Fréttablaðið - 28.12.2007, Side 83
FÖSTUDAGUR 28. desember 2007 39
FÓTBOLTI Brynjar Björn Gunnarsson, leikmað-
ur Reading, bættist á annan í jólum í hóp þeirra
leikmanna sem hafa fengið rauð spjöld í ensku
úrvalsdeildinni fyrir meintar tveggja fóta
tæklingar. Steve Coppell, stjóri Reading, var
ósáttur við dóminn en talsmaður samtaka
atvinnudómara á Englandi, sagði að ekki væri
nein sérstök herferð í gangi.
Tveggja fóta tæklingar hafa verið mikið í
umræðunni upp á síðkastið í enska boltanum
og mennirnir í svörtu hafa verið óhræddir við
að halda rauðu spjöldunum hátt á lofti um leið
og leikmenn sýna takkana og gildir þá einu
hvort nokkur snerting eigi sér stað við
mót herja. Meðal þeirra leikmanna sem hafa
fengið rautt spjald á undanförnum vikum fyrir
tveggja fóta tæklingar eru Ricardo Carvalho,
Peter Crouch, Stephen Ireland, Didier Zokora
og Brynjar Björn Gunnarsson.
Steve Coppell, knattspyrnustjóri Reading,
var ekki par sáttur við rauða spjaldið sem
Brynjar Björn fékk að líta fyrir tveggja fóta
tæklingu á Hayden Mullins, leikmanni West
Ham, í leik liðanna á annan í jólum.
„Ég er á þeirri skoðun að það þurfi að eyða
tveggja fóta tæklingum úr enska boltanum,
það geta allir verið sammála um það. En í til-
viki Brynjars þá var hann eingöngu að reyna
að vinna boltann og það var enginn ásetning-
ur í návíginu frá honum. Tveggja
fóta tækling er ekki það sama
og tveggja fóta tækling og
mér fannst Brynjar líða fyrir
þessa stefnubreytingu sem
virðist nú vera að eiga sér stað
hjá dómurum. Fyrir mánuði
hefði hann bara fengið að líta
gult spjald fyrir vikið og mér
finnst að samtök dómara eigi að láta
knattspyrnustjóra deildarinnar vita ef
um einhverjar stefnubreytingar er að
ræða,“ sagði Coppell.
Talsmaður samtaka atvinnudómara á
Englandi sagði í yfirlýsingu að það væri
ekkert nýtt að dómarar refsuðu fyrir
tveggja fóta tæklingar.
„Dómararnir eru einfaldlega að fara eftir
reglum um tveggja fóta tæklingar sem eru
ekkert nýjar af nálinni. Þegar leikmenn
renna sér af stað í tveggja fót tæklingu
hafa þeir ekki stjórn á sjálfum sér þannig
að ef þeir lenda á mótherja sínum, boltan-
um og svo mótherja, eða þá að dómarinn
meti það svo að um ásetning sé að ræða, þá
fá þeir umsvifalaust að líta rautt
spjald. Það er engin sérstök
herferð gegn tveggja
fóta tæklingum í
gangi núna eins
og menn hafa
verið að segja
undanfarið,“
sagði talsmaður-
inn. - óþ
Tveggja fóta tæklingar hafa verið áberandi í enska boltanum síðustu daga og dómarar ósparir á rauð spjöld:
Brynjar átti ekki skilið að fá rautt spjald
RAUTT Brynjar Björn
fékk að líta beint
rautt fyrir tveggja fóta
tæklingu og bættist í
hóp manna sem hafa
hlotið sömu meðferð
frá dómurum und-
anfarið.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
HANDBOLTI „Ég hafði allan tíman
trú á því að ég myndi skora, maður
verður að hafa það. Þetta var nú
ekkert rosalega opið en ég hafði
heppnina með mér,“ sagði Stella
Sigurðardóttir í sigurvímu um
sigurmark sitt gegn Gróttu beint
úr aukakasti í fyrri undanúrslita-
leik N1-deildabikar kvenna í gær.
Fram vann leikinn 29-28.
Leikurinn var hraður og
skemmtilegur frá fyrstu mínútu.
Liðin skiptust á að hafa yfirhönd-
ina og markmenn beggja liða voru
í feikna formi. Gróttustúlkur sigu
þó fram úr en þar munaði mest um
framlag Pövlu Plaminkovu sem
raðaði óáreitt inn mörkunum.
Grótta var tveimur mörkum
yfir í hálfleik, 15-13, en náði aldrei
að hrista baráttuglaðar Safamýrar-
stúlkur af sér. Fram jafnaði í 18-18
eftir að hafa verið lengi undir og
þær komust svo yfir í 23-21. Þá
skoraði Grótta fjögur mörk í röð
áður en Framstúlkur jöfnuðu enn
og aftur.
Glæsilegt sigurmark
Spennan á lokamínútunum var
mikil, jafnt var á öllum tölum og
Grótta jafnaði metin úr vítakasti
þegar 20 sekúndur lifðu leiks.
