Fréttablaðið - 09.02.2008, Page 94
62 9. febrúar 2008 LAUGARDAGUR
PERSÓNAN
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Tónlistarmaðurinn Elfar Aðalsteinsson og
Bretinn Nik Kershaw, sem gerði garðinn
frægan á áttunda áratugnum, syngja dúett á
nýrri plötu til styrktar menntaverkefni
UNICEF í Síerra Leóne.
Hægt er að hlaða plötunni, Backtracking
Eighties, niður ókeypis á heimasíðunni www.
steinssonproject.com. „Við höfum ekki gert
svona áður og það er mjög gaman að fá
svona skemmtilegar og nýjar hugmyndir inn
á borð til okkar,“ segir Stefán Ingi Stefáns-
son, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.
Þeir sem ná sér í plötuna eru jafnframt
hvattir til að styrkja verkefnið í Síerra
Leóne.
Á plötunni, sem var tekin upp í Bretlandi,
verða ellefu þekkt lög frá áttunda áratugn-
um í nýjum útsetningum. Elfar, sem er
búsettur erlendis, syngur öll lögin á plötunni,
þar á meðal dúett með Kershaw í laginu
Mary´s Prayer og dúett með söngkonunni
Katarinu í laginu Only You.
„Það er vonandi að þetta leggist vel í fólk.
Við erum voða spennt fyrir þessu, enda eru
þetta þægilegar og góðar útsetningar,“ segir
Stefán Ingi og bætir við að uppbygging
Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Síerra
Leóne sé í fullum gangi. „Við erum búin að
styðja skólaverkefni í Síerra Leóne í tæp þrjú
ár og höfum haft rosalega góða reynslu af
starfinu þar. Það er þegar búið að byggja yfir
fimmtíu skóla af UNICEF á Íslandi.“
Kershaw, sem samdi hin vinsælu lög
Wouldn´t it Be Good og I Won´t Let the Sun Go
Down on Me, er ekki ókunnugur Íslandi því á
síðasta ári var hann leiðbeinandi á lagasmíða-
námskeiði fyrir íslenska tónlistarmenn sem
var haldið á Hótel Geysi. Er hann væntanleg-
ur aftur hingað í mars næstkomandi þar sem
hann mun endurtaka leikinn. - fb
Elfar og Kershaw syngja dúett
STEFÁN INGI STEF-
ÁNSSON Fram-
kvæmdastjóri UNICEF
á Íslandi er mjög
spenntur fyrir nýju
plötunni.
Siggi Eggertsson
Aldur: 27 ára.
Starf: Myndskreytir.
Fjölskylda: Einhleypur.
Foreldrar: Jónborg Sigurðardótt-
ir, myndlistarkona á Akureyri, og
Eggert Halldórsson, útgerðarmaður í
Stykkishólmi.
Búseta: Austurhluti London.
Stjörnumerki: Steingeit.
Sigurður hannar plötuumslag
hljómsveitarinnar Gnarls Barkley.
NIK KERSHAW „Eitís“-hetjan
syngur dúett með Íslendingn-
um Elfari Aðalsteinssyni á
nýrri safnplötu.
LÁRÉTT
2. íþróttafélag 6. ógrynni 8. spíra 9.
rönd 11. fyrir hönd 12. drepsótt 14.
ráðagerð 16. bardagi 17. eyða 18.
niður 20. ætíð 21. nabbi.
LÓÐRÉTT
1. rusl 3. slá 4. plöntutegund 5. sjór
7. þögull 10. þukl 13. sódi 15. korn
16. flana 19. tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. fram, 6. of, 8. ála, 9. rák,
11. pr, 12. plága, 14. áform, 16. at, 17.
sóa, 18. suð, 20. sí, 21. arða.
LÓÐRÉTT: 1. sorp, 3. rá, 4. alparós,
5. mar, 7. fálátur, 10. káf, 13. gos, 15.
maís, 16. asa, 19. ðð.
