Fréttablaðið - 28.12.2007, Síða 6

Fréttablaðið - 28.12.2007, Síða 6
6 28. desember 2007 FÖSTUDAGUR RV U N IQ U E 01 08 01 Rekstrarvörur - vinna með þér Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665 sala@rv.is • www.rv.is Katrín Edda Svansdóttir, sölumaður í þjónustuveri RV Skrifstofuvörur - á janúartilboði Á tilboðií janúar 2008 Bréfabindi, ljósritunarpappír, töflutússar og skurðarhnífur 1.398 kr. ks. 5 x 500 blöð í ks. STJÓRNMÁL „Það segir margt um ástand- ið í Pakistan að það voru margir hópar sem vildu og reyndu að ráða Benazir Bhutto af dögum,“ segir Jón Ormur Halldórsson, dósent við Háskólann í Reykjavík. „Það er mjög erfitt að spá fyrir um hvernig ástandið þróast á næstu miss- erum,“ segir Jón. Nú þurfi að bíða og sjá hvort kosningar verði haldnar í Pakistan í janúar. Einnig eigi eftir að koma í ljós hver staða Musharrafs forseta verði eftir atburði gærdagsins. „Ég hef ekki mikla trú á því að það komi neitt út úr kosningum í janúar ef þær verða haldnar, því flokkur Bhutto er ekki samstæður flokkur heldur var hann fyrst og fremst bandalag í kringum hana. Það eina sem hægt er að vera viss um er að það verður áframhaldandi mikil ólga.“ Jón segir ástandið í Pakistan eiga upptök sín á áttunda áratug síðustu aldar, þegar Zia-ul-Haq var við völd í landinu. Undir hans stjórn hafi her og leyniþjónusta hafið samstarf við fjölda ólíkra sam- taka bókstarfstrúaðra múslíma. Það hafi meðal annars leitt af sér hreyfingu talibana í Afganistan og margar af rótum Al-Kaída. Það séu því hryðjuverkasam- tök, talibanar og kjarnorkuvöld sem geri ástandið nú hættulegt. „Fram undan eru alls konar vandamál, það eru tíma- sprengjur úti um allt í þessu samfélagi.“ - þeb Jón Ormur Halldórsson um ástandið í Pakistan: Mikil vandamál fram undan JÓN ORMUR HALLDÓRSSON PAKISTAN, AP Benazir Bhutto, stjórnarandstöðuleiðtogi í Pakist- an, var ráðin af dögum í sjálfs- morðssprengjutilræði í Rawal- pindi í gær. Minnst fimmtán aðrir létu lífið í árásinni, sem var gerð er Bhutto var að yfirgefa fjöl- mennan kosningafund flokks síns, Þjóðarflokks Pakistans (PPP), í Rawalpindi eftir að hafa haldið sína síðustu ræðu. Fráfall forsætisráðherrans fyrrverandi setti kosningabarátt- una fyrir áformaðar þingkosning- ar hinn 8. janúar í algert uppnám og skóp ótta um að út kynnu að brjótast fjöldamótmæli og ofbeldi sem þegar kraumaði undir niðri í landinu. Því var umsvifalaust nánast slegið föstu að íslamskir öfga- menn, bandamenn talibana, hefðu staðið á bak við tilræðið. Bhutto skilur líka eftir sig mikið tómarúm í forystu stærsta stjórn- málaflokks landsins. Morðið setti líka í uppnám tilraunir Banda- ríkjastjórnar til að stuðla að stöð- ugleika í Pakistan – sem er lykil- bandamaður Bandaríkjanna í hinu svonefnda hnattræna stríði gegn hryðjuverkum – með því að koma á sáttum milli Bhutto og Mushar- rafs forseta. Musharraf fordæmdi strax til- ræðið og hvatti fólk til að sýna stillingu í kjölfar morðsins, að því er pakistanska ríkisfréttastofan APP greindi frá. Þjóðarleiðtogar um allan heim, þar á meðal forseti