Framstúlkur fóru í sókn og fengu
aukakast við skyttustöðuna
vinstra megin. Úr aukakastinu
skoraði Stella glæsilegt mark við
mikla kátínu Framara en Gróttu-
stúlkur sátu eftir með sárt
ennið.
„Varnarleikurinn var ekki
alveg nógu góður en þetta var
frábær leikur og karakterinn hjá
okkur stóð upp úr. Þetta var gríð-
arlega erfitt en rosalega sætt.
Við þurfum að spila aðeins betur
á laugardaginn en við stefnum
klárlega á að vinna þetta mót,“
sagði Stella sem átti mjög góðan
leik í liði Fram en sigurmarkið
var eitt af átta mörkum hennar í
leiknum.
Eins og sjá má í frétt hér til
hliðar þá var Alfreð Örn Finns-
son, þjálfari Gróttu, ósáttur í
leikslok og íhugar alvarlega að
segja af sér sem þjálfari liðsins.
Alfreð er á sínu
öðru ári með
liðið en Grótta
er sem stendur í
fjórða sæti N1
deildarinnar
með 15 stig,
sex stigum á
eftir toppliði
Fram. - hþh
Sætt sigurmark hjá Stellu
Stella Sigurðardóttir tryggði Fram dramatískan sigur á Gróttu með marki úr
aukakasti eftir að leiktíminn var úti í N1-deildabikar kvenna í gær. Þjálfari
Gróttu íhugar afsögn þar sem hann telur sig ekki finna neistann í liðinu.
SVEKKTUR Alfreð Örn Finnsson, þjálfari Gróttu, var ekki ánægður
í leikslok á undanúrslitaleik Gróttu og Fram í Höllinni í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HANDBOLTI Alfreð Örn Finnsson,
þjálfari Gróttu, var ómyrkur í
máli eftir tap Gróttu á móti Fram
í undanúrslitum deildarbikarsins.
Honum var greinilega mikið
niðri fyrir þegar blaðamaður
ræddi við hann og vonleysis-
glampinn leyndi sér ekki. „Þetta
endurspeglar bara hvernig þetta
er búið að vera í vetur. Það vantar
baráttu og trú og það er einhver
værð yfir liðinu sem ég næ ekki
að yfirstíga,“ sagði Alfreð sem
íhugar alvarlega að segja af sér.
„Það er búið að taka of langan
tíma að finna hvað er að og ég
held að það sé best að
einhver annar reyni að
leysa það. Ég hugsa að
það fari þannig. Það
vantar liðsanda og
neista. Ég er mjög
ósáttur með að ná ekki
að laða hann fram
og ef við
getum
ekki
klárað
svona
leik er
þetta bara
rosalega
erfitt,“ sagði
Alfreð og neitaði að
hann tæki svo
sterkt til orða vegna
svekkelsisins yfir
tapinu. - hþh
Alfreð Örn Finnsson:
Hættir hann
með Gróttu?
SVEKKTUR Alfreð Örn
Finnsson, þjálfari
Gróttu, var ekki
ánægður í leikslok
á undanúrslitaleik
Gróttu og Fram í
Höllinni í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KÖRFUBOLTI Jón Arnór Stefánsson
og félagar í Lottomatica Roma
töpuðu þriðja útileiknum í röð í
gær þegar liðið lá 88-85 fyrir
Scavolini Spar Pesaro.
Jón Arnór byrjaði á bekknum
en átti ágæta innkomu, spilaði í
26 mínútur, skoraði 13 stig,
fiskaði 6 villur, stal 4 boltum, gaf
2 stoðsendingar og tók 2 fráköst.
Jón Arnór skoraði fimm síðustu
stig Lottomatica í leiknum en
hann setti niður 6 af 9 skotum
sínum utan af velli.
Jón Arnór átti mikinn þátt í
endurkomu Lottomatica í fjórða
leikhlutanum en liðið vann með
níu stigum þær 26 mínútur sem
Jón spilaði í leiknum. - óój
Lottomatica tapaði í gær:
Jón með fimm
síðustu stigin
13 STIG Jón Arnór Stefánsson var einn af
bestu mönnum Lottomatica í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
N1 deildarbikar kvenna
Fram-Grótta 29-28 (13-15)
Mörk Fram: Stella Sigurðardóttir 8/1 (12/1),
Þórey Rósa Stefánsdóttir 6 (8), Ásta Birna
Gunnarsdóttir 5/1 (6/1), Sigurbjörg Jóhannsdóttir
5 (8), Anett Köbli 3/1 (5), Sara Sigurðardóttir 2
(7), Eva Hrund Harðardóttir 0 (4).
Varin skot: Karen Einarsdóttir 17 (45) 38%
Hraðaupphlaup: 2 (Þórey Rósa 2)
Fiskuð víti: 5 (Sigurbjörg 2, Þórey, Köbli, Eva
Hrund). Utan vallar: 0 mínútur
Mörk Gróttu: Pavla Plaminkova 11/3 (18/2),
Auksé Vysniauskaité 5 (11), Anna Úrsúla Guð
mundsdóttir 4/2 (6), Eva Björk Hlöðversdóttir
2 (3), Ragna Karen Sigurðardóttir 2 (4), Tatjana
Zukovska 2 (5), Karólína Bæhrenz Gunnarsdóttir
1 (1), Arndís María Erlingsdóttir 1 (2).
