Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.02.2008, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 09.02.2008, Qupperneq 18
18 9. febrúar 2008 LAUGARDAGUR UMRÆÐAN Embættisveiting Björn Bjarnason hefur ítrekað sagt að ég hafi skrifað mig frá því að fjalla um skip- an héraðsdómara á Norður- og Austurlandi með því að líkja þeim embættisgjörningi setts dómsmálaráðherra við stjórnarhætti nazista – með slíku gerðu menn sig einfaldlega mark- lausa og þannig væri komið fyrir mér í þessu máli. Hver skyldi nú hafa verið þessi sam- líking og hvert skyldi hafa verið til- efnið? Í leiðara Morgunblaðsins 10. janúar 2008 var því andmælt að tilvist dómnefndarinnar samkvæmt 12. gr. laga nr. 15/1998 um dómstóla setti veitingarvaldinu einhver tak- mörk. Þetta sé einfaldlega rangt, enda komi það hvergi fram í nein- um lagatexta (leturbr.: S.L:), nefnd- in sé að draga til sín vald sem hún hafi ekki. Við þessi ummæli gerði ég eftir- farandi athugasemd: „Hér skín; í taumlausa vildarhyggju þar sem einungis er áskilið að lög séu sett með formlega réttum hætti og þeim beri að framfygja með valdi hvert svo sem efni þeirra er. Valdboðið er sett í öndvegi; annað látið víkja. Með þetta að leiðarljósi er alræði og geðþótta opnuð leið og eru nær- tækust dæmin frá Þýzka- landi eftir 1930.“ Hér er lagatextinn allsráðandi, rétt eins og aðrar réttar- heimildir séu ekki til. Þess er nú fyrst að geta að sú vildarhyggja (pósitífismi), að lög séu tæki valdsins hefur löng- um sætt gagnrýni lög- spekinga, siðspekinga og heimspekinga allt frá miðöldum, en hún sótti á og náði fullum tökum á mönnum á einveldisöld. Reyndar var hún mjög áhrifamikil allt fram yfir miðja 20. öld, enda trúðu menn að fulltrúalýð- ræðið og réttindaákvæði í stjórnar- skrám myndu reisa henni skorður. Þetta reyndist ekki standast svo sem dæmin frá Þýzkalandi sýna – valdataka nazista – og viðhorf rétt- arheimspekinga eða lögspekinga breyttust, þannig að þeir tóku að gefa meiri gaum en áður grunngild- um sem búa að baki réttarskipun- inni. Það birtist síðan í stjórnskip- unarlögum og alþjóðasáttmálum með vaxandi áherzlu á mannrétt- indaákvæði, í almennri löggjöf, ekki sízt á sviði réttarfars og stjórn- sýsluréttar og í tíðari skírskotun dómstóla til óskráðra meginreglna laga. Til viðbótar hefur verið lögð vaxandi áherzla en áður að skipta valdi milli stofnana til gagnkvæms aðhalds og þá ekki sízt að styrkja stöðu dómsvaldsins. Allt miðar þetta að því að takmarka vald, enda hefur reynslan sýnt að fulltrúalýðræðið gegni ekki því hlutverki sem skyldi. Hér á landi hefur verið leitazt við að koma til móts við þá þróun sem lýst hefur verið með stjórn- sýslulögum 1993 og stofnun emb- ættis umboðsmanns Alþingis 1987. Með svokölluðum aðskilnaðarlög- um 1989 var leitazt við að styrkja sjálfstæði dómsvaldsins og auð- velda dómsmálaráðherra að taka faglega ákvörðun, þannig að hann hefði óháða dómnefnd sér til full- tingis. Þetta er síðan ítrekað í núgildandi dómstólalögunum frá 1998. Túlkunarhagræðing Með grein minni 15. janúar sl. freistaði ég að útskýra þessa við- horfsbreytingu sem meðal annars hefur sett mark sitt á lagasetningu og lagaframkvæmd hér á landi og þar var þróunin í Þýzkalandi nefnd sem einn áhrifaþáttur þeirra umskipta. Þessi breyting hefur greinilega farið framhjá Birni; hann trúir eins og einvaldshöfðingi á valdið og lögin sem tæki þess og samræmi við það er embættisskip- an setts dómsmálaráðherra bæði lögleg og siðleg. En því til réttlæt- ingar verður hann að slíta texta úr samhengi og fá þá niðurstöðu að ég hafi líkt dómaraskipan setts dóms- málaráðherra við stjórnarhætti nazista. Ákvörðun getur verið gagnstæð lögum og góðum siðum, en með því er henni ekki jafnað við ógnarverk nazista. Og til þess að hnykkja á órum sínum vitnar Björn til þingmanns á Evrópuþinginu Daniels Hannans að nafni sem líkti fundarstjórn þingforseta sem vildi takmarka málþóf hans við stjórn- lagarof nazista 1933, og var vikið úr þingflokki sínum. Nú er rétt að menn íhugi hvort það sé sambærilegt að beina slík- um fjölmælum beint til þingfor- seta sem er að gæta þingskapa, eða nefna þróun í Þýzkalandi eftir 1930 sem einn meðal fleiri orsakaþátta í þeirri viðhorfsbreytingu að réttar- heimspekingar hurfu frá gallhörð- um vildarrétti að siðferðilegum grunngildum réttarskipunarinnar. Þetta ræða þýzkir lögfræðingar opinskátt án þess að skrifa sig út úr umræðunni eða gera sig mark- lausa. Hér er gott dæmi um hvernig maður sem skortir rök reynir að víkja sér undan orðræðu. Jafn- framt varpar þetta nokkru ljósi á stjórnmálaumræðu á Íslandi. Höfundur er lagaprófessor. Dómsmálaráðherra túlkar texta UMRÆÐAN Fiskveiðistjórn Samkvæmt bráðabirgðaákvæðum laga um stjórn fiskveiða nr. 38/1990 var takmörkuðum heildar- afla skipt að meginstefnu til á milli útgerða fiskiskipa í samræmi við útgefinn kvóta þeirra fyrir árið 1990 en sá kvóti réðst að mestum hluta af veiðireynslu skipa á tímabilinu 1. nóvember 1980 til 31. desember 1989. Hlutdeild smábáta í lönduðum þorskafla var tæp 4% árið 1984 en í skiptingunni 1990 fengu þeir um eða yfir 13% þorskkvótans og þar af var miðað við að krókabátar, þ.e. bátar undir 6 brl. sem veiddu með línu og/eða handfæri, fengju eigi síðar en 1. september 1994 2,2% þorskkvótans. Hvernig hefur kvóta verið skipt síðan 1991? Síðan 1991 hafa löggjafinn og stjórnvöld holað upphaflegu meginreglur kvótakerfis- ins með því að færa kvóta á milli útgerðar- flokka og leyfa veiðar umfram heildar- kvóta. Þannig var í fyrsta lagi sóknardagakerfi krókabáta viðhaldið með lögum nr. 87/1994 og síðari lagabreytingum þar til að það var að mestu leyti afnumið 1. september 2004. Þegar samræmdu krókaflamarkskerfi var komið á 1. septem ber 2006 hafði þessi útgerðar- flokkur yfir 17,5% þorskkvótans að ráða ásamt því að hafa umráð þó nokkurs hluta kvótans í öðrum botnfisktegundum. Í öðru lagi hefur fiskveiðirétti í botnfiski verið úthlutað á grund- velli línutvöföldunar, línuíviln- unar, byggða- og jöfnunarsjón- armiða auk þess sem búnir hafa verið til sérstakir kvótapottar. Til viðbótar þessu hefur landaður þorskafli síðan 1991 verið þó nokkuð umfram ráðgjöf fiskifræðinga og umfram gildandi heildarafla- mark á hverjum tíma, þ.e. áðurnefndir krókabátar hafa fengið að veiða umfram það sem var fyrirfram ákveðið. Til einföldunar má segja að kerfið hafi síðan 1991 verið tvöfalt, annars vegar kerfi sem byggir á skilgreindum og framseljan- legum kvótum og hins vegar kerfi þar sem löggjafinn og stjórnvöld hafa úthlutað kvótum til að ná fram tilteknum pólitískum og félagslegum markmiðum. Lítið var sagt frá síðarnefnda kerfinu í vörn íslenska ríkisins og ekki bent á að framangreindar endurúthlutanir ríkisvaldsins hafa verið til þess fallnar að minnka enn frekar vægi upphaflegu skiptingarinnar árið 1984. Hafalmenningur og sameignaryfirlýsingin Allt frá landnámi Íslands hefur langstærsti hluti hafsins umhverfis Íslands verið almenningur, þ.e. í öllum grundvallaratrið- um átti enginn hafsvæðið né heldur þau verðmæti sem þar var að finna. Þegar 200 sjómílna fiskveiðilandhelgi Íslands var viðurkennd árið 1976 öðlaðist íslenska ríkið ekki eignarrétt yfir hafsvæðinu heldur fullveldisrétt, þ.e. rétt til að stýra fiskveið- um með reglusetningu. Hafsvæðið var því sem fyrr almenningur. Fræðimenn hafa talið að sú yfirlýsing löggjafans, að nytjastofnar á Íslandsmið- um séu sameign íslensku þjóðarinnar, hafi engin áhrif þess efnis að færa íslensku þjóðinni eða íslenska ríkinu eignarrétt yfir villtum og vörslulausum nytjastofnum. Lög hafa því ekki fært