Fréttablaðið - 28.12.2007, Side 18

Fréttablaðið - 28.12.2007, Side 18
18 28. desember 2007 FÖSTUDAGUR taekni@frettabladid.is Vefurinn: eHow Þarftu að læra að binda bindishnút, fjarlægja veggfóður eða leika á trommur? eHow kennir þér að gera bókstaflega allt. www.ehow.com TÆKNIHEIMURINN Hver er merkilegasta græjan sem leit dagsins ljós á árinu sem er að líða? En stærsta vísindafréttin? Mestu vonbrigðin? Fréttablaðið leit yfir það merkilegasta sem gerðist í tækni- og vísindaheiminum árið 2007. Tækni- og vísindaárið í hnotskurn Steve Jobs, forstjóri Apple, kom öllum á óvart á kynn- ingu í febrúar og varpaði stærstu tæknisprengju ársins. Fyrirtækið skyldi herja inn á farsíma- markaðinn með iPhone, byltingarkenndum síma með eiginleikum iPod- tónlistarspilarans. Sameina átti farsíma, tónlistar- og myndbandsspilara og lófatölvu í eitt tæki með stórum snertiskjá og örfáum tökkum. Viðtökurnar voru góðar; síminn seldist upp þegar hann kom út í júní í Bandaríkjunum, og fjölmiðlar hafa skrifað meira um hann en nokkurt annað tæknifyrirbæri allt árið. Íslendingar þurfa að bíða örlítið lengur eftir honum, en við megum eiga von á honum hér á fyrri hluta þessa árs. Síminn sem sneri tækniheiminum á hvolf Baráttan harðnaði á milli þeirra sem eiga rétt til dreifingar á efni eins og kvikmyndum, tónlist og tölvu- leikjum, og þeirra sem vilja nálgast efnið ókeypis. Langstærsta íslenska skráaskiptavefnum, IsTorrent, var lokað í kjölfar lögbannsbeiðni sam- taka myndrétthafa á Íslandi, Smáís, og þurftu um tuttugu þúsund not- endur hans því að finna aðrar leiðir til að skiptast á skrám. Forsvarsmaður síðunnar, Svavar Lúthersson, var kærður og bíður málið þess að vera tekið fyrir. Annað mál sem varðar meint brot á höfundarréttarlögum komst einnig í fréttirnar á árinu, en það er DC++ málið svokallaða. Þremur árum eftir að húsleit var gerð hjá tólf manns sem notað höfðu skráaskiptaforritið DC++ lauk efnahagsbrotadeild Ríkis- lögreglustjóra við rannsókn málsins, og fer það fyrir dómstóla snemma á næsta ári. Smáís og IsTorrent Tvö vinsælustu stýrikerfin hjá almenn- um tölvunotendum fengu uppfærslu á árinu. Úr herbúðum Microsoft kom Windows Vista, arftaki hins vinsæla Windows XP, og frá Apple kom Leo- pard, sjötta útgáfa OS X stýrikerfisins. Þrátt fyrir miklar væntingar hefur Vista ekki náð almennilegri fótfestu á markaðnum, og snýr gagnrýnin helst að of fáum eftirtektarverðum nýjung- um og óþjálu notendaviðmóti. Einnig var reklastuðningi ábótavant fyrstu mánuðina eftir að stýrikerfið kom út, sem hjálpaði ekki. Á hinn bóginn hefur Leopard selst vel, en í mun færri eintökum enda með margfalt færri notendur en Windows. Stýrikerfin uppfærð Stríðinu milli háskerpudiskanna HD DVD og Blu-Ray er engu nær því að ljúka nú í lok árs, neytendum til mikilla ama. Þeir sem hafa ekki viljað hætta sér í fjárfestingar í annarri hvorri tækninni af ótta við að hin verði ofan á þurfa að bíða enn lengur. Þessi keppni um hylli (og veski) neytenda hefur skilað sér í nánast fullkomnu áhugaleysi þeirra á þessari nýju tækni. Illskiljanlegar útskýringar á kostum háskerpudiskanna og ótti við að borga fyrir tækni sem verður mögulega úrelt innan fárra ára hefur gert það að verkum að flestir láta sér gömlu góðu DVD-diskana nægja. Blu-Ray og HD DVD Wii frá Nintendo er ótvíræður sigurvegari ársins 2007 í leikja- tölvustríðinu. Fyrirtækið hefur ekki náð að anna eftirspurn eftir tölvunni, rúmu ári eftir að hún kom út. Tæplega sextán milljónir eintaka seldust á árinu, um það bil jafn mikið og seldist af hinum tveimur leikjatölvun- um, PlayStation 3 og Xbox 360, samanlagt. Helsta ástæðan fyrir vinsæld- um Wii er hversu aðgengileg hún er þeim sem ekki hafa notað leikjatölvur áður. Í stað hefðbundins stýripinna er fjarstýring með innbyggðum hreyfiskynjara, sem spilarinn notar til að líkja eftir hreyfingum í leikjum. Tölvan sjálf er auk þess töluvert ódýrari en keppi- nautarnir. Sigurganga Wii Árið 2007 verður að teljast árið sem hlýnun loftslags hætti að vera kenn- ing og varð bláköld staðreynd. Í skýrslu sérfræðinganefndar Samein- uðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (IPCC) sem kom út í febrúar sagði að hlýnun loftslags væri ótvíræð