Varin skot: Íris Björk Símonardóttir 11 (31) 35%,
Guðrún Ósk Maríasdóttir 6/1 (15) 40%
Hraðaupphlaup: 3 (Pavla 2, Tatjana)
Fiskuð víti: 7 (Auksé 4, Pavla, Anna, Ragna)
Utan vallar: 2 mínútur
Valur-Stjarnan 30-25 (14-13)
Mörk Vals: Ágústa Edda Björnsdóttir 6, Dagný
Skúladóttir 5, Íris Ásta Pétursdóttir 4, Katrín
Andrésdóttir 3, Kristín Guðmundsdóttir 3/1,
Rebekka Skúladóttir 3, Hildigunnur Einarsdóttir
2, Hafrún Kristjánsdóttir 2/1, Guðrún Drífa
Hólmgeirsdóttir 2.
Varin skot: Berglind Íris Hansdóttir 20/1.
Mörk Stjörnunnar: Alina Petrache 6, Sólveig Lára
Kjærnested 5, Harpa Sif Eyjólfsdóttir 4, Arna
Gunnarsdóttir 4/3, Þórhildur Gunnarsdóttir 3,
Ásta Agnarsdóttir 2, Elísabet Gunnarsdóttir1.
Varin skot: Florentina Stanciu 11, Helga Vala
Jónsdóttir 3.
Enska úrvalsdeildin
Man. City-Blackburn 2-2
1-0 Darius Vassell (27.), 1-1 Roque Santa Cruz
(29.), 2-1 Sjálfsmark (30.), 2-2 Santa Cruz (84.).
Ítalski körfuboltinn
Scavolini Pesaro-Lottomatica Roma 88-85
Jón Arnór Stefánsson skoraði 13 stig á 26 mín
útum í leiknum þar sjö þeirra í 4. leikhlutanum.
Lottomatica vann mínúturnar 26 sem hann var
inn á með 9 stigum en tapaði með 12 stigum
þegar hann var á bekknum.
ÚRSLITIN Í GÆR
FÓTBOLTI Blackburn varð fyrsta
liðið til þess að ná í stig á
heimavelli Manchester City í
ensku úrvalsdeildinni í vetur en
liðin gerðu 2-2 jafntefli í gær.
Darius Vassell kom City á 27
mínútu með skalla eftir fyrirgjöf
Martin Petrov en Paragvæinn
Roque Santa Cruz jafnaði tveimur
mínútum síðar. Martin Petrov lék
aftur stórt hlutverk þegar City
komst í 2-1 með sjálfsmarki Ryan
Nelsen.
Það stefndi því í heimasigur,
þann tíunda í röð, en Roque Santa
Cruz skallaði boltann í mark City
sex mínútum fyrir leikslok og
tryggði Blackburn stig. - óój
Enska úrvalsdeildin í gær:
Santa Cruz
jafnaði tvívegis
HANDBOLTI Það verða Fram og
Valur sem mætast í úrslitum N1-
deildarbikars kvenna. Valur
lagði Íslandsmeistara Stjörnunn-
ar í Laugardalshöllinni, 30-25.
Valsstúlkur voru betri aðilinn
lengstum og áttu sigurinn skilinn
en talsvert vantaði af sterkum
leikmönnum í bæði lið í gær. Svo
mátti Aðalsteinn Eyjólfsson,
þjálfari Stjörnunnar, gera sér
það að góðu að fylgjast með úr
stúkunni enda í löngu banni.
Stjarnan tók frumkvæðið
snemma í fyrri hálfleik en Vals-
stúlkur hleyptu Íslandsmeistur-
unum aldrei langt fram úr sér,
náðu þeim fljótlega og leiddu
með einu marki í leikhléi, 14-13.
Valsstúlkur mættu mjög
grimmar til leiks í síðari hálfleik
og náðu fljótt sex marka forystu,
19-13. Stjörnustúlkur neituðu að
gefast upp, unnu sig inn í leikinn
og með mikilli baráttu og þraut-
seigju tókst þeim að minnka mun-
inn í tvö mörk, 26-24, þegar sex
mínútur voru eftir af leiknum.
Þá skellti Berglind Íris Hans-
dóttir í lás í Valsmarkinu en hún
átti mjög góðan leik í gær. Hlíðar-
endastúlkur með Ágústu Eddu
Björnsdóttur í broddi fylkingar
gengu á lagið og kláruðu leikinn
örugglega með fimm marka mun,
30-25. - hbg
Valur lagði Stjörnuna í N1-deildarbikarnum í gær:
Berglind skellti í lás
EKKI LENGRA Stjörnustúlkan Elísabet Gunnarsdóttir fær hér harðar mótttökur frá
Valskonunum Kristínu Guðmundsdóttur og Drífu Skúladóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN