Fréttablaðið - 28.12.2007, Side 70

Fréttablaðið - 28.12.2007, Side 70
26 28. desember 2007 FÖSTUDAGUR Sjúkrahúsið Vogur tók til starfa á þessum degi fyrir 24 árum. Samtökin SÁÁ höfðu unnið að því að koma upp varanlegu húsnæði í Reykja- vík og síðari hluta árs 1981 var þeim úthlutað lóð við Grafarvog, að því er fram kemur í bókinni Bræðralag gegn Bakkusi eftir Sæmund Guðvins- son sem kom út árið 1997. Í byrjun árs 1982 var skipuð byggingarnefnd og var Othar Örn Petersen hæstaréttarlögmaður formaður hennar. Vinnustofan Klöpp, með Ingi- mar Hauk Ingimarsson arkitekt í fararbroddi, var fengin til að teikna bygginguna. Framkvæmd- ir hófust 14. ágúst árið 1982 þegar Vigdís Finn- bogadóttir forseti tók fyrstu skóflustunguna að henni. Vígsluhátíð sjúkrastöðvarinnar var svo haldin þann 28. desember árið 1983. Sama dag og hátíðin var haldin voru þrjátíu sjúkl ingar fluttir frá Silungapolli, sem áður hýsti sjúklinga á vegum SÁÁ, á Vog. Þá var haldin verðlaunasamkeppni um nafn stöðvarinnar og voru 48 sem áttu tillöguna Vogur. Nafn Hallfríðar Brynjólfsdóttur var dregið úr potti og hlaut hún utanlandsferð að launum. Á þeim 24 árum sem Vogur hefur starfað hafa þúsundir sjúklinga fengið þar meðferð. ÞETTA GERÐIST: 28. DESEMBER 1983 Vogur tekur til starfa BANDARÍSKI LEIKARINN DENZEL WASHINGTON ER 46 ÁRA Í DAG. „Leiklist er bara ein leið til að sjá sér farborða. Fjölskyldan er lífið.“ Washington hefur tvívegis hlotið Óskarsverðlaunin og er meðal annars þekkt- ur fyrir leik sinn í mynd- um sem byggja á sannsögu- legum atburðum. MERKISATBURÐIR 1612 Galíleó Galíleí er fyrstur til að taka eftir plánetunni Neptúnusi, en telur hana ranglega vera fastastjörnu. 1871 Nýársnóttin, leikrit eftir Indriða Einarsson, er frumsýnd á skólalofti Lærða skólans í Reykja- vík. Skólapiltar stóðu fyrir sýningunni. 1887 Bríet Bjarnhéðinsdótt- ir flytur fyrst kvenna á Íslandi opinberan fyrir- lestur í Góðtemplarahús- inu í Reykjavík sem hún nefnir Um kjör og réttindi kvenna. 1908 75.000 manns láta lífið í jarðskjálfta á Sikiley. 1967 Borgarspítalinn í Foss- vogi er formlega tekinn í notkun.timamot@frettabladid.is Fréttaþulurinn góðkunni Edda Andrés- dóttir fagnar 55 ára afmæli sínu í dag. Hún segist líta á daginn sem létt- an undirbúning fyrir sextugsafmælið en ætlar þó ekki að halda veislu. „Að minnsta kosti ekki í dag en hver veit nema ég geri eitthvað í janúar. Viljinn er fyrir hendi en það er alltaf spurn- ing um máttinn,“ segir Edda. „Ég von- ast þó til að stjanað verði við mig frá morgni til kvölds, að ég mæti einung- is ljúfu viðmóti og fái nokkur sím- töl frá fólki sem mér þykir vænt um. Síðan förum við fjölskyldan vísast út að borða þótt við séum nú ekki beinlín- is illa haldin eftir jólin,“ bætir hún við glöð í bragði. En hvernig ætli sé að eiga afmæli á milli stórhátíða? „Þegar ég var barn man ég ekki eftir öðru en að hafa feng- ið afmælisveislu eins og önnur börn. En ég hugsa að mamma hafi tæklað þetta betur en ég sjálf. Ég hef stund- um verið með fyrirætlanir á prjónun- um um að halda veislur en mér verð- ur yfirleitt ekki neitt úr verki.“ Edda segir ákveðið millibilsástand ríkja á þessum tíma. „Jólin eru að baki og áramótin að koma og það skiptir allt- af meira máli heldur en einmitt þessi dagur. Svo er maður alltaf vel sadd- ur af mat og gjöfum. Það er þó viss spenna sem fylgir afmælum og ég lít á það sem svolítinn bónus að eiga af- mæli á þessum tíma árs,“ segir Edda. Síðla hausts sendi Edda frá sér bók- ina Í öðru landi og er hún henni ofar- lega í huga á þessum tímamótum. Í bókinni segir hún frá því hvernig er að fylgjast með föður sínum hverfa inn í óminnisland Alzheimers-sjúkdóms- ins ásamt því að rifja upp minningar- brot úr fortíðinni. Edda er afar sátt við bókina og alla vinnuna í kringum hana en hún skrifaði hana að mestu síðast- liðið sumar. En var ekki erfitt að fást við jafn viðkvæmt efni? „Tilefnið var auðvitað ekki gleðilegt og ég hef ein- mitt verið spurð að því hvort þetta hafi ekki verið erfitt. Í fyrstu vafðist mér tunga um tönn af því að mér fannst að ég ætti að svara því játandi. Stað- reyndin er hins vegar sú að þetta var ekki erfitt. Kannski er það vegna þess að ég var stödd í gömlum og góðum tíma á meðan ég skrifaði hana. Til að fá innblástur spilaði ég gamla tón- list og skoðaði gamlar myndir og mér fannst í raun bara mjög gott að skrifa bókina,“ útskýrir Edda. Þetta er í þriðja sinn sem hún tekur þátt í jólabókavertíð. Fyrir tveimur árum voru hún og Auður Eir á ferð með Sólin kemur alltaf upp á ný og svo kom bókin um Auði Laxness, Á Gljúfrasteini, út fyrir jólin 1984. „Ég get vel hugsað mér að róa á þessi mið aftur. Þegar ég vaknaði á aðfanga- dag og horfði á bókina mína fann ég til saknaðar eftir þessum tíma. Skrifin, samstarfið við fólkið hjá gamla JPV, sem breyttist í Forlagið einn daginn, og líflegur og lærdómsríkur desem- ber þegar ég var á fleygiferð að lesa upp úr bókinni á höfuðborgarsvæð- inu og utan þess gerir þennan tíma mjög eftirminnilegan,“ segir Edda. Hún segir jólavertíðina hafa verið býsna skemmtilega hvort sem hún var ljósum prýdd eða ekki. „Ég keyrði til dæmis út fyrir bæinn eitt sunnudags- síðdegið til að lesa upp í góðu húsi og rann þá upp fyrir mér í blárri birtu undir fullu tungli að jólin búa ekkert síður í landinu, þögninni og fjöllunum þótt þar sé ekki ein einasta ljósapera,“ lýsir Edda dreymin. vera@frettabladid.is EDDA ANDRÉSDÓTTIR: 55 ÁRA OG HORFIR Á EFTIR ÞRIÐJU BÓKINNI SINNI Langar til að skrifa meira AFMÆLISBARN Afmæli Eddu Andrésdóttur, rithöfundar og fréttaþular á Stöð 2, fellur í skuggann af tveimur stórhátíðum en hún segir þó alltaf ákveðna spennu fylgja deginum og lítur á hann sem bónus. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA AFMÆLI Einar Örn Jónsson handboltamaður er 31 árs í dag. Björk Jakobsdóttir leik- kona er 41 árs í dag. Helga Elínborg Jóns- dóttir leikkona er 62 ára í dag. Gullbrúðkaup Elsku mamma og pabbi, Þórður Magnússon og Hrönn Hannesdóttir, innilega til haming ju með gullbrúðkaupið í dag, 28. desember 2007. Ykkar dætur, Hanna, Ósk, Guðbjörg, Elín og fjölskyldur. Ástkær eiginmaður minn, faðir, fóstur- faðir, tengdafaðir og afi, Stefán K. Arnþórsson, Karlsbraut 21, Dalvík, sem lést á Dvalarheimilinu Dalbæ 21. desember, verður jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju föstudaginn 28. des- ember kl. 13.30. Guðrún Benediktsdóttir Arna Stefánsdóttir Bjarni Valdimarsson Benedikt Hilmarsson Matthildur Óladóttir Jórunn Hilmarsdóttir Ólafur Schram Sigtryggur Hilmarsson Guðný Hansen Stefán Hilmarsson Kristin Arngrímsdóttir og barnabörn. Við þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar systur okkar og frænku, Elsu Ingvarsdóttur Balaskarði sem lést þriðjudaginn 11. desember síðastliðinn. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunarinn ar á Blönduósi. Fyrir hönd systkinabarna og annarra aðstandenda, Björg Ingvarsdóttir Geirlaug Ingvarsdóttir Signý Gunnlaugsdóttir Sigfús Ingimundarson húsasmíðameistari er látinn. Unnur Elísdóttir og synir hins látna. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma, dóttir og systir, Birna Björnsdóttir Endurvarpsstöð, Eiðum, lést á líknardeild Landspítalans fimmtudaginn 27. desember. Útförin verður auglýst síðar. Júlíus Bjarnason Magnfríður Júlíusdóttir Bjarni Már Júlíusson Jóna Björg Björgvinsdóttir Björn Starri Júlíusson Ragna Valdís Júlíusdóttir Katla Þorvaldsdóttir Kolbrún Birna Bjarnadóttir Júlíus Freyr Bjarnason Jónína Guðmundsdóttir Páll Björnsson Kolbrún Björnsdóttir

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.