Bæjarstjóri Kópavogs, Gunnar Birgisson, vígir formlega nýjasta útibú
World Class í dag. Nýja heilsuræktarstöðin er á fimmtándu hæð í
Turninum á Smáratorgi. Þetta er sjöunda útibú World Class á höfuð-
borgarsvæðinu. „Þetta er orðið ágætt í bili,“ segir Björn Leifsson, sem
rekur World Class ásamt eiginkonu sinni, Hafdísi Jónsdóttur. „En ný
útibú eru samt fyrirhuguð seinna við Vesturbæjarlaugina og í nýja
miðbænum í Garðabæ. Nú þegar erum við með um tíu prósent af
höfuðborgarbúum í viðskiptum, 17.828 manns svo ég sé nákvæmur, og
það sem er enn betra; þá mætir þetta fólk í ræktina – flest. Á mánudag-
inn mættu til dæmis 1,4 prósent þjóðarinnar í World Class, tæplega
fimm þúsund manns, svo þetta er orðið déskoti öflugt.“
Líkamsræktarstöð á fimmtándu hæð býður upp á ýmsa möguleika.
„Það eru bretti og útsýni allan hringinn og þú getur ráðið í hvaða átt þú
hleypur,“ segir Björn. „Það má líka segja að stiginn upp á fimmtándu
hæð sé eitt af æfingartækjunum. Á eðlilegum hraða tekur svona tíu
mínútur að ganga upp, en ef maður skokkar þá er það eitthvað minna.
En það tekur á. Þegar ég var kominn á níundu hæð voru bæði lærin og
lungun á mér sprungin.“
Þessi magnaði stigi verður notaður til keppni í stigahlaupi í byrjun
hvers mánaðar. „Sá sem hleypur hraðast fær ókeypis í ræktina þann
mánuðinn þar til næsta hlaup fer fram,“ segir Björn og bætir við að
bæði verði keppt í karla- og kvennaflokki. Gestir í háloftaræktina
þurfa þó ekki að leggja á sig þrekgönguna upp stigann frekar en þeir
vilja því öflugasta lyfta landsins er í húsinu. Sú fer upp á topp á
tuttugustu hæð á tuttugu sekúndum. - glh
Í allar áttir á brettinu hjá World Class
EKKI AMALEGT AÐ SKOKKA
MEÐ KÓPAVOG AÐ FÓTUM
SÉR Björn Leifsson er með
tíu prósent höfuðborgarbúa
í viðskiptum.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
U
Ð
U
N
N
Viðtal sem erlent dagblað tók við söngvarann Josh
Groban, þar sem hann viðurkennir mikil líkindi á
milli lags síns You Raise Me Up og Söknuðar eftir
Jóhann Helgason, er á meðal sönnunargagna í
málshöfðun Jóhanns gegn norska lagahöfundinum
Rolf Løvland.
Undirbúningur fyrir málshöfðunina er á lokastigi
og hefur Jóhann unnið náið með lögfræðingi sínum í
Bretlandi að málinu. Leggja þeir mikla áherslu á að
það verði skoðað frá öllum hliðum áður en stokkið
verður í djúpu laugina. Verður kæran væntanlega
lögð fram í vor eða sumar.
Lagið, sem gerði Josh Groban að stórstjörnu,
þykir sláandi líkt Söknuði, sem Vilhjálmur Vil-
hjálmsson flutti á sínum tíma. Jóhann lét bera lögin
saman og miðað við laglínuna og hljómana eru þau
97 prósent eins.
„Ef maður ætlar að klífa stórt fjall þarf maður að
vera búinn að vinna heimavinnuna,“ segir Jóhann
um málshöfðunina.
Lögfræðistofa Jóhanns í Bretlandi, Knight & Sons,
er gamalgróin og innan hennar er sérstök deild sem
annast höfundarréttarmál sem þessi. Eftir að stofan
heyrði líkindin með lögunum tveimur ákvað hún að
taka málið að sér án endurgjalds, sem kemur sér
afar vel fyrir Jóhann enda kostar málshöfðun sem
þessi gríðarlegan pening.