Íslands, for- dæmdu tilræðið og sendu aðstand- endum Bhutto og pakistönsku þjóðinni samúðarkveðjur. Í um mælum flestra leiðtoganna var borið lof á hugrekki Bhutto og hversu staðráðin hún var í að berj- ast fyrir lýðræðisumbótum í landi sínu. Manmohan Singh, forsætisráð- herra grannríkisins Indlands, sem háð hefur þrjú blóðug stríð við Pakistan, sagði engan geta fyllt það skarð sem Bhutto skildi eftir sig. Sagði hann hana hafa beitt sér fyrir bættum tengslum kjarnorku- vopnavígvæddu grannþjóðanna tveggja. George W. Bush Bandaríkjafor- seti krafðist þess að einskis yrði látið ófreistað til að þeir sem bæru ábyrgð á dauða hennar yrðu látnir svara til saka. Ban Ki-moon, framkvæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna, hvatti enn fremur „alla Pakistana til að vinna saman að friði og þjóðarein- ingu“. audunn@frettabladid.is Bhutto myrt í miðri kosningabaráttu Böndin bárust strax að íslömskum öfgamönnum þegar pakistanski stjórnarand- stöðuleiðtoginn Benazir Bhutto var ráðin af dögum í skot- og sjálfsmorðssprengju- árás eftir kosningafund í gær. Morðið veldur uppnámi í stjórnmálum landsins. © GRAPHIC NEWS ÆVIFERILL BENAZIR BHUTTO 21. júní 1953: Benazir Bhotto fæðist í Karachi í Pakistan 1969: Lýkur háskóla- námi við Harvard í Boston 1973: Faðir hennar, Zufikar Ali Bhutto, stofnandi Þjóðarflokks Pakistans (PPP), verður forsætisráðherra 1977: Lýkur annarri gráðu frá Oxford-háskóla á Englandi. Rétt eftir heimkomu hennar til Pakistan steypir Zia-ul- Haq hershöfðingi föður hennar og tekur völdin 1979: Zulfikar Ali Bhutto tekinn af lífi af herforingjastjórn Zia-ul-Haq 1979-84: Ítrekað handtekin fyrir mótmæli gegn herforingjastjórninni, í stofufangelsi í þrjú ár 1984: Leyft að fara úr landi. Verður leið- togi PPP í útlegð í Lundúnum. Berst gegn Zia-stjórninni. 1985: Herlögum aflétt í Pakistan 1986: Þúsundir fagna Bhutto er hún snýr aftur úr útlegð; er ásamt móður sinni kjörin til forystu fyrir PPP 1988: Kjörin forsætisráðherra, fyrst kvenna í múslímaríki 1990: Rekin frá völdum vegna spillingar- ásakana 1993: Endurkjörin forsætisráðherra en íslamistar veita henni harða stjórnarandstöðu. Eiginmaður hennar, Asif Ali Zardari, ákærður fyrir spillingu 1996: Svipt völdum vegna spillingarásakana 1997: Eiginmaðurinn fangelsaður. Bhutto snýr aftur til Bretlands í sjálfskipaða útlegð 1999: Pervez Musharraf hershöfðingi rænir völd- um án blóðsúthellinga 2001: Dómstóll í Pakistan dæmir Bhutto í þriggja ára fangelsi fyrir að mæta ekki fyrir rétt í spillingarmáli 2004: Dómstóll í Sviss dæmir Bhutto og eiginmann hennar í hálfs árs skilorðsbundið fangelsi fyrir peningaþvætti Okt. 2007: Bhutto snýr aftur til Pakistans í aðdraganda kosninga. Musharraf forseti veitir henni friðhelgi fyrir spillingarákærum 19. okt: Lifir af sjálfsmorðssprengjutilræði í Karachi. 150 manns deyja. 27. des: Benazir Bhutto ráðin af dögum í skot- og sjálfsmorðssprengju- tilræði eftir kosningafund í Rawalpindi. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P HARMDAUÐI Stuðningsmaður Bhutto grætur dauða hennar við tilræðisstaðinn í Rawalpindi í gærkvöld. STJÓRNMÁL „Benazir Bhutto hafði djúpan skilning á sameiginlegum hagsmunum Vesturlanda og ríkja sem aðhyllast múhameðstrú. Með dauða hennar hafa sáttaöflin misst öflugan forystumann,“ segir í tilkynningu frá forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, vegna morðsins á Bhutto. Þar segir jafnframt að morðið á henni sé hörmuleg áminning um fórnirnar sem færðar eru þegar reynt sé að festa lýðræði í sessi. Ólafur Ragnar hefur hitt Bhutto og segir í tilkynningunni að hann hafi kynnst baráttukrafti hennar, hún hafi verið hámenntuð og víðsýn. - þeb Ólafur Ragnar Grímsson: Áminning um fórnir lýðræðis SLYS Tveir menn, Íslendingur og Marokkóbúi, létust á jóladag í vinnuslysi um borð í togskipi sem fyrirtækið Fleur de Mer gerir út frá Marokkó. Íslendingurinn hét Helgi Jóhanns- son, var 59 ára gamall og lætur eftir sig eigin- konu og fjögur börn. Að sögn Magnúsar Guðjónssonar, framkvæmda- stjóra Fleur de Mer, voru engin vitni að slysinu en svo virðist sem skipsfélagi Helga hafi orðið fyrir súrefnisskorti þegar hann fór niður í lest. Talið er að Helgi hafi látist þegar hann reyndi að koma honum til bjargar. Málið er til rannsóknar hjá þarlendum yfirvöldum en Jón Arilíus Ingólfsson, forstöðumaður rannsóknarnefndar sjóslysa, segir að þegar henni ljúki muni nefndin fá skýrslu til meðferðar. - jse Tveir menn létust í skipalest: Íslendingur lést á sjó í Marokkó HELGI JÓHANNSSON STJÓRNMÁL „Þetta er einn sorgleg- asti dagurinn í pakistanskri sögu. Benazir Bhutto var leiðtogi stærsta flokksins í Pakistan og hefði getað komist til valda í þriðja sinn,“ segir Sheikh Aamir Uz- Zaman, eigandi veitingahússins Shalimar. Sheikh Aamir er Pakistani en býr á Íslandi. Hann var í sambandi við fjölskyldu sína í Pakistan í gær. „Ég talaði við bróður minn sem rekur veitingahús þar. Um leið og fréttirnar bárust lokaði hann staðnum, og það gerðu það allir aðrir. Fólk heldur sig heima og það er líkt og útgöngubann sé komið á. Það er ekki gott ástand þar núna.“ Hann segir óvissuástand ríkja í Pakistan og enginn viti hvað gerist næst. Sheikh Aamir ætlaði að fara til Pakistans eftir nokkrar vikur en hefur nú ákveðið að fresta ferðinni. „Maður veit ekkert hvernig ástandið verður þá,“ segir hann. „Ég held að ef af kosningunum verði muni margir sniðganga þær. Fólk sleppir því bara að fara að kjósa núna. Flokkurinn hennar var stærsti flokkurinn og sá eini sem hægt var að treysta. Þetta er ekki bara sorglegt fyrir okkur heldur fyrir allan heiminn.“ - þeb Segir áhrifa munu gæta víða: Einn sorglegasti dagur í sögunni Handtekinn á Sauðárkróki Einn var handtekinn fyrir líkamsárás á Sauðárkróki í fyrrinótt. Réðst hann á dyravörð eftir að honum hafði verið vísað af skemmtistað fyrir ólæti. Var hann látinn sofa úr sér áfengisvímu í fangageymslu. Málið telst upplýst. LÖGREGLUFRÉTTIR Fórst þú í jólaköttinn? Já 24% Nei 76% SPURNING DAGSINS Í DAG: Fékkst þú jólagjöf frá vinnu- veitandanum? Segðu skoðun þína á visir.is. SHEIKH AAMIR UZ-ZAMAN KJÖRKASSINN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.