Fréttablaðið - 09.02.2008, Blaðsíða 10
10 9. febrúar 2008 LAUGARDAGUR
VIÐSKIPTI Niðurstöður Íslensku
ánægjuvogarinnar hafa verið
kynntar en þetta er í níunda sinn
sem ánægja íslenskra viðskipta-
vina er mæld hjá fjöldamörgum
fyrirtækjum. Níu mismunandi
fyrirtæki báru sigur úr býtum,
hvert í sínum flokki.
Sparisjóðurinn SPRON var í
fyrsta sæti í flokki banka og spari-
sjóða á einstaklingsmarkaði og er
þar með kominn aftur í fyrsta
sætið sem hann hefur vermt í átta
ár af þeim níu sem ánægja við-
skiptavina hefur verið mæld.
Landsbankinn var í fyrsta sæti í
flokki banka og sparisjóða á fyrir-
tækjamarkaði.
Tryggingamiðstöðin var í fyrsta
sæti í flokki tryggingafélaga en
lækkaði þó örlítið á milli ára. Í
flokki farsímafyrirtækja var Sím-
inn í fyrsta sæti og í flokki inter-
netveitna var Vodafone númer eitt.
Ölgerðin Egill Skallagrímsson
bar sigur úr býtum í flokki gos-
drykkjaframleiðenda. Hitaveita
Suðurnesja var efst á blaði í
flokki rafveitna og í flokki
olíufélaga var Olís í fyrsta sæti.
BYKO var númer eitt í flokki
byggingavöruverslana. Guðbjörg
Andrea Jónsdóttir, rannsókna-
stjóri Capacent Gallup, kynnti
niðurstöðurnar og sagði þá að
mikil fylgni væri milli ánægju og
tryggðar viðskiptavina og að
tengsl tryggðar og afkomu væru
sterk. Það væri því til mikils að
vinna að hafa viðskiptavini
ánægða.
- ghs
FYRIRTÆKI FLOKKUR
SPRON banka og sparisjóða á einstaklingsmarkaði
Landsbankinn banka og sparisjóða á fyrirtækjamarkaði
Tryggingamiðstöðin tryggingafélaga
Síminn farsímafyrirtækja
Vodafone internet-veitna
Ölgerðin Egill Skallagrímsson gosdrykkjaframleiðenda
Hitaveita Suðurnesja rafveitufyrirtækja
Olís olíufélaga
BYKO byggingavöruverslana
FYRIRTÆKIN NÍU
Niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar 2007:
Níu fyrirtæki skoruðu hátt
SJÁVARÚTVEGUR Ísfélag Vestmannaeyja hefur undirrit-
að samninga við ASMAR skipasmíðastöðina í Chile
um smíði á tveimur öflugum uppsjávarveiðiskipum.
Skipin munu bylta veiðum og vinnslu fyrirtækisins.
Fjárfestingin nemur á fjórða milljarð króna.
Ægir Páll Friðbertsson, framkvæmdastjóri
Ísfélagsins, segir ljóst að með tilkomu skipanna verði
bylting í veiðum og vinnslu uppsjávarfisks innan
fyrirtækisins. „Flotinn okkar er kominn til ára sinna.
Við gerum út fimm skip í dag og stefnum að því að
fækka þeim og gera út stærri og öflugri skip en við
eigum í dag. Þau eru vel útbúin til að koma með gott
hráefni til frystingar eða í bræðslur félagsins. Þetta
er stórt skref og fjárfestingin nemur á fjórða milljarð
króna.“
Samningarnir kveða á um að ASMAR-skipasmíða-
stöðin annist smíði á tveimur öflugum uppsjávarskip-
um sem verða afhent árin 2010 og 2011. Skipin eru
hönnuð og teiknuð af Rolls Royce í Noregi. Skipin
verða 71 metri að lengd og rúmir fjórtán metrar að
breidd. Burðargetan verður rúmlega 2.000 tonn í tíu
kælitönkum. Þau verða útbúin til nóta- og flottroll-
sveiða og aðalvélarnar eru rúm 6 þúsund hestöfl. - shá
Ísfélag Vestmannaeyja endurnýjar uppsjávarveiðiflota sinn á næstu árum:
Tvö ný skip smíðuð í Chile
UNDIRRITUN Eigendur Ísfélagsins og fulltrúar skipasmíðastöðv-
arinnar við undirritun smíðasamningsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
UTANRÍKISMÁL Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir utanríkisráðherra fór
þess á leit við bandaríska
utanríkisráðuneytið í síðasta mán-
uði að það athugaði hvort nánustu
ættingjar Halldórs Laxness gætu
ekki fengið að líta á leynilegu FBI-
skjölin um hann. Beiðnin fór gegn-
um bandaríska sendiráðið og er nú
beðið svars.
Það var fjölskylda Halldórs sem
fór fram á það við ráðherra að hún
beitti sér í málinu. Samkvæmt
fjölmiðlafulltrúa ráðuneytisins,
Urði Gunnarsdóttur, þótti sjálf-
sagt mál að verða við þessari
beiðni fjölskyldunnar.
„Hlutverk ráðuneytisins er jú
að koma Íslendingum til aðstoðar
á erlendri grundu, hvort sem þeir
eru hér heima eða erlendis,“ segir
hún. Það sé þó ekki á hverjum degi
sem slíkar beiðnir eru sendar milli
ríkjanna.
Lesendum Fréttablaðsins er
kunnugt um að á síðasta ári tók
þingnefnd sigldra stjórnarerind-
reka úr bandarísku utanríkisþjón-
ustunni þá ákvörðun að fræði-
maðurinn Chay Lemoine – og allur
almenningur – mætti ekki fá
aðgang að skjölunum.
Nefndin skilgreindi vandann
sem svo að í einu skjalinu væri að
finna „ógnun við þjóðaröryggi
Bandaríkjanna“ en í hinum væru
einkamál hins látna höfundar.
Skjölin eru áratugagömul. Skrif-
stofa forsetaframbjóðandans Bar-
ack Obama fékk ekki leyndinni
aflétt, eftir að Lemoine bað hann
liðsinnis í vetur.
Guðný, dóttir Halldórs, segist
enga skýringu hafa á þessari
miklu leynd. „Nema ef vera skyldi
að „hin alræmda hlerunarætt“ sé
að vernda sitt fólk,“ segir hún, en
vill ekki nefna neinn á nafn.
„Við viljum bara vita hvað það
er sem er svona agalegt að öryggi
Bandaríkjanna sé í hættu vegna
einhvers sem var skrifað fyrir
sextíu árum.
Auðvitað er þetta ekki fallegt á
að líta því njósnabeiðnin kom upp-
haflega frá Bjarna Benediktssyni
og íslensku ríkisstjórninni. Í dag
myndi maður bara kalla þetta
landráð. Að ráðherra skuli leggj-
ast svona á einn listamann að hann
geti ekki komið út verkum sínum
í fimmtíu ár á einu stærsta mál-
svæðinu! Og það þýðir ekki að
kenna bara kalda stríðinu um þetta
því það er enn verið að halda þessu
leyndu.“
klemens@frettabladid.is
Ríkið biður um FBI-
skjölin um Laxness
Utanríkisráðherra hefur beðið bandaríska utanríkisráðuneytið að athuga hvort
nánustu ættingjar Halldórs Laxness geti komist í skjöl honum tengd, sem enn
leynast í safni alríkislögreglunnar. Dóttir Halldórs líkir njósnunum við landráð.
Happatappar
Kynntu þér málið á www.kristall.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
4
09
96
0
2
/0
8
TILBOÐ 7.–15. FEBRÚAR
+ Nánari upplýsingar og bókanir á
www.icelandair.is eða í síma 50 50 100
* Innifalið í verði: Flug aðra leið og flugvallarskattar. Ferðatímabil: 2. mars–31. des.
BERLÍNVerð frá 14.890 kr.*
Drangajökull
Óvænt samband
á Ströndum
Gríptu augnablikið og lifðu núna
Flugmaður einn heldur því blákalt fram að hann
hafi náð sambandi með GSM síma þar sem hann
var staddur í Gjögri. Þykir mönnum það með
ólíkindum, enda ekki vanir slíkum munaði á
þessum slóðum. Er skýringanna helst að leita í því
að maðurinn var með síma frá Vodafone.
– Sönn saga frá 1414.
Með tilkomu langdræga GSM kerfisins býður
Vodafone nú stærsta þjónustusvæðið á Íslandi.
Skiptu yfir til Vodafone, án þess að skipta um
símanúmer, með einu símtali í 1414 – strax í dag.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR GUÐNÝ HALLDÓRSDÓTTIR
URÐUR GUNNARSDÓTTIR CHAY LEMOINE