Fréttablaðið - 09.02.2008, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 9. febrúar 2008 13
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 702
5.000 -1,34% Velta: 12.870milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atorka 7,94 +0,00% ... Bakkavör 45,10 -1,42%
... Eimskipafélagið 30,95 -0,80% ... Exista 11,60 -4,13% ... FL Group 9,43 -1,36%
... Glitnir 17,85 -1,65% ... Icelandair 26,45 +0,00% ... Kaupþing 716,00 -0,69%
... Landsbankinn 28,50 -0,87% ... Marel 99,00 -0,20% ... SPRON 5,59 -1,93% ...
Straumur-Burðarás 12,50 -3,10% ... Teymi 5,19 -3,17% ... Össur 90,90 -1,20%
MESTA HÆKKUN
EIK BANKI +2,07%
FLAGA +1,85%
365 +0,56
MESTA LÆKKUN
EXISTA -4,13%
TEYMI -3,17%
STR.-BURÐARÁS -3,10%
Umsjón: nánar á visir.is
Fjárfestingarfélagið Eyrir Invest
hagnaðist um 797 milljónir króna á
síðasta ári samanborið við tæpar
1.566 milljónir árið áður, sam-
kvæmt nýbirtu uppgjöri.
Eigið fé Eyris jókst um 51 pró-
sent á árinu 2007 með hagnaði og
hlutafjáraukningu upp á tæpa 5,4
milljarða króna. Í árslok 2007 var
eigið fé félagsins rúmur 18,1 millj-
arður króna, en var í byrjun ársins
rétt tæpir 12 milljarðar.
Tekjur Eyris, sem er kjölfestu-
fjárfestir í Marel og Össuri, auk
þess að eiga stóran hlut í Stork N.V.
í Hollandi, námu 1,2 milljörðum
króna á árinu, 42 prósentum minna
en árið 2006.
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri
Eyris, segir árið 2007 hafa verið
viðburðaríkt hjá félaginu. „Við
vorum varkár í veltubókarfjárfest-
ingum á sama tíma og við studdum
dyggilega við vaxtarmarkmið Öss-
urar og Marels. Afkoma ársins er
ásættanleg í ljósi markaðsað-
stæðna.“ Hann segir félagið í góðri
stöðu og kveður óróleika á fjár-
málamörkuðum og lækkun hluta-
bréfaverðs geta skapað tækifæri
fyrir fjárhagslega sterka fjárfesta
með langtímafjárfestingar í huga.
Eiginfjárhlutfall Eyris Invest í
árslok var 39 prósent. Þá er áréttað
í tilkynningu að allar eignir félags-
ins séu bókfærðar á markaðsvirði
og engir framvirkir samningar um
hlutabréf opnir í lok ársins. - óká
Hagnaður Eyris
tæpar 800 milljónir
UPPGJÖR EYRIS INVEST
Afkoma Krónur
Hagnaður á hlut 2007 1,28
Hagnaður á hlut 2006 3,20
Mismunur 60 prósent