermann Hreiðarsson
kom inn á sem varamaður á 74. mínútu.
Sunderland-Aston Villa 1-1
1-0 Danny Higginbotham (10.), 1-1 Shaun
Maloney (73.).
West Ham-Everton 0-2
0-1 Yakubu (45+1.), 0-2 Andy Johnson (90+4.).
Wigan-Blackburn 5-3
1-0 Denny Landzaat (10.), 2-0 Marcus Bent (12.),
3-0 Paul Scharner (37.), 3-3 Santa Cruz (45, 50
og 61.). 4-3 M. Bent (66.), 5-3 M. Bent (81.).
STAÐAN Í DEILDINNI:
Arsenal 16 11 4 1 33-14 37
Man. Utd. 16 11 3 2 29-8 36
Chelsea 16 10 4 2 24-9 34
Man. City 17 10 3 4 24-19 33
Liverpool 15 8 6 1 27-9 30
Everton 17 10 3 5 31-16 30
Portsmouth 17 8 6 3 28-15 30
Aston Villa 17 8 4 5 28-20 28
Blackburn 17 7 5 5 23-24 26
Newcastle 17 7 4 6 24-26 23
West Ham 16 6 4 6 20-14 22
Tottenham 17 4 6 7 29-29 18
Reading 17 5 3 9 22-34 18
M‘brough 17 4 5 8 16-28 17
Birmingham 17 4 3 10 18-27 15
Bolton 17 3 5 9 17-32 14
Sunderland 17 3 5 9 16-32 14
Fulham 17 2 7 8 18-28 13
Wigan 17 3 3 11 17-33 12
Derby 17 1 3 13 6-39 6
Enska 1. deildin:
Burnley-Preston 2-3
Jóhannes Karl Guðjónsson kom inn á sem
varamaður á 56. mínútu og fékk að líta rauða
spjaldið á 90. mínútu.
Skoska úrvalsdeildin:
Rangers-Hearts 2-1
Eggert G. Jónsson lék allan leikinn fyrir Hearts.
ÚRSLITIN Í GÆR
FÓTBOLTI Það var mikið skorað í
ensku úrvalsdeildinni í gær þegar
átta leikir fóru fram. Everton og
Manchester City halda áfram að
gera góða hluti, Wigan vann mikil-
vægan sigur í botnbaráttunni og
Tottenham er hugsanlega komið á
beinu brautina.
West Ham byrjaði leikinn betur
gegn Everton og virtist til alls lík-
legt í fyrri hálfleik, en liðið fór illa
að ráði sínu fyrir framan mark
gestanna. Everton nýtti hins vegar
eitt af fáum færum sínum í fyrri
hálfleik þegar hinn sjóðandi heiti
Yakubu skoraði laglegt mark í upp-
bótartíma fyrri hálfleiks eftir
góðan undirbúning Mikael Arteta
og Tim Cahill.
Everton réð ferðinni
Everton tók svo öll völd á vellinum
í síðari hálfleik og var mun nær því
að bæta við marki heldur en West
Ham að jafna. Andy Johnson inn-
sigldi góðan útisigur Everton svo á
lokasekúndum leiksins.
Sannkölluð markaveisla
Manchester City lagaði stöðu sína
í toppbaráttunni þegar liðið kom
til baka gegn Bolton eftir að hafa
lent 1-2 undir í fyrri hálfleik. City
vann leikinn örugglega 4-2 og við-
hélt því 100% sigurhlutfalli sínu á
Borgarleikvanginum í Manchester
og komst upp í fjórða sæti deildar-
innar.
Wigan náði heldur betur að bíta
frá sér þegar heillum horfið lið
Blackburn kom í heimsókn. Það er
greinilegt að Steve Bruce er búinn
að finna taktinn hjá Wigan og leik-
menn liðsins komnir með gott
sjálfstraust. Leikurinn var í meira
lagi kaflaskiptur þar sem Wigan
skoraði þrjú fyrstu mörk leiksins
áður en Blackburn náði að jafna 3-
3, með þremur mörkum frá Rocha
Santa Cruz. Blackburn var manni
færri frá 57. mínútu þegar Brett
Emerton fékk að líta rauða spjaldið
og Wigan menn gengu á lagið á ný
þegar líða tók á seinni hálfleikinn.
Marcus Bent skoraði þá tvívegis
og fullkomnaði þrennu sína í leikn-
um og lokatölur því 5-3.