staðreynd, og þar væri um að kenna mikilli notkun mannkynsins á jarð- efnaeldsneyti — kolum, olíu og gasi. Nefndin hlaut friðarverðlaun Nóbels ásamt Al Gore, fyrrum varaforseta Bandaríkjanna og umhverfisverndar- sinna. Árinu lauk með loftslagsráðstefnu í Balí í þessum mánuði, þar sem fulltrúar þjóða heimsins hittust til að ræða um loftslagsbreytingar. Samþykkt var að hefja viðræður um áætlun sem á að taka við af Kyoto- bókuninni síðan 1997. Hlýnun loftslagsins Loftsteinn stefnir á Mars Nýuppgötvaður loftsteinn stefnir á Mars og gæti lent á plánetunni 30. janúar næstkomandi. Ef svo fer fá vísindamenn gott tækifæri til að fylgjast með nýjum gíg verða til, og jafnvel árekstrinum sjálfum. Steinninn uppgötvaðist við leit að loft- steinum sem gætu mögulega stefnt á jörðina, en líkurnar á því að hann lendi á Mars eru um það bil einn á móti 75. Apple yfir 200 dollara Hlutabréf í tölvufyrirtækinu Apple fóru yfir 200 dollara á miðvikudag, í fyrsta sinn. Hækkunin þykir gefa til kynna aukið traust fjárfesta á fyrirtækinu, sem gerði það gott í ár með útgáfu á nýju stýrikerfi og iPhone farsímanum. Sony skilur við fortíðina Japanska tæknifyrirtækið Sony hefur tilkynnt að það hyggist hætta að fram- leiða sjónvörp með myndlampa. Þess í stað ætli fyrirtækið að einbeita sér að LCD og Plasma-tækni í flatskjáum. Ástæðan fyrir þessu er sögð minnkandi eftirspurn eftir myndlampasjónvörpum. Undirbúa næstu útgáfu IE Tilraunaútgáfa vafrans Internet Explorer 8 kemur út um mitt næsta ár. Þetta tilkynnti hug- búnaðarrisinn Microsoft á dögunum. Meðal nýjunga í þessari áttundu útgáfu vinsælasta vafra í heimi er betri stuðningur við önnur stýrikerfi en Windows og ýmsar útlits- lagfæringar. Þessi tilkynning Microsoft kemur aðeins nokkrum dögum eftir að aðstandendur Firefox-vafrans, helsta keppinautar Internet Explorer, gáfu út aðra tilraunaútgáfu af Firefox 3. Stal Bell símahugmyndinni? Alexander Graham Bell, upphafsmaður talsímans, stal hugmyndinni að sím- anum frá keppinautinum Elisha Gray. Þessu er haldið fram í nýrri bók eftir bandarískan blaðamann. Samkvæmt henni náði Bell að kíkja á einkaleyfisskjöl sem Gray hafði lagt fram og koma sínum skjölum að á undan. „Við erum aðallega að vinna í því að fá Xbox Live! til landsins, en síðan erum við með ýmislegt fleira planað fyrir næsta ár,“ segir Örvar G. Friðriksson, umsjónarmaður xbox360.is, vefsíðu íslenska Xbox samfé- lagsins. „Við ætlum til dæmis að gera vefinn notendavænni og standa fyrir stefnumótum á Xbox Live! þar sem íslenskir spilarar hittast á netinu á ákveðnum tímum til að spila saman.“ ÍXS, eða íslenska Xbox samfélagið, varð til þegar Örvar fór að halda úti lista yfir Íslendinga sem áttu Xbox 360 leikjatölvur. Vegna þess að netþjónustan fyrir Xbox 360 leikjatölvuna, sem heitir Xbox Live!, er ekki formlega í boði á Íslandi þurfa þeir Íslend- ingar sem vilja spila leiki yfir netið að skrá sig með heimili í Bretlandi eða öðru landi. Fyrir vikið getur verið erfitt að finna aðra Íslendinga til að spila við, en þar kemur listi Örvars til sögunnar. Með honum hafa íslenskir Xbox spilarar fundið aðra Íslendinga, bætt þeim á vinalistann sinn og spilað leiki við þá yfir netið. Þó væri best ef þjónustan stæði Íslendingum formlega til boða og hefur Örvar barist fyrir því í samstarfi við Tölvu- virkni, Netsamskipti og Micro soft á Íslandi. Aðspurður hvað hafi staðið upp úr á árinu sem er að líða nefnir Örvar miðnæturopnanir á vegum ÍXS og BT, þar sem nýir leikir fóru í sölu á miðnætti kvöldið fyrir útgáfudaginn. „Við vorum með tvær þannig, eina þegar Halo 3 kom út og svo aðra þegar Mass Effect, Guitar Hero III og fleiri leikir komu út sama daginn. Mæt- ingin hefur verið framar vonum, það komu rúmlega tvö hundruð manns á Halo 3 opnunina.“ Að lokum vill Örvar koma á fram- færi þökkum til allra íslenskra Xbox spilara. „Það er kannski það besta við þetta allt saman. Ég hef aldrei áður eignast svona marga nýja og góða vini, sem ég á í per- sónulegum samskipt- um við dagsdaglega, og í gegnum Xbox Live!“ TÆKNISPJALL: ÖRVAR G. FRIÐRIKSSON, UMSJÓNARMAÐUR ÍSLENSKA XBOX SAMFÉLAGSINS Standa fyrir stefnumótum á Xbox Live

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.