Fréttablaðið - 09.02.2008, Blaðsíða 52
● hús&heimili
1
2
3
4
1. Stungið bútasaumsteppi heldur
á manni hita og lífgar upp á heim-
ilið og gefur stofunni rómantísk-
an blæ. Eyrnaslapa-inniskórn-
ir koma að góðum notum
þegar skreppa þarf
fram í eldhús eftir ábót
á teið. Teppi frá Söstrene Grenes í
Smáralind, 2.850 krónur. Inniskór frá
Debenhams Smáralind, 2.490 krónur.
2. Rjúkandi teið bragðast best í
fallegum bolla. Teskeið af hunangi
út í kamillute gerir manni gott þegar
þarf að kúra inni með hósta og kvef.
Debenhams Smáralind, tebolli 1.890
krónur og undirskál 1.490 krónur.
3. Gott er að halla sér upp að mjúkum
púðum og láta líða úr sér og rauð kakó-
kannan fer vel við rauðu doppurnar á púð-
unum. Púðar frá Ormsson Smáralind, 4.990
krónur. Rauð kakókanna frá Debenhams,
599 krónur.
4. Fallegir púðar
í jarðlitum
sem lífga
upp á
sófann
í vetrarmuggunni
og fallega brún kaffikrús á vel við.
Röndóttir púðar frá Söstrene
Grenes 999 krónur. Brún
kaffikrús frá Byggt
og búið Smáralind, 97
krónur á tilboði.
5. Mjúkt og
hlýtt teppi
fyrir kalda
fætur uppi í
sófa frá Orms-
son í Smára-
lind, 6.590 krónur.
Svartmunstruð kaffi-
krús frá Söstrene Grenes
undir ilmandi kaffi eða te, 166
krónur.
● Úti er allt á kafi í snjó og vindurinn gnauðar á gluggunum. Það er vetur og tími snjókarla og snjóhúsa. Einhverjir
vilja nota snjóinn sem staldrar ekki oft svona lengi við og fara á skíði eða á fjöll meðan aðrir vilja helst vera inni í
hlýjunni. Nú eru líka allir með kvef eða alveg að fá kvef svo tilvalið er að koma sér vel fyrir innandyra undir hlýju
teppi með bók. Smeygja tánum í hlýja inniskó og hella sér upp á sjóðandi heitt te eða kaffi, finna til mjúka og
góða púða undir kollinn og hreyfa sig svo ekki það sem eftir er dags. Við kvefinu er gott að hella upp á te með hun-
angi og kreista út í það sítrónu til að hreinsa út úr kinnholunum og hafa það huggulegt heima.
Með kvef í nefi og kalda fætur
9. FEBRÚAR 2008 LAUGARDAGUR14