íslensku þjóðinni eða íslenska ríkinu eignarrétt yfir Íslandsmið- um, nytjastofnum eða kvótum. Í málflutn- ingi gagnaðila íslenska ríkisins fyrir Mannréttindanefnd SÞ var fullyrt að Íslandsmið væri sameign íslensku þjóðar- innar. Ekki verður séð að íslenska ríkið hafi berum orðum mótmælt þessum skilningi. Einnig voru, í vörn íslenska ríkisins, litlar sem engar skýringar færðar fram um réttarstöðu almenninga hér á landi. Forsendur Mannréttindanefndarinnar og fordæmisgildi álitsins Þegar litið er til forsendna meirihluta Mannréttindanefndarinnar í kvótamálinu er ljóst að lagt er til grundvallar að öllum kvótum í botnfiskveiðum hafi verið úthlutað árið 1984, þeir hægt og sígandi orðið að ótímabundnum og framseljanleg- um verðmætum og það þrátt fyrir yfirlýs- ingu í lögum um að Íslandsmið séu sameign íslensku þjóðarinnar. Með hliðsjón af því sem var rakið hér að framan og fjallað var um í löngu máli í síðustu grein er ljóst að þessar forsendur standast ekki. Fordæmisgildi álitsins er því takmarkað. Þrátt fyrir það er ekki útilokað að nefndin kæmist að sömu niðurstöðu í sambærilegu máli. Að mati undirritaðs er þó ólíklegt að svo verði. Þetta byggist aðallega á því að samningur um borgaraleg og stjórnmála- leg réttindi var ekki gerður til þess að vernda efnahagsleg réttindi eins og atvinnufrelsi. Í skjóli hinnar almennu jafnræðisreglu er þó hægt að feta þá braut að endurskoða ráðstafanir ríkisvaldsins við stjórn einstakra atvinnugreina. Kjarni málsins er sá að einstaklingar, sem hafa staðið í svipuðum sporum og sjómennirnir tveir sem vísuðu málinu til Mannréttindanefndarinnar, hafa löngu eftir upphaflegu skiptinguna árið 1984 fengið mörg tækifæri til að hefja útgerð án þess að kaupa sér dýra kvóta. Með hliðsjón af því er óvíst að nefndin telji sér heimilt í sambærilegu máli að blanda sér inn á þetta athafnasvið á grundvelli hinnar almennu jafnræðisreglu. Höfundur er sérfræðingur við Lagastofnun Háskóla Íslands. BRÉF TIL BLAÐSINS HELGI ÁSS GRÉTARSSON Álit Mannréttindanefndar SÞ III SIGURÐUR LÍNDAL En því til réttlætingar verður hann að slíta texta úr sam- hengi og fá þá niðurstöðu að ég hafi líkt dómaraskipan setts dómsmálaráðherra við stjórnar hætti nazista. Ákvörðun getur verið gagnstæð lögum og góðum siðum, en með því er henni ekki jafnað við ógnarverk nazista. Takk fyrir okkur, Guðlaugur Þór Andrea Guðnadóttir skrifar: Ég og fjölskylda mín viljum með bréfi þessu þakka háttvirtum heilbrigð- isráðherra Guðlaugi Þór sérstaklega vel fyrir skilning, áhuga og stuðning í verki. Þannig er málum háttað að tveir heyrnarlausir synir mínir þurfa á stöðugri talkennslu að halda. Á haust- mánuðum sögðu talmeinafræðingar sig frá samningi við Tryggingastofnun ríkisins, allir nema einn. TR var því óheimilt að taka þátt í kostnaði við talþjálfun drengjanna minna en auð- vitað brást heilbrigðisráðuneytið við, seint og um síðir, og setti reglugerð nr. 1166/2007 sem heimilaði TR að greiða fjölskyldunni styrk kr. 2000.- fyrir hvern tíma, sem kostar frá og með 1. febrúar kr. 6.720. Drengirnir fá vikulegan tíma þannig að okkar kostnaður í febrúar verður til dæmis kr. 53.760 en TR borgar okkur styrk 16.000, eftir verður bara 37.760.- sem er ca tvöfalt það sem við greiddum árlega þegar samningur talmeinafræðinga var í gildi. Það er ómetanlegt fyrir okkur foreldra fatl- aðra sjúkratryggðra barna að mæta svo miklum skilningi og fagmennsku þegar um er að ræða nauðsynlega endurhæfingu barnanna okkar. Það hlýtur að vera skoðun ráðherra að eðlileg kostnaðarþátttaka foreldra fatlaðra barna sé mörg hundruð þúsund á hverju ári. Metnaðurinn sem lagður hefur verið í reglugerð nr. 1166/2007 gefur það a.m.k. til kynna. Takk kærlega fyrir okkur. F í t o n / S Í A
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.