Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.12.2007, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 28.12.2007, Qupperneq 16
16 28. desember 2007 FÖSTUDAGUR Farþegar í innanlandsflugi urðu í gær fimm hundruð þúsund á árinu samkvæmt upplýsingum frá Flug- stoðum. Er þetta í fyrsta skipti sem þessum farþegafjölda er náð á einu ári. Farþegum hefur fjölgað um 17 prósent frá því í fyrra þegar þeir voru tæplega 427 þúsund. Telja Flugstoðir þetta til vitnis um að fólk sjái sér hag í því að nýta flug- samgöngur í stað þess að keyra á milli landshluta. Farþegi númer 500 þúsund kom með flugi frá Þórshöfn á Langanesi um Vopnafjörð og Akureyri til Reykja víkur og fékk þar blómvönd og innanlandsflugmiða fyrir tvo. - gar nær og fjær „ORÐRÉTT“ Í september 2006 gerðu Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir menntamálaráðherra og menntamálayfirvöld í Kína samkomulag um aukið samstarf í mennta- og menningarmálum. Hluti af því samkomulagi var að styrkja kínverskan nem- anda til íslenskunáms með það fyrir augum að hann kenndi íslensku við Tungu- málaháskólann í Peking eða Beijing Foreign Studies University í Kína. Nemandinn heitir Shu Hui Wang og hóf íslenskunámið í september síðastliðnum. „Mér brá nokkuð í brún þegar mér varð ljóst hversu erfitt það er að læra íslensku,“ segir hún. „Ég var til dæmis hálf feimin við það að segja að ég væri að fara að kenna íslensku í framtíð- inni, ég var hreinlega ekki viss um að það væri raunhæft en nú er ég ófeimin við það því ég er komin á gott ról.“ Hún segir að til standi að kennsl- an byrji í Peking árið 2009. „Það verða einnig með mér Íslendingur menntaður í íslenskum fræðum og síðan kínverskur starfsmaður sem talar einnig íslensku. Ég geri ráð fyrir því að um tíu nemendur muni sækja námið en það stendur í fjög- ur ár og innritað verður á fjögurra ára fresti.“ Meðan á heimsókn menntamála- ráðherra til Kína stóð voru Tungu- málaháskólanum í Peking einnig afhentar um 1.600 íslenskar bækur að gjöf. „Bókagjöfin myndaði stofn að einu stærsta bókasafni íslenskra bóka í Asíu,“ segir Steingrímur Sigurgeirsson, aðstoðarmaður ráð- herra. Alls 25 erlendir nemendur þiggja styrk frá ráðuneytinu til að læra íslensku hér á landi. Flestir þeirra eru nú komnir til síns heima í jóla- frí en ráðuneytið bauð hinum í mat á aðfangadag á Radisson SAS Hótel Sögu og svo aftur á gamlársdag. Aðspurð hvað sé erfiðast við íslenskuna svarar hún: „Ég veit ekki hvað er erfiðast en ég veit hvað mér finnst skondnast. Það er framburður á orðum eins og „vel“ en mér hefur verið sagt að setja tunguna til hliðar þegar ég ber orðið fram. Svo er það orðið „vatn“ því hljóðið kemur eiginlega fyrst frá munni en svo frá nefi,“ segir hún og hlær við á meðan hún æfir sig á orðunum óþjálu. jse@frettabladid.is Kennir íslensku í Kína UPPRENNANDI ÍSLENSKUKENNARI Shu Hui Wang er á fyrstu önn í íslenskunáminu sem taka mun tvö ár en þá heldur hún til Peking til að kenna íslenskuna við Tungumálaháskólann þar í borg. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON ■ Fornleifafræðingar sem rannsakað hafa mannamyndir frá því 6.000 árum fyrir Krist telja að menn hafi þá þegar flúrað myndir á andlit sitt og skrokk. Með kynnum evrópskra sæfara af Pólýnes- um um 1800 hófst nýtt tímabil í sögu húðflúrs í Evrópu. Húðflúr varð mjög vinsælt meðal tiltekinna hópa í Evr- ópu; annars vegar meðal aðalsmanna og hins vegar meðal vændiskvenna og glæpamanna. Þessi síðari hópur virðist hafa haft mun meiri áhrif á þá ímynd sem húðflúr fékk í huga evrópskrar millistéttar. Þekktur 19. aldar afbrotafræðingur, Lombroso að nafni, taldi til dæmis þörfina á að láta húðflúra sig vera eitt af einkennum meðfæddrar glæpahneigðar. HÚÐFLÚR GÖMUL TJÁNINGARÞÖRF „Við fjölskyldan erum að koma úr sundi, fórum í sundlaug Seltjarnarness sem við höfum stund- að grimmt í aðdraganda jóla og reyndar yfir jólahátíðina,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, lögfræðingur hjá lögreglustjóranum á höfuðborg- arsvæðinu. „Við höfum verið að halda síðustu jólin í gamla húsinu okkar í vesturbænum og erum að gera okkur klár að flytja í aust- urbæinn.