Fréttablaðið - 16.12.2007, Blaðsíða 96
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Jóns Arnar
Marinóssonar
með ánægju
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
2
3
6
1
5
22.900 kr.
Verð:
Langar þig að gleðja einhvern sérstaklega mikið um jólin? Jólagjafa-
bréf Iceland Express gefur þeim sem þér þykir vænt um spennandi
fyrirheit á nýju ári, hvert sem hugurinn leitar.
Bókaðu vel heppnaða jólagjöf á www.icelandexpress.is
Gjafabréfið gildir sem flug fram og til baka með sköttum og öðrum greiðslum til eins af 15 áfangastöðum Iceland
Express í Evrópu. Bókunartímabil jólagjafabréfsins er frá 26. desember til 31. janúar 2008 og eftir það gildir gjafabréfið
sem inneign í 2 ár. Jólagjafabréfið gildir í flug á tímabilinu 15. janúar til 30. júní 2008. Sætaframboð er takmarkað.
Hann fékk Berlín,
hún fékk Barcelona...
Jólagjafabréf Iceland Express hittir beint í mark
Berlín, Friedrichshafen, Frankfurt Hahn, London,
Kaupmannahöfn, Billund, Stokkhólmur, Gautaborg, Ósló,
Eindhoven, París, Basel, Alicante, Barcelona og Varsjá
15 áfangastaðir í Evrópu
Jólagl
aðnin
gur
10 he
ppnir
kaup
endu
r
jólagj
afabr
éfa v
inna
ferð f
ram o
g til b
aka
til hv
aða á
fanga
staða
r
Icelan
d Exp
ress s
em er
!
OMXI15 var 6.523,81, þegar mér varð ljóst í morgun að
Lilli í Fjórgrúpp væri með allt
niðrum sig, og Nasdaq var 2.671,14
þegar ég sá að ég mundi missa allt
niðrum mig líka ef ég hysjaði ekki
upp um Lilla undireins. En eins og
máltækið segir: Neyðin kennir
blönkum fjárfesti að búa til aur.
Ég togaði í Eingrúpp og lét Ein-
grúpp toga í Tvígrúpp og Tví-
grúpp toga í Þrígrúpp og Þrígrúpp
toga í Fjórgrúpp og þegar Lilli var
kominn sem nemur eins og hálfum
forstjóra upp úr feninu, slepptum
við takinu og...
... ÞETTA mátti ekki tæpara
standa. Klukkan var 11 grínitsj
míntæm, við Mallí komin í límús-
ínu út á London Sittí Erport og ég
að ganga frá láni fyrir nýju þot-
unni sem mér hafði með naumind-
um tekist að fá sjálfan mig til að
lána sjálfum mér í Sjálfs-mín-
banka. Mallí spurði hvað ég þyrfti
mikið lán til að geta borgað græj-
una. Ég gat að sjálfsögðu ekki upp-
lýst hana um það því að Sjálfsmín-
banki er bundinn trúnaði við
viðskiptavini. Mallí spurði líka
hvort væri hætta á að við misstum
þotuna ef ég stæði ekki í skilum
með afborganir. Ég sagði hún gæti
sofið rólega eins og forsætisráð-
herra; Sjálfsmínbanki væri með
veð í þotunni.
VIÐ héldum upp á nýju þotuna
með því að sofna á óperu í Covent
Garden. Ég er ekki búinn ennþá að
fatta almennilega að ég á mína
eigin pörsonal præveit djett, Gulf-
stream 550, fjörutíu og eitt tonn af
heljartökum á íslenskum stjórn-
málamönnum og yfirráð yfir
íslensku samfélagi sem eru 29,4
metrar á lengd og 2,24 metrar á
breidd. Kannski hefur það ekki
stimplast inn því að ég verð að láta
geyma þotuna fram yfir áramót.
Vantar fjóra menn í áhöfn. Helst
Pólverja frá Jarðvélum.
FRÁBÆRT annars að geta keypt
t.d. heilt knattspyrnufélag eða eitt
stykki þotu ef maður hefur aðgang
að sínum eigin banka og á slatta af
grúppum sem hægt er að láta toga
hverja í aðra. Núna í desember er
ég er búinn að fá allt, sem getur
flogið og mig hefur dreymt um,
allt nema rjúpur. Ég bauð 30.000
kr. fyrir stykkið um daginn en
rjúpnadelinn yppti bara öxlum.
Dóri skrifstofublók fékk sex rjúp-
ur hjá frænda sínum fyrir ekki
neitt. Þotan er næs – en það kemur
ekkert í staðinn fyrir rjúpur.
Billjónsdagbók
16.12.2007
11.16 13.23 15.30
11.32 13.08 14.44
Í dag er sunnudagurinn 16.
desember, 350. dagur ársins.