Fréttablaðið - 09.02.2008, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 09.02.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 50009. febrúar 2008 — 39. tölublað — 8. árgangur LOFSÖNGUR TIL LÍFSINS Það er ekki á Leifi Eiríkssyni að sjá að hann sé kominn á 101. aldursár ST Íl l 5 0 LAUGARDAGUR 36 SÁ YNG STI BORÐA R FRÍTT I Í Í F E B R Ú A R VÍÐA ÉL - Í dag verður allhvöss suðvestan átt með suður- og aust- urströndinni, annars mun hægari. Heldur stífari vindur vestan til með kvöldinu. Snjó- eða slydduél víða um land. Hiti 0-5 stig, mildast með ströndum syðra. VEÐUR 4 Grétar hefur fengið mikið lof fyrir frammi- stöðu sína í vörn Bolton ÍÞRÓTTIR 56 FLJÓTUR AÐ FINNA SIG Í ENSKA BOLTANUM 50 9. febrúar 2008 LAUGARDA GUR SILFUR- LITAÐUR Næfurþunn- ur kjóll með silfurlitum pensisförum frá Dolce og Gabbana. utlit@frettabladid.is DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA Anna Margrét Björnsson Gullfallegan og klass- ískan skyrtukjól frá Diane von Fursten- berg. Fæst í Trilogiu, Laugavegi. Stuttan og sexí mynstr- aðan kjól frá Diane von Furstenberg. Fæst í Trilogiu, Laugavegi. OKKUR LANGAR Í … Gamaldags dansskó í silfu rlituð- um tón. Fást í Trilogiu, Laug avegi. Kjólar sem litu út eins og nútímalistaverk voru áb erandi hjá nokkrum hönnuðum fyrir vor og s umar 2008. Hjá Dolce og Gabbana fengu tíu ungir listamenn að sprey ta sig á að mála á silki og taft og lokaafurðina mátti nýlega sjá á tískup öllum í Mílanó. „Við vild um láta handmála efnin svo að sérhver kjól l væri einstakur,“ sagði D omenico Dolce en tvíeykið ítalska var innb lásið af málverkum Julia ns Schnabel. Svíinn Paolo Melim Anderson fe taði á sömu braut með vo rlínu Chloé en þar gat að líta silkikjóla sem litu út eins og graffítíve rk og skörtuðu sterkum litum. Batik-my nstur ýmiss konar eru lík a að koma sterkt inn þannig að það væri ekki vitlaust að taka upp göm lu hnýtiaðferðina og búa til nokkra listræna s umarkjóla. - amb MÁLARALIST BLANDAST T ÍSKUNNI Kjóllinn er hinn nýi strigi næsta sumar > TÍSKUFRÉTTIR VIKUNNA R Tískuvikan í New York er í algleymingi en tískumafían beinir líka augum sínum að tísku vikunni í Kaupmannahöfn sem einn ig stend- ur yfir. Danskir hönnuðir er u svo sannarlega komnir inn á h ið alþjóð- lega tískukort og samkvæm t breska Vogue eru helstu merkin s em sýna á tískuvikunni Baum und P ferd- garden, Peter Jensen, BY Malene Birger og okkar eigin íslen ska Steinunn Sigurðardót tir. Um helgina sýna svo Henr ik Vibskov og Anna Gulm an. PRINSESSUKJÓLL Glæsilegur djúpfjólublár og karrígulur handmál- aður kjóll frá Dolce og Gabbana. LISTRÆN TISKA Graffítílist og sterk- ir litir á silkikjólum hjá Chloé fyrir vor og sumar 2008. HANDMÁLAÐ Fallegur lillablár stuttur ballkjóll frá Dolce og Gabbana. Ég millilenti í París um d aginn og kom við í Galer ie Lafayette sem er ágætis stórverslun, sérst aklega ef maður er að flý ta sér því þarna er að finna öll helstu tískum erkin allt frá þeim hræód ýru og upp í þau fínu. Gluggarnir voru de kkaðir bak og fyrir í aug lýsingum fyrir nýja ilmvatn Chloé tískuhússi ns en þessi sérstaki ilmu r virðist vera aðal tískufréttin um þessar m undir í Frakklandi. Risav axin auglýsinga- spjöld klæddu verslunin a með myndum af þremu r stúlkum sem allar lentu á listum yfir best k læddu konur ársins 2008 , en þær eru banda- ríska leikkonan Chloe Se vigny, franska leikkonan Clémence Poésy og pólska fyrirsætan Anja R ubik. Allar eiga þær sam eiginlegt að vera með háralit í ljósari skal anum og einstaklega fru mlegan fatasmekk, en samkvæmt Svíanum Pao lo Melim Anderson sem er að umbylta tískuhúsinu eru þær akk úrat það sem Chloé á að