“ Þau Ágúst Ólafur, alþingis- maður og eiginmaður Þorbjargar, keyptu sér hús í austurbæ Reykjavíkur og hafa verið að gera á því endurbætur. „Við hefðum getað flutt núna fyrir jólin eins og til stóð í fyrstu en þá hefðu það verið jól í pappakössum,“ en það þótti þeim Þorbjörgu, Ágústi Ólafi og dætrum þeirra tveimur ekki spennandi kostur. Fjölskyldan hefur haft það gott yfir jólin. „Við borðuðum kalkún á aðfangadag og vorum fjögur hérna heima í litla gula húsinu. Það var hefð- bundin verkaskipting, ég sá um eldamennskuna á meðan maðurinn og dæturnar útdeildu gjöfum til vina og ættmenna.“ „Við erum alltaf fjögur hérna heima á aðfangadag og svo tekur við harkan í jólaboð- um dagana þar á eftir. Við fórum í tvö jóla- boð á jóladag, annað til fjölskyldu Ágústar og hitt til fjölskyldu minnar, og svo fórum við í eitt jólaboð annan í jólum.“ „Svo er það afslappelsi fram á gamlárskvöld sem við höldum upp á með vinum okkar. Við verðum heima um áramót með vinum okkar og þar verða fimm börn undir fimm ára aldri svo það verður mikið fjör,“ segir Þorbjörg. HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? ÞORBJÖRG S. GUNNLAUGSDÓTTIR LÖGFRÆÐINGUR Fjögur í litla gula húsinu um jólin REBEKKA RAFNSDÓTTIR OG RAFN JÓNSSON Farþegar númer 500 þúsund í innanlandsflugi 2007. Met var sett í innanlandsflugi á árinu: Farþegi númer 500 þúsund „Kannski má segja að þessar gjafir séu í takt við neysluhyggju þjóðar- innar og tíðaranda velmegunar- þjóðfélagsins,“ segir séra Hildur Eir Bolladóttir um jólagjafir fyrirtækja til starfsmanna sinna. „Jólagjafirnar eru að verða dálítið stórar, dýrar og miklar. Þetta er ekki til fyrirmyndar fyrir ungu kynslóðina því við eigum að kenna börnunum okkar að andi jólanna snúist ekki um peninga heldur að eiga inni- haldsrík samskipti við annað fólk.“ „Inntak jólanna er að umgangast fólk að fyrirmynd Jesú Krists. Ástæða þess að Kristur kom í þennan heim var að hann sá að við þurftum á kennslu í mannlegum samskiptum að halda og þess vegna hefði það verið í anda jólanna að láta þessa fjármuni renna til líknarmála.“ „Fyrirtækin hefðu líka getað gefið starfsmönnum sínum meira frí um jólin, til að verja tíma með fjölskyld- um sínum. Maðurinn minn fékk tvo frídaga og það er besta jólagjöfin okkar þessi jól.“ SJÓNARHÓLL DÝRAR GJAFIR FYRIRTÆKJA Ekki í anda jólanna SÉRA HILDUR EIR BOLLADÓTTIR Sóknarprestur í Laugarneskirkju. Krabbameins- félagsinsÚtdráttur 24. desember 2007 Bifrei› e›a grei›sla upp í íbú›, 1.000.000 kr. Úttekt hjá fer›askrifstofu e›a verslun, 100.000 kr. Vinningar B ir t án á b yr g ð ar www.krabb.is Toyota Prius, 2.699.000 kr. 17286 129354 Handhafar vinningsmi›a framvísi fleim á skrifstofu Krabbameinsfélagsins a› Skógarhlí› 8, sími 540 1900. Krabbameinsfélagi› flakkar landsmönnum veittan stu›ning Byrja› ver›ur a› grei›a út vinninga 14. janúar nk. 481 2073 2651 3332 3537 3548 3579 3627 4010 5255 6444 6862 7124 8214 10228 10362 10967 12718 13787 14541 16723 17544 18057 18386 19113 20486 21101 21119 21784 24353 24410 24539 25246 26974 27268 27640 27880 28604 29548 32077 32531 32589 33014 33715 34552 34644 34769 35773 36953 37177 37233 38391 38977 39264 39375 39647 40274 41396 41473 42081 42338 43122 44956 45537 45917 46512 47064 47503 48625 49287 49618 51615 51649 51702 53223 53498 53516 55030 56350 56825 56891 57178 57699 58917 60638 60927 61298 61448 61729 61767 63746 64744 65140 65855 66587 67666 68426 68547 68691 70249 71149 71157 71391 71514 71700 71758 72156 72476 72558 72719 73046 73798 74981 75204 75509 78633 80769 80813 82956 83547 83621 84314 84741 85680 86984 88490 88724 89365 90698 91992 92680 92808 92996 93645 94864 95275 95424 95751 96210 97704 98655 100652 100746 102528 102558 102605 102925 102979 103649 104703 105213 105267 105720 105908 106186 106465 107648 108495 108788 109007 110123 110857 111321 112475 112971 113945 115112 116914 117230 117768 117798 118021 118152 120287 120556 120931 121765 121893 122609 123249 123351 124303 125086 126276 127267 127886 127992 128898 128920 129858 130625 131540 131691 132965 132997 133302 134005 135952 Ekki lífshættulegt ofát „Þó að ekki beri mikið á almennri skynsemi held ég ekki að neinn komi hingað af því að hann er of saddur.“ EFTIR AÐ HAFA BORÐAÐ JÓLAMAT- INN LENDA ALLTAF EINHVERJIR Á SLYSADEILD, EN FRIÐRIK SIGUR- BERGSSON KANNAST ÞÓ EKKI VIÐ AÐ ÞAÐ SÉ VEGNA OFÁTS. Fréttablaðið 27. desember Þrjóskur Illugi „Illugi var erfiður í tamningu en fékk þó ekki nafnið út af því.“ FINNUR GUÐSTEINSSON HESTA- MAÐUR LEYFÐI SYNI SÍNUM AÐ VELJA NAFNIÐ Á HESTINN, SEM VALDI NAFNIÐ ILLUGI, EN VILDI EKKERT AF 30 HESTANÖFNUM SEM FINNUR VALDI FYRIR HANN. Morgunblaðið 27. desember
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.