Fréttablaðið - 28.12.2007, Síða 78
34 28. desember 2007 FÖSTUDAGUR
> VISSIR ÞÚ?
Jack Nicholson er annar
tveggja leikara sem hafa verið
tilnefndir til Óskarsverð-
launa á hverjum áratugi
síðan 1960. Hinn er
Michael Caine.
folk@frettabladid.is
Einn af fremstu sálfræð-
ingum Hollywood, Martin
Brenner, segir að ef söng-
konan Britney Spears leysir
ekki úr sálarflækjum sínum
þá megi Guð vita hvar hún
dansi næstu jól. „Hún gæti
jafnvel ekki lifað svo lengi
að upplifa aðra
hátíð ljóss og
friðar,“ sagði
sálfræðingur-
inn í samtali við
New York Post.
Spears hefur farið á kost-
um um hátíðarnar, átti meðal
annars vingott við ljósmynd-
ara eftir frekar stutt kynni
og ók síðan um götur Holly-
wood án brjóstahaldara, sem
reyndist ágætis gulrót fyrir
hina ágengu paparazza en
þeir fylgja henni við hvert
fótmál. Þar að auki vakti
athygli að Britney virtist
þurfa að létta á sér meir en
góðu hófi gegnir og sálfræð-
ingurinn ráðagóði taldi það,
eitt og sér, vera ákall á hjálp.
„Hún lifir í blekkingu og
þessu gæti öllu lokið með
harmrænum hætti,“ sagði
Brenner.
Að hans mati er Britney
búin að missa alla jarðteng-
ingu og hún gangi af göflun-
um komi hún ekki lífi sínu í
röð og reglu. „Hún berst aug-
ljóslega við þunglyndi og hún
neitar að hlusta á ráðlegging-
ar annarra. Mamma hennar
er úti í kuldanum, synir henn-
ar eru farnir og aðrir sem
eru í kringum hana eru of
uppteknir við að halda blekk-
ingunni áfram til að geta
veitt henni þá aðstoð sem
hún þarf,“ útskýrir Brenner
sem hefur áratugareynslu af
meðhöndlun áfengis- og
vímuefnavanda í Hollywood
en hefur þó aldrei hitt Britn-
ey í eigin persónu. Brenner
telur hegðun Britney yfir
jólin vera afleiðingu af óléttu
yngri systur hennar, Jamie
Lynn, en Spears hefur að
undanförnu verið nefnd sem
hálfgerður blóraböggull
hennar.
Sálfræðingur óttast um líf Britney
BRITNEY HIN BRJÁLAÐA Sálfræð-
ingur í Hollywood telur að ef
Britney Spears komi lífi sínu ekki í
fastar skorður geti það endað með
ósköpum.
Prúðbúnir gestir flykktust á jólafrumsýningu Þjóðleikhússins að kvöldi annars í jólum.
Í þetta skiptið var það hinn rússneski og þungbrýndi Ívanov sem tók á móti gestum á
stóra sviðinu, en þessarar uppfærslu Baltasars Kormáks á verki Tsjekhovs hefur verið
beðið með eftirvæntingu.
JÓLAFRUMSÝNING Á ÍVANOV
Helga
Jóns-
dóttir og
Kristbjörg
Kjeld
Arna Dögg Einarsdóttir og Dagur B. Eggertsson. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
Björgólfur
Guðmunds-
son og Þóra
Hallgríms-
son.
Hringur
Grétarsson
og Matt-
hildur Anna
Gísladóttir.
40-70%
afsláttur
smáralind og kringlunni
opið á gamlársdag frá kl.10-13
40-70%AFSLÁTTUR
SMÁRALIND
OPIÐ Á GAMLÁRSDAG
FRÁ KL.10-13