standa fyrir: næstum því ósvífin smartheit. Þa ð þykir mér þó skemmtil egri fyrirmynd en stúlkurnar sem maður fæ r engan frið fyrir í gulu pressunni og mér finnst persónulega allar alveg hryllilega smekkla usar: Paris Hilton, Lindsay Lohan, Amy Win ehouse et al. Þessar svokölluðu „Bad girls“ eða slæmu stelpur dagsins í dag eru lausar við allt sem mætt i kallast töff en eru samt fyrirmynd margra ungra stúlkna. Ég varð s teinhissa að sjá heilan tís kuþátt byggðan á Winehouse í franska Vog ue sem þýðir greinilega að Frökkunum finnst enska heróínlúkkið eitth vað töff. Melim Anderso n virðist þó hrifnari af einhvers konar blöndu af nátturulegri konu me ð smá rokk og ról ívafi og fer sínar eigin le iðir. En aftur að leikkonu nni Chloe Sevigny sem hefur oft verið nefn d „svalasta stúlka heims “ af tískupressunni. Hún hefur skellt sér út í fatahönnun og er að kom a með línu í samstarfi við New York merkið Op ening Ceremony. Sevign y lýsir fatnaðinum sem eins konar sambland i af rokki, barokki, róma ntík, „psychobilly“ og pönki, „dálítið eins og ég .“ Hún viðurkennir líka f yrir franska Vogue að uppáhaldssjónvarpsþáttu rinn hennar hafi alltaf v erið Húsið á sléttunni og að það útskýri blómam ynstrin sem einkenni lín una. Sumsé allar stúlkur sem fíla rokkaða boli, blómakjóla og buxu r í anda the Cramps ættu að kíkja á þessi ske mmtilegu föt sem kallas t Chloe Sevigny for Opening Ceremony og fá st núna einungis í stóra e plinu og í ofursvölu versluninni Colette í Par ís. Ósvífin smartheit Ármúla 22 • 108 Reykjavík • Sími 533 5900 • www.skrifsto fa.is l d 11:00 15:00 HÅG Capisco er margverðla unaður skrifstofustóll sem hentar ei nstaklega vel fyrir þá sem kjósa að vinn a við hæðarstillanleg rafmagnsskri fborð. Það er mjög auðvelt að sitja í mjö g lágri stöðu upp í það að vera hálf standandi. Capisco skrifstofustóllinn er með10 ára ábyrgð og lífstíðarábyrgð á hæðarpump u BR O S 01 37 /2 00 7 Hönnuður Peter Opsvik Capisco er heilsuvænn vinnufélagi Tilboðsverð frá kr. 78.273. - BORGARMÁL Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri, sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem hann leiðrétti orð sín í Kastljósþætti Ríkissjónvarpsins um að Kristbjörg Stephensen borgarlögmaður hefði sagt hann hafa umboð til að undirrita samein- ingarsamning REI og Geysis Green Engergy. Í yfirlýsingu sagðist hann hafa ráðfært sig við fyrrverandi borgarlögmann, án þess að nafngreina hann. Vilhjálmur sagði í Kastljósþættinum að sér „hefði ekki dottið í hug að undirrita svona samning nema hafa skýrt umboð til þess“. Fréttablaðið spurði Kristbjörgu í gærmorgun, áður en Vilhjálmur hafði gefið út yfirlýsing- una, hvort Vilhjálmur hefði beðið um álit hennar áður en hann skrifaði undir samningana. Sagðist hún þá ekki vilja gefa frá sér svar „sem dregið gæti dilk á eftir sér,“ eins og hún komst að orði. Eftir að Vilhjálmur gaf út yfirlýsinguna fengust þær upplýsingar úr Ráðhúsinu að Kristbjörg væri farin í orlof. Ekki hefur fengist staðfest hjá Vilhjálmi hvaða fyrrverandi borgarlögmann hann ráðfærði sig við en Hjörleifur B. Kvaran telur ljóst að Vilhjálmur eigi við sig. „Já, ég held að það sé alveg ljóst að Vilhjálmur er að vísa til mín í þessu tilviki. Ég gef mér það að það hljóti að vera.“ Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins fór Vilhjálmur fram á það við Kristbjörgu í gær að hún myndi ekki tjá sig um orð hans í Kastljós- þættinum. Því hafnaði Kristbjörg og fór fram á það við Vilhjálm að hann gæfi skýringar á þeim orðum sínum að umboðið væri frá henni komið. Kristbjörg vildi ekki staðfesta þessa atburðarás þegar Fréttablaðið hafði samband við hana í gærkvöld. Hún vildi heldur ekki tjá sig um hvort ekki hefði verið eðlilegra að Vilhjálmur hefði ráðfært sig við hana en ekki fyrrverandi borgarlögmann og starfandi forstjóra Orkuveitunnar, þegar leitað var álits um umboð til undirskriftar. Hjörleifur segist aldrei hafa efast um að Vilhjálmur hafi haft umboð til að undirrita samninginn og ef hann „hefði verið annarrar skoðunar þá hefði ég komið því kirfilega til skila og stoppað þetta“. Hvorki náðist í borgarfulltrúa Sjálfstæðis- flokksins við vinnslu fréttarinnar í gær né Ólaf F. Magnússon borgarstjóra. Kjartan Magnús- son borgarfulltrúi sagði í fréttum Sjónvarps að staða Vilhjálms innan borgarstjórnarflokksins væri sterk þrátt fyrir efasemdir um umboð hans til undirritunar samrunasamningsins í áliti tveggja hæstaréttardómara í lokaskýrslu stýrihóps borgarráðs. - jse / - shá / sjá síðu 4 Bað borgarlögmann að þegja Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson fór fram á að borgarlögmaður tjáði sig ekki um orð hans í Kastljósinu. Vilhjálm- ur sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem hann segist hafa ráðfært sig við fyrrverandi borgarlögmann. VIÐTAL „Það eina sem Guðjón hafði upp úr þessu var að hann gerði sig að almennu athlægi enda sáu allir að hann var bara að hefna sín,“ segir leikhúsgagnrýnandinn Jón Viðar Jónsson sem tjáir sig í fyrsta skipti um aðgerðir Guðjóns Pedersen, leikhússtjóra Borgarleik- hússins, gagnvart honum í síðasta mánuði í helgarviðtali við Frétta- blaðið. „Hann lét sem það væri einhver synd að tala um áhorfendur, eins og þeir væru hreinlega ekki partur af leikhúsinu.“ Jón Viðar talar einnig um söngnám sitt, kórsöng í Neskirkju og kaþólsku trúna sem hann segir að sé sér ákaflega mikilvæg í lífinu. - jma/ sjá síðu 30 Jón Viðar Jónsson: Leikhússtjóri var að hefna sín VEÐUR Vonskuveður var víða um land í gær og var vindhraði um 20 til 28 metrar á sekúndu. Á norðan- og sunnanverðum Vestfjörðum var lýst yfir viðbúnaðarstigi vegna snjóflóðahættu og þá lá allt innanlandsflug niðri. Undir Hafnarfjalli var hvass- viðrið slíkt að vindmælir Vega- gerðarinnar hætti að senda frá sér boð og var talið að hann hefði fokið. Fór veður versnandi þegar leið á daginn og var reiknað með að það næði hámarki um mið- nætti. Á höfuðborgarsvæðinu var fólk beðið að halda sig innandyra í gærkvöld og vera ekki á ferðinni að óþörfu. Veðrið hafði mikil áhrif á færð og voru margir vegir lokaðir vegna þess. Hellisheiði var lokuð fram eftir degi. Þá var óveður á Reykjanesbraut og undir Hafnar- fjalli og alls ekkert ferðaveður. Samhæfingarmiðstöð almanna- varna var virkjuð um klukkan fjögur. Verkefnin voru vegna foks og vatnssöfnunar í kjölfar snöggra hlýinda og hláku. Um klukkan átta í gærkvöld hafði yfir 150 útköll- um verið sinnt og fór þeim hratt fjölgandi þegar leið á kvöldið. Björgunarsveitir áttu því víða annríkt. Á Keflavíkurflugvelli fór vind- hraði yfir öryggismörk til afgreiðslu flugvéla og þurftu flug- farþegar að bíða af sér veðrið auk þess sem beina þurfti einni flug- vél til lendingar á Egilsstöðum. Búist er við suðvestan hvass- viðri eða stormi í kvöld. - ovd Vindmælir Vegagerðarinnar undir Hafnarfjalli fauk í veðurofsanum: Snjóflóðahætta á Vestfjörðum JÓN VIÐAR JÓNSSON MIKIÐ AÐ GERA HJÁ BJÖRGUNARSVEITUM Björgunarsveitarmenn úr Hafnarfirði þurftu í gærkvöld að vaða vatnselginn upp í mitti til að koma taug í bíl sem var umflotinn vatni og krapa í undirgöngum Hnoðraholtsbrautar undir Reykjanesbrautinni. Ökumaður- inn komst úr bílnum af sjálfsdáðum. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN VEÐRIÐ Í DAG   
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.