Næsta skref hjá stofunni verður að hafa samband
við Íslendinga sem geta borið vitni í málinu fyrir
hönd Jóhanns. „Þetta er fólk sem er málsmetandi í
tónlist hérna heima og þekkir þessi lög og
annað,“ segir Jóhann.
Á meðal annarra sem hafa aðstoðað
hann í undirbúningi málsins er Jon Kjell,
sem einmitt tók upp plötu með Løvland
og hljómsveit hans Secret Garden hér á
landi á síðasta áratug.
Útgáfurisinn Universal innheimtir
höfundartekjur Løvland af You Raise Me
Up, sem nema tugum ef ekki
hundruðum milljóna, og því má
búast við harðri andstöðu úr þeirra
röðum. „Ég geri mér grein fyrir
því að það er mikið í húfi fyrir
þessa aðila. Við þekkjum það með
þessa stjörnulögfræðinga en
dómarar eiga að vera óháðir í
þessu máli,“ segir Jóhann, sem
telur sig vera með mjög gott mál í
höndunum. „Rapparar og fleiri
hafa fengið leyfi til að nota búta
úr þekktum lögum og þá er
höfundarins getið en í þessu tilviki
er nánast um sama lagið að ræða.
Ég gæti þess vegna tekið bítlalag og sett
á það íslenskan texta og breytt aðeins.
Það er oft sem fólk blekkist þegar
útsetningin er orðin önnur og annar
titill á laginu,“ segir hann.
freyr@frettabladid.is
JÓHANN HELGASON: UNDIRBÚNINGUR ÁKÆRU Á LOKASTIGI
Viðtal við Josh Groban
á meðal sönnunargagna
JOSH GROBAN Söngvarinn Josh
Groban sló í gegn með laginu You
Raise Me Up.
JÓHANN HELGASON Jóhann segist vera með mjög gott mál
í höndunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Sjoppur gefast ein
af annarri upp
fyrir klukku-
búðum og
bensínstöðv-
um og í byrjun
desember lok-
aði Svarti svan-
urinn á Hlemmi en matur hans
var fyrir löngu búinn að festa sig
rækilega í sessi hjá höfuðborgar-
búum. Skarð er fyrir skildi því þessi
sjoppa og skyndibitastaður hafði
lengi verið sannkallaður suðupottur
mannlífs á Hlemmsvæðinu og var
vel sóttur af fastagestum. Húsnæð-
ið er til sölu en ekki er líklegt að
þar verði hafinn sjoppurekstur á ný
enda búið að selja innvolsið út úr
húsnæðinu.
Þorsteinn Guðmundsson,
Fóstbróðir, auglýsingagerðarmaður
og rithöfundur, birtist aftur á
skjánum í lok mars. Þá tekur Skjár
einn til sýningar þáttinn Svalbarði
sem Þorsteinn er aðalmaðurinn í.
Samtals verða gerðir tíu þættir til
að byrja með, en fleiri ef þáttur-
inn slær í gegn. Þetta
verða klukkustund-
arlangir þættir og
sýndir einu sinni í
viku. Hljómsveitin
Flís tekur þátt í þess-
um skemmtiþætti,
en að öðru leyti
hefur fátt
spurst út
um inni-
haldið.
Ísland verður laust við alla kvik-
myndagerðarmenn um helgina en
þeir flykkjast nú í hrönnum til Berl-
ínar þar sem árleg kvikmyndahátíð
borgarinnar stendur yfir. Meðal
þeirra sem ætla að drekka í sig það
nýjasta í kvikmyndaheiminum eru
Baltasar Kormákur, Ari Alexand-
er Magnússon og Ólafur Jóhann-
esson en tveir síðastnefndu
eiga báðir mynd á hátíðinni, Ari
með Syndir feðranna og Ólafur
með drottninguna
sína Rakel. Meðal
annarra Íslendinga
sem þarna eru
má nefna Ísold
Uggadóttur og
Gunnar Björn Guð-
mundsson.
- fgg/glh
FRÉTTIR AF FÓLKI
Auglýsingasími
– Mest lesið