Tottenham á réttri leið
Juande Ramos, stjóri Tottenham,
virðist vera búinn að finna réttu
blönduna með liðið eftir góðan
sigur þess gegn Portsmouth á
hinum erfiða útivelli Fratton Park.
Tottenham, sem lagði Manchester
City um síðustu helgi, skoraði eina
mark leiksins þegar tæpar tíu mín-
útur voru til leiksloka og reyndist
Dimitar Berbatov vera hetjan að
þessu sinni. Sú staðreynd að Totten-
ham hélt hreinu er ekki síður fagn-
aðarefni fyrir Ramos þar sem liðið
var búið að fá á sig 29 mörk fyrir
leikinn í gær.
Middlesbrough vann kjallara-
slaginn gegn nýliðum Derby á
Pride Park og náði með sigrinum
að klifra upp í 14. sæti. Tuncay
Sanli skoraði sigurmarkið í leikn-
um, en þetta var þriðja markið
hans í þremur leikjum.
Newcastle hélt áfram á beinu
brautinni þegar liðið heimsótti Ful-
ham, en sigurmark leiksins kom
ekki fyrr en í uppbótartíma þegar
Joey Barton skoraði af öryggi úr
vítaspyrnu. Þetta var annar sigur
Newcastle í síðustu þremur leikj-
um og Stóri Sam getur nú andað
léttar, en Fulham er í bullandi fall-
baráttu í 17. sæti deildarinnar.
Fallbaráttan harðnar
Fallbaráttuliðin Sunderland og
Birmingham gerðu jafntefli í leikj-
um sínum í gær, en eitt stig telur
lítið á þessum tímapunkti á tíma-
bilinu. Eflaust má líka tala um tvö
töpuð stig hjá Sunderland og Birm-
ingham sem voru yfir í leikjum
sínum gegn Aston Villa og Reading.
omar@frettabladid.is
Markasúpa í enska boltanum í gær
Það var mikið skorað í gærdag þegar átta leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni. Wigan vann Blackburn
í átta marka leik og styrkti stöðu sína í fallbaráttunni, Man. City og Everton styrktu stöðu sína í efri hluta
deildarinnar og Tottenham vann nokkuð óvæntan útisigur á spútnikliði deildarinnar, Portsmouth.
MARK Yakubu, framherji Everton, kemur liði sínu yfir gegn West Ham á Upton Park í gær, en þetta var níunda mark Nígeríu-
mannsins í deildinni. Everton vann leikinn 0-2 og komst með sigrinum upp í sjötta sæti deildarinnar. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
KÖRFUBOLTI Boston Celtics
hélt sigurgöngu sinni áfram
í fyrrakvöld þegar liðið
lagði Milwaukee Buck auð-
veldlega að velli, 104-82,
en þetta var áttundi sigur
Boston í röð og sá 19. af 21.
leik á tímabilinu. Enn fremur
jafnaði Boston heimaleikjamet
sitt þar sem liðið hefur unnið alla
tólf heimaleiki sína í TD Bank-
north Garden-höllinni.
Jafnræði var með liðunum í
fyrstu tveimur leikhlutunum og
staðan var 44-46 Boston í vil í
hálfleik. Í þriðja leikhluta tók
Boston á flug og skoraði tólf stig
í röð og alls 32 stig á móti 15 stig-
um Milwaukee sem átti ekki
möguleika eftir það í leiknum.
Paul Pierce stal senunni að
þessu sinni í liði Boston og skor-
aði 32, Rajon Rondo kom næstur
með 17 stig og átta stoðsending-
ar og Kevin Garnett var með 15
stig og sjö fráköst. Hjá Mil-
waukee var Mo Williams
atkvæðamestur með 14 stig.
Paul Pierce var sáttur í leiks-
lok og kvaðst hafa notað tæki-
færið til að draga vagninn í fjar-
veru stórstjörnunnar Ray Allen
hjá Boston-liðinu. „Ég ákvað að
keyra mikið sjálfur og vera sókn-
ardjarfur og koma liðinu á sigl-
ingu, mér fannst ég þurfa að taka
aðeins af skarið þar sem við
vorum án Ray Allen og það gekk
ágætlega upp,“ sagði Pierce. - óþ
ÖFLUGUR Paul Pierce hefur verið
frábær hjá Boston Celtics í vetur.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Boston sigraði Milwaukee örugglega í fyrrakvöld:
Boston óstöðvandi